Beint á leiđarkerfi vefsins

Líf og störf

Ég er fæddur í Reykjavík 17. júlí árið 1948. Foreldrar mínir eru Guðrún Ö. Stephensen, húsmóðir og Jónas B. Jónsson, fyrrverandi fræðslustjóri í Reykjavík.

Ég er giftur Valgerði Andrésdóttur. Hún er dóttir Margrétar Helgu Vilhjálmsdóttur, húsmóður og Andrésar Björnssonar, fyrrverandi útvarpsstjóra. Valgerður er erfðafræðingur og starfar við Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum.

Við eigum þrjú börn, Andrés f. 14. júní 1974, Guðrúnu f. 17. mars 1979 og Margréti Helgu, f. 24. janúar 1981.

Að loknu grunnskólanámi í Melaskóla og Hagaskóla lá leiðin í Menntaskólann í Reykjavík. Á menntaskólaárunum lagði ég lykkju á leið mína því veturinn 1966-67 var ég við nám í Brentwood í Englandi. Stúdentsprófi lauk ég vorið 1969 og hélt til Edinborgar í Skotlandi þar sem ég lagði stund á sagnfræði og stjórnmálafræði sem ég lauk með MA Honours prófi 1974.

Á námsárum mínum lagði ég stund á margvísleg störf á sumrum og einn vetur (1971-1972) var ég kennari við Grunnskóla Reykjavíkur.  Á árunum 1974-78 stundaði ég rannsóknir við Edinborgarháskóla og ýmis störf  en gerðist síðan fréttamaður við Ríkisútvarpið vorið 1978. Nokkru síðar færði ég mig yfir á fréttastofu Sjónvarps og var þar fram á haust 1988 en tvö síðustu árin hafði ég verið fréttamaður Ríkisútvarpsins á Norðurlöndum með aðsetur í Kaupmannahöfn.

1988 var ég kjörinn formaður BSRB og gegndi ég formennsku í samtökunum til haustsins 2009. Áður en ég var kosinn til að gegna formennsku í BSRB hafði ég komið talsvert að starfi í samtökunum, bæði átt sæti sem varamaður í stjórn en einnig hafði ég verið formaður eins aðildarfélags bandalagsins, Starfsmannafélags Sjónvarps, lengst af frá 1980 til 1988. Af öðrum störfum mínum má nefna að ég hef verið stundakennari í sagnfræði við Háskóla Íslands frá 1979.

Ég var kjörinn á þing árið 1995 fyrir Alþýðubandalag og óháða og síðan fyrir  Vinstrihreyfinguna grænt framboð árið 1999. Í aðdragandanum að stofnun Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs, á fyrri hluta árs 1998, tók ég þátt í að stofna   Stefnu, félag vinstri manna. Að stofnum þess félags kom fjöldi fólks af vinstri væng stjórnmálanna og kvennahreyfingu staðráðið í að halda uppi hugsjónum og merki vinstri stjórnmála. Á fyrstu mánuðum lífdaga sinna stóð Stefna fyrir kröftugum málfundum um velferðarmál, umhverfismál og utanríkismál. Félagið er enn við góða heilsu þótt það hafi ekki verið mikið gefið fyrir sviðsljósið í seinni tíð enda þykir Stefnufélögum almennt VG farnast prýðilega að halda uppi fána vinstrimanna á opinberum vettvangi.

Á vegum verkalýðshreyfingar og stjórnmála hef ég gegnt ýmsum trúnaðarstörfum. Þar má nefna stjórnarsetu í ETUC, Sambandi evrópskra verkalýðsfélaga, NFS, Sambandi norrænna verkalýðsfélaga, NTR, Sambandi opinberra starfsmanna á Norðurlöndum, NOFS, Sambandi norrænna starfsmanna í almannaþjónustu og PSI, Heimssambandi launafólks í almannaþjónustu.

Frá stofnun VG gegndi ég þingflokksformennsku fram í febrúar 2009 þegar ég tók við embætti heilbrigðisráðherra í nýrri ríkisstjórn. Í lok september sagði ég af mér sem ráðherra vegna ágreinings vinnubrögð og stefnu en tók að nýju sæti í stjórninni í byrjun september 2010, nú sem ráðherra mannréttinda- og dómsmála og sveitarstjórna- og samgöngumála.
Með Margréti Helgu að lokinni fljótasiglingu í Skagafirði.

Áhugamálin tengjast fjölskyldu minni. Skemmtilegast þykir mér að vera samvistum við hana, bæði heima og heiman. Þá horfi ég bæði til minna allra nánustu og stórfjölskyldunnar. Mér þykir skemmtilegt að ferðast og ég nýt þess að koma á staði sem ég hef ekki heimsótt áður. Ég stunda hestamennsku með dóttur minni Guðrúnu en þó í alltof litlum mæli.

Ýmsar persónuupplýsingar um störf og hagi:

Tekjur
Fastar tekjur:
þingmennska, 589.559 kr.,
Engar aðrar tekjur.

Eignir 
Íbúðarhúsnæði, heimilsibifreið, hlutabréf í Friðarhúsi að upphæð 10.000 kr.. Auk þessa á ég spildu í skipulögðu sumarbústaðahverfi í Minna Mosfelli í Grímsnesi og er að reisa þar sumarbústað.

Hlunnindi
Fæ greiddan síma- og tölvukostnað og 22.737 kr. mánaðarlega vegna aksturs.

Maki: Valgerður Andrésdóttir, líffræðingur við Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum.
Laun samkvæmt kjarasamningi Félags háskólakennara.
Eignir: Engar að undanskildu íbúðarhúsnæði

 

 

 

 

 

 

 


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Júní 2013

UM RÉTTINDI Í TRYGGINGA-KERFINU

Að því þú virðist vera einn af bestu þingmönnum og lætur þig allt mannlegt varða að þá langar mig að spurja að einu. Allir Íslendingar sem hafa haft búsetu lengur en 6 mánuði á Íslandi eiga að vera inni í þessu svokallaða velferðarkerfi. Eru einhverjar undantekningar á því? Má undanskilja aðila undan þessu velferðarkerfi, vegna t.d. skilnaðarmála foreldra. Ég spyr vegna þess að við erum í þessari stöðu og best bara að setja hér inn link á blogg-ið mitt, þar sem þetta kemur ...
Kjartan

27. Maí 2013

HVER HAFI VIT FYRIR HVERJUM?

Það vill enginn láta hafa vit fyrir sér. Fyrir utan það að það er tæknilega ómögulegt...
Einar

25. Maí 2013

LUGU SIG TIL VALDA?

Eftir að stjórnarsáttmálinn leit dagsins ljós vöknuðu strax grunsemdir um að núverandi ríkisstjórn hefði logið sig til valda. Stjórnarflokkarnir eru  að setja á fót nefndir sem eiga að kanna hvort raunhæft  sé að framkvæma allt það sem lofað var fyrir kosningarnar eins og að lækka höfuðstól  lána um 20%!  Ef ekki kemur ...
Jóel A.

25. Maí 2013

VILL EKKI VESALDDÓM Í STJÓRNAR-ANDSTÖĐU!

Óttalegan  vesaldóm er að finna í málflutningi nýrrar stjórnarandstöðu. Það er eins og enginn ætli að þora að taka á þessu forréttindaliði sem búið er að koma fyrir að nýju uppi á valdastólunum. Og  þegar eru þau  farin að boða misréttisstefnu. Allir gömlu hrunverjarnir mættu á flokkskontórana til að samþ ykkja og fagna nýjum stjórnarsáttmála.
Það er átakanlegt að heyra ...
Haffi

16. Maí 2013

BRETAR OG MANN-RÉTTINDA-DÓMSTÓLLINN

... Teresa May innanríkisráðherra Breta hefur staðið í ströngu að koma dæmdum brottvísuðum öfgaklerki frá Bretlandi en hefur þó þar ríkisfang þar sem hann sé álíka hættulegur og Bin Laden. Þá bregðast dómarar við og dæma honum í vil slag í slag á öllum dómstigum að honum verði misþyrmt jafnvel þótt hann byggi í tjaldi á Gobi eyðimörkinni. Þetta hefur nú þegar kostað þá í málaferli yfir 600 milljónir punda fyrir utan að halda uppi fjölskyldu hans í luxusvillu í Mayfair hverfinu og ríflegum vasapeningum á meðan allt er skorið við nögl hjá heimamönnum. Frúin hefur gefið það út að ætli hæstiréttur landsins að ...
Þór Gunnlaugsson

16. Maí 2013

FRJÁLST FLĆĐI

...Örlítil hugvekja að allfögrum sunnudagsmorgni. Heyrði fyrir ekki all löngu að nú væri að opnast fyrir hið endanlega frjálsa flæði sem ekki hefur svo lítið verið dásamað í umæðu ESB unnenda. Bretar sem eru svo lánsamir að vera bara svona B- gaurar í ESB og hafa hafnað Schengen og Evru hafa gefið það sterkt út að þeir muni ekki flykkjast á Heathrow til að taka á móti þykkum hópum frá Búgaríu eða ég nefni nú ekkI Rúmenum sem einhverra hluta vegna virðist ekki meðal þeirra hjartfólgnustu heimsækjenda hins vestræna heims. Ekki mun okkar ...
Óskar K Guðmundsson fisksali

12. Maí 2013

ÝMIS SPJÓT

Jæja minn kæri nú er að standa sig sem aldrei fyrr, ýmis spjót eru aðstandandi en niðurstaða þeirra mála sem hæst bera þarf að vera í samræmi við þarfir okkar í samfélaginu.
Kær kveðja,
Óskar K Guðmundsson fisksali

6. Maí 2013

GENGUR VONUM FRAMAR AĐ...

Okkur er sagt að vel gangi í viðræðum Sjálfstæðisflokksins og Framsóknaflokksins um myndun ríkisstjórnar. Fundarstaðurinn var leynilegur. Það er táknrænt. En fjölmiðlar fundu út að fundað var í sumarbústað pabba annars þeirra Bjarna eða Sigmundar Davíðs við Þingvallavatn. Kannski líka táknrænt. Þeir standa einir í viðræðunum með ritara með sér. Táknrænt. Þetta er allt að...
Sunna Sara 

5. Maí 2013

NAUĐSYNLEGT AĐ RĆĐA OPNUM HUGA

Sæll Ögmundur og þakka vangaveltur þínar um úrslit kosninga. Ég sé ekki betur en þú bregðist við ákalli stuðningsmanna félagshyggjuflokka um að leiðtogarnir fari yfir stöðu mála og leiti skýringa á afhroðinu. Það er mikilvægt að það sé gert með opnum huga en ekki einvörðungu til að viðhalda því hugmyndakerfi sem kom mönnum í ógöngur til að byrja með. Ég vil þó bæta einu hráefni í uppskriftina sem ég tel vera uppistöðuna í þessu en þú virðist ekki sjá, e.t.v. vegna nálægðar þinnar við viðfangsefnið. Þar vísa ég til ...
H.P.

4. Maí 2013

Á AFTUR AĐ STELA ÍSLANDI?

Ég hélt að Framsókn væri búin að ganga í endurnýjun lífdagana. Svo er ekki, á leiðinni í spillingarsængina með Íhaldinu. Ég veit um fólk sem kaus Framsókn á nýjum forsendum og er nú miður sín. Sér ákefðina að komast að kjötkötlunum. Skyldu Ólafur í Samskip og Finnur í Frumherja byrjaðir að skála? Fleiri verkefni sem taka má frá ríkinu ...
Sunna Sara 



BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

3. Maí 2013

Helgi Guđmundsson skrifar: UM ORSÖK OG AFLEIĐINGU

...Las greiningu þína á kosningaúrslitunum á heimasíðunni, sem mér finnst um margt umhugsunarverð. Mörgu er ég sammála, enda þótt ég hafi ekki lagst í jafn djúpar pælingar og þú. Í öllu falli verður fróðlegt að sjá hverni SDG gengur að koma saman stjórn, og hvort hann velur að gera alvöru tilraun til vinstri. Mér fannst reyndar vanta hjá þér - og það skiptir miklu máli - að helmingur þjóðarinnar kaus ekki til hægri. Líklega meira en helmingur, því af gamalli reynslu veit ég að innan Framsóknar eru vinstri sinnuð öfl, sem í mörgum málum eru ...

25. Apríl 2013

EINAR ÁRNASON HAGFRĆĐINGUR: STÖĐVUM ÓSANNINDIN

Þannig jókst skattbyrði lægstu tekjuhópanna um 10 til 13,5% á þessum tíma en þáverandi stjórnvöld fullyrtu að þeir hefðu samt lækkað. Þessi aukna skattbyrði var vegna þess að skattleysismörk lækkuðu að raungildi þessi ár svo almenningur var að borga skatta af stærri hluta tekna sinna en áður... Sjálfstæðismennirnir sögðu ósatt allan tímann og Framsóknarmennirnir...

20. Apríl 2013

Einar Árnason skrifar: OPIĐ BRÉF TIL FORYSTU-MANNA FRAMSÓKNAR-FLOKKS OG SJÁLFSTĆĐIS-FLOKKS: SVAR ÓSKAST

...Hrunflokkarnir núverandi, Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn, lofa miklu? Hvar er innihaldið? Hvar er útfærslan? Er þetta ekki sama og með loforð helmingaskiptaflokkanna, Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins, um einkavæðingu ríkisbankanna í dreifða eignaraðild sem vitað er að aldrei stóð til , þó því hafi verið logið að íslenskum almenningi í fjölda ára þ.e. um Landsbanka og KB banka. Þeir slógu það sjálfum sér eins og segir í ævisögu séra Árna Þórarinssonar um sýslumanninn og Sigurð svinakarl sem nöppuðu fé og jörðum frá Guðmundi dúllara. Í þessari helmingaskiptingu milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks greiddu þeir á víxl með lánsfé frá hinum ríkisbankanum.  Svik á víxl. Hvað skyldi forystumönnum...

Slóđin mín:

Ögmundur

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta