Beint á leiðarkerfi vefsins

Stjórnmál

9. Maí 2007

LOKASÓKNIN ER HAFIN


Ræða á baráttufundi VG í kosningamiðstöð Kragans og Rvík suður og norður:
Það er auðvelt og það er gott að vera vinstri græn.
Ég held að þjóðin sé nær öll með okkur.
Ég held að innst inni vilji allir hafa flokk sem passar upp á náttúruna og umhverfið.
Ég held að innst inni vilji enginn að í þjóðfélaginu sé fátækt fólk og ég held að innst inni vilji allir að við séum öll á sama bátnum, að á Íslandi ríki jöfnuður og réttlæti.
Ég held líka að innst inni hafi margir áhyggjur.
Áhyggjur af því að við séum að missa þetta land. Við séum að missa þetta land í hendurnar á stórkapítali heimsins. Liðnir séu dagar kaupmannsins á horninu, trilluútgerðar, gröfunnar sem er í einkaeign. Stoltra launamanna i kennarastétt, hjúkrunarfólks sem bjargar heiminum á hverjum degi, iðnaðarmannsins sem allir sækjast eftir að fá til starfa.
Allt er þrúgað af tali um milljarða, milljarða og aftur milljarða. Átt þú ekki milljarð? Hvað kom fyrir þig? Hvað gerðirðu rangt?

En við spyrjum, hvað varð um vefnaðinn í samfélaginu? Hvað varð um dögunina í vestfirskum firði, þegar ungur maður fer niður í fjöru í kyrrðinni innan um hógvært sjófuglaglammið til að gera klárt? Hvað varð um nautnina við dytta að girðingu í óþarflega köldum maí? Hvað varð um gleðina við að sjá yfir samfélagið sem þarf á manni að halda? Hver bað um stórkapítal og milljarðamæringa?
Það var Sjálfstæðisflokkurinn.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur engan áhuga á bifvélavirkjanum, smákaupmanninum eða póstmanninum. Þeir eru allir "lúserar", þiggjendur af þeim sem búa til auðinn.

Milljarðamæringarnir. Það eru menn Sjálfstæðisflokksins. Án þeirra værum við öll nagandi þröskuldana, loppin og áttavillt. Án Alcoa og Björgólfs og Jóns Ásgeirs værum við ekkert. Þetta er sýn Sjálfstæðisflokksins.

Sjálfstæðisflokkurinn er orðinn Ósjálfstæðisflokkurinn. Endalausar gjafir Ósjálfstæðisflokksins til stórfyrirtækja. Nú síðast afsal Ósjálfstæðismanna til norska varnarmálaráðuneytisins. Þátttaka Ósjálfsstæðisflokksins í stríði. Við í stríði? Við í stríði í Írak? Er þetta ekki grín? Við erum ekki einu sinni með eigin varnir. Og hvar er sjálfsvirðingin? Höfum við flúið hana?
Ósjálfstæðisflokkurinn er flokkur flótta og flokkur ríkisafskipta, Kárahnjúka. Flokkur þjófnaðar á auðlindum, flokkur gjafakvóta, flokkur gjafaorku, flokkur gjafavaxta. Flokkur okurs og ótta. Bankarnir, Landssíminn og nú heilbrigðiskerfið og Landsvirkjun. Þetta vitum við eftir landsfund Sjálfstæðisflokksins. Um hitt spyrjum við, Þjórsárver, Landmannalaugar, Gullfoss – hvað næst?

Við skulum ekki tala um Framsóknarflokkinn, hann er ekki um neitt. Segist vera "þjóðlegur miðjuflokkur" en myndi glaður eyða Þjórsárverunum ef það þjónaði réttum hagsmunum. Svo ruglaður í ríminu er formaður Framsóknarflokksins að um yfirtöku Alcoa á Alcan upp á 2.100 milljarða segir hann í Mogga í gær að ríkisstjórnin muni tryggja að ekki verði um að ræða valdasamþjöppun gagnvart Íslendingum. Mikið er það hughreystandi að eiga Framsóknarflokkinn að. Við eigum ekki að þurfa að hafa áhyggjur gagnvart þessum stærsta álhring í heimi. Ef hann svo mikið sem andar á okkur þá sé Valgerði Sverrisdóttur og Jóni formanni að mæta! Er það þetta sem menn kalla víðáttubrjálæði? Skyldi skrifstofa iðnaðarráðherra vera mjög stór? Eða stendur formaður Framsóknar alltaf utandyra – er hann alltaf utangátta?

Þegar við undrumst og verðum jafnvel döpur yfir því að vera ekki enn orðinn stærsti flokkur á Íslandi  þá skulum við hugsa og ígrunda það sem liðið er. Baráttufólki fyrri tíðar tókst ekki alltaf að ná meirihlutafylgi í þjóðfélaginu. En því tókst að sjá til þess að byggt var gott íbúðarhúsnæði fyrir það fólk sem bjó í heilsuspillandi bröggum. Því tókst að opna fyrir öllum gott heilbrigðiskerfi. Því tókst að opna öllu samfélaginu dyrnar að menntun og menningu. Þetta voru afreksverk fyrri tíðar  – okkar eldri félagar ættu að bera heiðursmerki velferðarsamfélagsins.

Það er alltaf gott að horfa annað veifið til liðins tíma. En í stjórnmálabaráttunni horfum við fram á við. Það magnaða er að gerast að inn á vettvang stjórnmálabaráttunnar eru að stíga sókndjarfar sveitir fólks – ekki bara fólks sem er ungt að árum heldur fólks á öllum aldri sem er brennandi og ungt í anda. Guðfríður  Lilja sagði í stórgóðum sjónvarpsþætti í gær að ung hefði hún komið erlendis frá með bjartsýni í sinni – séð framtíðina blasa við bjarta og gjöfula á óþrjótandi tækifæri og möguleika í okkar góða landi – hún sagði líka að í heiminum væri þörf á rödd mannréttinda og friðar. Fátækt f'ólk og kúgað um heiminn allan þráði að heyra slíka rödd - við ættum að vera sú rödd.

Við í Vinstri grænum trúum á einstaklinginn, á einstaklingsfrelsið og samhjálp einstaklinganna. Við trúum því að ef efnahagsástandið er stöðugt, vextir lágir, gjaldmiðillinn rétt skráður, kvótinn heima í héraði, bankar hófsamir (Sparisjóður Svarfdæla skilaði 10 sinnum meiri gróða en Kaupþing miðað við starfsmannafjölda), verðbólgan lág og - stemningin góð, þá munu einstaklingarnir sjá um sig. Við Vinstri græn viljum ekki segja þjóðinni fyrir verkum. Vinstri græn vilja láta þúsund blóm blómstra, líka fjallagrösin.

Við viljum auka jöfnuð og fjölga tækifærum. Við viljum hreinsa til í samfélaginu, útrýma spillingu og misrétti. Við ætlum að sópa út og gera hreint. Það er augljóst að margir kjósendur Sjálfstæðisflokksins hafa orðið ástfangnir af honum við lélegt ljós. Við ætlum að kveikja ljósið. Við ætlum að leggja okkur fram um að gera þjóðfélagið bjart og ærlegt. Við erum flokkur bjartsýni. Við trúum á heiðarleika og sanngirni. Við trúum á nýja tækni og ný tækifæri. Við viljum hjálpa til að tryggja öllum vinnu, vel borgaða vinnu, skemmtilega vinnu. Við viljum losna við "isma" stjórnarflokkanna, sem ekkert sjá annað en stálbræðslur og álbræðslur og stóriðju, sem við þurfum að borga með stórfé.

Núverandi stjórnarflokkar munu ekki koma auga á ný tækifæri þegar þau birtast; þeir eru svo uppteknir að semja um nýjan taprekstur fyrir Landsvirkjun. Þeir eru svo uppteknir við að gefa auðlindir og líkna hinni sísvöngu auðmannastétt.  Þjóðfélag núverandi ríkisstjórnarflokka verður aldrei öðruvísi en þetta. Burtséð frá því hverju þau lofa og hvað þau segja. Hin bjartsýnustu meðal þeirra búast jafnvel við enn meira misrétti, á næstu árum. Við, sem þau kalla svartsýnismenn í þessum efnum, vitum að þau hafa rétt fyrir sér. Þau vilja efla auðstéttina og gera auðmennina frjálsa. Við viljum gera alla frjálsa.

Til eru þeir sem vinna  verkin og svo hinir sem eigna sér heiðurinn. Nú er komið að því að skila heiðrinum til baka til þjóðarinnar.

Það er auðvelt og það er gott að vera vinstri græn.
Ég held að þjóðin sé nær öll með okkur.
Ég held að innst inni vilji allir hafa flokk sem passar upp á náttúruna og umhverfið.
Ég held að innst inni vilji enginn að á Íslandi  sé fátækt fólk og ég held að innst inni vilji allir að við séum öll á sama bátnum, að á Íslandi ríki jöfnuður og réttlæti.

Þetta er okkar málstaður.
Þetta er málstaður okkar allra.
Við heyrum það á vinnustöðunum.
Við heyrum það á torgunum.
Þess vegna vitum við að sigurinn bíður okkar.
Hann bíður eftir því að við náum í hann.

Við höfum tvo daga til stefnu.
Tveir dagar duga til sigurs.
Við vitum það.
Við vitum að ef við tökum höndum saman.
Ef við hvert og eitt og við öll -
ef við í sameiningu sækjum fram -
þá mun það takast -
þá mun takst að tryggja Vinstrihreyfingunni grænu framboði glæsilegan sigur 12. maí.

Látum þetta gerast.
Lokasóknin er hafin.








Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

31. Ágúst 2010

STEINHISSA

Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson

27. Ágúst 2010

LÝÐRÆÐIÐ LEYSIR ALLAN VANDA

Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári  til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur

26. Ágúst 2010

ÁLIT ÚT OG SUÐUR

Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn

25. Ágúst 2010

HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA ÞJÓÐINA

Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson

25. Ágúst 2010

VELJUM RÉTT HUGTÖK

Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson

25. Ágúst 2010

ORKURÍKIÐ

....
Svo mættu þeir sem kunnu ýmsa klæki
og kynntu herrum skúffufyrirtæki,
þeir vildu þagga alla skrílsins skræki.
Þá skefjalausum fortölum var beitt
og loforð fóru útum ríkið allt.
Er aðstoð varla sýndi nokkur granni
þá hjálpin kom frá nískum námumanni
sem náði létt að sneiða framhjá banni,
því orkuríkið virtist flestum falt
og fyrir það hann greiddi ekki neitt.
......
Kristján Hreinsson

25. Ágúst 2010

ÓÞOLANDI ÁRÁSIR

Erfitt er að horfa upp á endalausar árásir og níð Evrópubandalagssinna og svokallaðra ´jafnaðarmanna´ gegn Jóni Bjarnasyni fyrir að það eitt að standa eins og maður í lappirnar og krefjast þess að umsóknin inn í Evrópusambandið verði dregin til baka. Fáráðsumsóknin var blekking ein um ´viðræður´ sem hafa enga þýðingu og sótt var um með pólitísku ofbeldi gegn vilja stærri hluta þjóðarinnar sem vildu fá að kjósa fyrst. Skrýtin eru rök Evrópusambandssinna, sem halda oft bæði fram að við ...
ElleE

23. Ágúst 2010

UTANSTEFNU-PÓLITÍK

Hef gaman af jafnvægisleysi í framhaldi af skrifum þínum um Evrópusambandið og imperialisma, sem auðvelt var að afbaka - en snerist oft í höndum gagnrýnenda og varð að lokleysu. Þá minntist ég vísu úr ljóðabálki eftir Steingrím Baldvinsson í Nesi í Aðaldal, sem birtist í Frjálsri þjóð, 1. árg. 1952, 14. tbl. bls. 3. :
Að leysa sjálfir sína hnúta
sýnist þeim ei nauðsyn rík
er imperíalismans lúta
utanstefnupólitík
kv. a

22. Ágúst 2010

TAKK ATTAC

Ég sé á http://orkuaudlindir.is/ að stöðugur straumur er inn á síðuna að undirrita áskorun til varnar orkuauðlindunum. Mig langar til að þakka Attac samtökunum og aðstandendum undirskrifatsöfnunarinnar um almannaeign á orkuauðlindum fyrir framtak sitt á Menningarnótt. Það var gaman að fylgjast með listafólki "troða upp" fyrir framan gamla Hegningarhísið og fylgjast með því hve margir virtust vera að skrifa undir áskorunina. Ég fór þarna þrisvar framhjá og var ...
Sunna Sara 

22. Ágúst 2010

GJALDSKRÁR-HÆKKUN ER EKKI DJÓK

... Kjósendum á sölusvæði Reykjavíkurveitnanna er ætlað að rétta af fyrirtækið svo það geti framleitt orku fyrir stóriðju. Ef þetta er gert að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þarf Jón Gnarr að segja frá því beint út. Sem sigurvegari kosninganna ber honum að koma fram og tala við okkur kjósendur. Ekki skjóta öðru fólki fyrir sig eins og skjöldum. Ikke spille dum. Hækkun orkuveitnanna er ekki djók, atriði á skemmtikvöldi, eða uppistand. Skemmtimennirnir Gnarr og Dagur hafa engan rétt á að skemmta sér á minn kostnað. Hver setti Orkuveituna á hausinn? Ekki var það Davíð!  
Jóna Guðrún



BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

13. Ágúst 2010

Björn Jónasson skrifar: OLNBOGARÝMI Í BRUSSEL

Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...

4. Ágúst 2010

Baldur Andrésson skrifar: UM SKÚFFUR OG SKÖMM

...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í  greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...

8. Júlí 2010

Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY

...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...  

Slóðin mín:

Stjórnmál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta