Stjórnmál
20. Apríl 2007
20 ÁRA ÓSLITIN VALDASETA – ÞAÐ MÁ EKKI VERÐA

Þau Geir H. Haarde og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tóku sig prýðilega út í iðagrænni fjallsbrekkunni á nýafstöðnum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hönnuðir og leikstjórnendur landsfundarins höfðu greinilega unnið sína vinnu. Formaður og varaformaður Sjálfstæðisflokksins birtust okkur sem einlægir náttúruverndarsinnar, fólk sem hafði verið vakið og sofið til verndar öllum þeim djásnum sem náttúru landsins prýðir. Auðvitað hefði það gefið raunsannari mynd af Sjálfstæðisflokknum og stefnu hans að hafa leikmyndina allt aðra. Til dæmis hefði hinn mikli stíflumúr Kárahnjúkavirkjunar sómt sér vel. Þar hefðum við verið minnt á unnin afrek og einnig hitt sem koma skal ef Sjálfstæðisflokkurinn verður áfram við stjórnvölinn. Geir og Þorgerður hefðu þá sennilega þurft að skipta út grárri dragt og gráum jakkafötum, ella hefðu þau horfið inn í múrinn sem hefði þó verið viðeigandi. Þau hefðu til dæmis getað snúið myndinni við og klætt sig aðeins út í grænt. Þó ekki væri nema til að sýna náttúruverndinni örlítinn virðingarvott. Það hefði verið heiðarlegra- eða hvað?
Það er hreint makalaust og með miklum ólíkindum hve vel Sjálfstæðisflokknum tekst að gefa af sér allt aðra mynd en þá sem á sér stoð í veruleikanum. Og ekki hjálpa fjölmiðlarnir mikið upp á - allt of margir láta gott heita að vera mataðir á tilbúnum réttum. Hvernig stendur á því að við fáum til dæmis ekki gagnrýna umfjöllun um einkavæðingaráform flokksins í raforkugeiranum og þá í ljósi reynslunnar erlendis frá. Þykir mönnum það spennandi tilhugsun að Alcan eða Alcoa ættu Landsvirkjun og Hitaveitu Suðurnesja og versluðu síðan við sjálfa sig? Sjálfstæðisflokkurinn vill opna á þetta. Þetta er stórmál sem þarf að ræða.
Sjálfstæðisflokkurinn hótar því að einkavæða heilbrigðiskerfið. Lesandi þessarar síðu hefur farið betur í það mál en flestir ef ekki allir fjölmiðlar, sbr. HÉR. Sjálfstæðisflokkurinn segist vilja láta skattborgarann greiða fyrir hina einkavæddu heilbrigðisþjónustu. En ef það reynist miklu dýrara og er óhagkvæmara – á samt að einkavæða heilbrigðisþjónustuna? Þetta er stórmál sem þarf að ræða.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú setið að völdum í 16 ár samfleytt. Framsóknarflokkurinn hefur setið við kjötkatlana – þannig er stjórnarsetu þess flokks best lýst – í 12 ár. Vill þjóðin meira? Vilja menn enn eitt kjörtímabilið? Vilja menn 20 ára valdasetu Sjálfstæðisflokksins? Væri það hollt fyrir lýðræðið í landinu? Væri það hollt fyrir íslenskt samfélag? Skoðanakannanir að undanförnu gefa þær hrikalegu vísbendingar að ríkisstjórnin kunni að halda velli. Með enn sterkari Sjálfstæðisflokki en veikari Framsókn – nánast komin í göngugrindina svo gripið sé til orðfæris lesenda hér á síðunni. Hvers konar ríkisstjórn yrði þetta? Enn grimmara Íhald, Framsókn með enn slakari sjálfsmynd. Þetta er stórmál sem þarf að ræða.
Getur verið að kjósendur hafi ekki fengið nóg af Íraksstríðum, öryrkjadómum, svikum við fatlaða og aldraða, misrétti og misskiptingu að ógleymdri einkavinaspillingunni? Ég held að meirihluti þjóðarinnar sé búinn að fá nóg. Búinn að fá sig fullsaddan af stjórn þessara flokka – alla vega að sinni. Vinstrihreyfingin grænt framboð hefur talað mjög skýrt um stjórnarmynstur á komandi kjörtímabili. Hún hefur beint því til þjóðarinnar að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn út úr Stjórnarráðinu og opna dyrnar fyrir stjórnarandstöðunni. Ég er sannfærður um að það yrði okkar samfélagi fyrir bestu. Okkur tækist betur að jafna kjörin, tryggja jafnrétti, stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu, þyrma náttúrunni og færa okkur reisn á alþjóðavettvangi.
Þetta er hægt. Það er hins vegar ekki hægt - það gengur ekki – að Sjálfstæðisflokkurinn stjórni landinu í samfleytt 20 ár. Hversu hlýjar taugar sem menn kunna að hafa til Sjálfstæðisflokksins þá hljóta menn að íhuga hvort tveggja áratuga valdaseta – þar sem flokkurinn hefur verið nánast einráður – sé heillavænleg fyrir þjóðina og þess vegna einnig Sjálfstæðisflokkinn. Nú stefnir í að flokkurinn sitji enn lengur og verði enn einráðari en nokkru sinni fyrr. Það má ekki verða!
Frá lesendum
31. Ágúst 2010
STEINHISSA
Ég er steinhissa á þér Ögmundur, að þú skulir láta það viðgangast og samþykkja að leyndarhjúpur megi hvíla yfir framlögum til stjórnmálaflokka. Af hverju tekurðu ekki upp þá stefnu að banna alfarið framlög til flokkanna, nema árgjald einstaklinga og framlag ríkisins.
Sigurður Þórðarson
Sigurður Þórðarson
27. Ágúst 2010
LÝÐRÆÐIÐ LEYSIR ALLAN VANDA
Mér þótti gott að sjá viðtalið við þig á mbl.is þar sem þú sagðir afdráttarlaust að þú vildir að ríkisstjórnin lifði. Reyndar hef ég aldrei efast um að þú vildir það enda sagðir þú þig úr ríkisstjórninni fyrir tæpu ári til að bjarga henni frá dauða. Svo einfalt var það. Það er hárrétt sem þú bentir á í viðtalinu á mbl.is að lausnin í ESB málinu er lýðræðið. Það er þjóðin sem kemur til með að ákveða málalyktir. Mér þótti gott hjá Jóni Bjarnasyni að benda á að samningaviðræðurnar gætu verið að þróast yfir í aðlögunarviðræður. Það má ekki gerast. Út úr þeim farvegi þarf málið að fara. Þetta þarf að gerast í ....
Grímur
Grímur
26. Ágúst 2010
ÁLIT ÚT OG SUÐUR
Mig hefur lengi grunað að stjórnmálamenn og þeir sem gegna embættum á vegum ríkis og sveitarfélaga hafi ekki lesið skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis. Ekki er þetta vegna þess, held ég, að viðkomandi séu öll ólæs, þótt eitthvað kunni að skorta uppá næman skilningi fyrir samhengi hlutanna. Ég held menn hafi ekki nennt að lesa, eða þá að skýrslan hafi verið lesin á sama hátt og sagt var að ungir menn hafi lesið erlendar bókmenntir í skáldverkinu Gunnar og Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson. Þetta segi ég i tilefni þess að viðskiptaráðherra lét gera enn eitt minnisblaðið, og nú um skyldu ríkisins til að standa undir innistæðutryggingum TIFs, eins og hann kallast í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Svo virðist sem augu nefndarmanna í efnahags- og viðskiptanefnd, sem þú situr í Ögmundur, hafi upplokist við lestur minnisblaðsins og efni þess hafi verið þér og ykkur framandi - að í því séu splúnkunýjar fréttir. Svo er ekki. Það einasta sem er óvenjulegt varðandi þetta minnisblað er, að ....
Hafsteinn
Hafsteinn
25. Ágúst 2010
HEFÐI ÁTT AÐ SPYRJA ÞJÓÐINA
Atlaga ríkisstjórnar að Jóni Bjarnasyni ráðherra sjávarútvegs og landbúnaðar er til varandi skammar og hann er ekki að fara með neitt fleipur. Þessi ríkisstjórn lagði úr höfn með bréfið til ESB vitandi það að 70% þjóðarinnar vill ekkert með það að gera. Þó svo að Alþingi hafi samþykkt að skoða málið hefði legið beinast við að bæta inn á kosningalistann við síðustu þjóðaratkvðagreiðslu, ertu þessu samþykkur eða ekki en því miður var það ekki gert. Því miður er núverandi verkstjórn á stjórnarheimilunu algjörlega óviðunandi og ummæli...
Þór Gunnlaugsson
Þór Gunnlaugsson
25. Ágúst 2010
VELJUM RÉTT HUGTÖK
Við skulum deila og vera ósammála. En notum ekki orðið einelti af faglegum ástæðum. Það er ekkert til sem heitir "pólitískt einelti". Hitt er ljóst að margir hafa deilt á Jón Bjarnason.
Gísli Baldvinsson
Gísli Baldvinsson
25. Ágúst 2010
ORKURÍKIÐ
....
Svo mættu þeir sem kunnu ýmsa klæki
og kynntu herrum skúffufyrirtæki,
þeir vildu þagga alla skrílsins skræki.
Þá skefjalausum fortölum var beitt
og loforð fóru útum ríkið allt.
Er aðstoð varla sýndi nokkur granni
þá hjálpin kom frá nískum námumanni
sem náði létt að sneiða framhjá banni,
því orkuríkið virtist flestum falt
og fyrir það hann greiddi ekki neitt.
......
Kristján Hreinsson
Svo mættu þeir sem kunnu ýmsa klæki
og kynntu herrum skúffufyrirtæki,
þeir vildu þagga alla skrílsins skræki.
Þá skefjalausum fortölum var beitt
og loforð fóru útum ríkið allt.
Er aðstoð varla sýndi nokkur granni
þá hjálpin kom frá nískum námumanni
sem náði létt að sneiða framhjá banni,
því orkuríkið virtist flestum falt
og fyrir það hann greiddi ekki neitt.
......
Kristján Hreinsson
25. Ágúst 2010
ÓÞOLANDI ÁRÁSIR
Erfitt er að horfa upp á endalausar árásir og níð Evrópubandalagssinna og svokallaðra ´jafnaðarmanna´ gegn Jóni Bjarnasyni fyrir að það eitt að standa eins og maður í lappirnar og krefjast þess að umsóknin inn í Evrópusambandið verði dregin til baka. Fáráðsumsóknin var blekking ein um ´viðræður´ sem hafa enga þýðingu og sótt var um með pólitísku ofbeldi gegn vilja stærri hluta þjóðarinnar sem vildu fá að kjósa fyrst. Skrýtin eru rök Evrópusambandssinna, sem halda oft bæði fram að við ...
ElleE
ElleE
23. Ágúst 2010
UTANSTEFNU-PÓLITÍK
Hef gaman af jafnvægisleysi í framhaldi af skrifum þínum um Evrópusambandið og imperialisma, sem auðvelt var að afbaka - en snerist oft í höndum gagnrýnenda og varð að lokleysu. Þá minntist ég vísu úr ljóðabálki eftir Steingrím Baldvinsson í Nesi í Aðaldal, sem birtist í Frjálsri þjóð, 1. árg. 1952, 14. tbl. bls. 3. :
Að leysa sjálfir sína hnúta
sýnist þeim ei nauðsyn rík
er imperíalismans lúta
utanstefnupólitík
kv. a
22. Ágúst 2010
TAKK ATTAC
Ég sé á http://orkuaudlindir.is/ að stöðugur straumur er inn á síðuna að undirrita áskorun til varnar orkuauðlindunum. Mig langar til að þakka Attac samtökunum og aðstandendum undirskrifatsöfnunarinnar um almannaeign á orkuauðlindum fyrir framtak sitt á Menningarnótt. Það var gaman að fylgjast með listafólki "troða upp" fyrir framan gamla Hegningarhísið og fylgjast með því hve margir virtust vera að skrifa undir áskorunina. Ég fór þarna þrisvar framhjá og var ...
Sunna Sara
Sunna Sara
22. Ágúst 2010
GJALDSKRÁR-HÆKKUN ER EKKI DJÓK
... Kjósendum á sölusvæði Reykjavíkurveitnanna er ætlað að rétta af fyrirtækið svo það geti framleitt orku fyrir stóriðju. Ef þetta er gert að kröfu Alþjóða gjaldeyrissjóðsins þarf Jón Gnarr að segja frá því beint út. Sem sigurvegari kosninganna ber honum að koma fram og tala við okkur kjósendur. Ekki skjóta öðru fólki fyrir sig eins og skjöldum. Ikke spille dum. Hækkun orkuveitnanna er ekki djók, atriði á skemmtikvöldi, eða uppistand. Skemmtimennirnir Gnarr og Dagur hafa engan rétt á að skemmta sér á minn kostnað. Hver setti Orkuveituna á hausinn? Ekki var það Davíð!
Jóna Guðrún
Jóna Guðrún
Póstlisti
Frjálsir pennar
13. Ágúst 2010
Björn Jónasson skrifar: OLNBOGARÝMI Í BRUSSEL
Fjölmargir menntamenn og stjórnmálamenn hér á landi hafa notið góðs af auknu Evrópusamstarfi eftir gerð EES-samningsins. Sá samningur hefur ýmsa kosti, einkum á sviði styrkja, vísindasamvinnu og einnig hafa fjölmargir Íslendingar fengið vinnu í Brussel við eftirlit ýmiskonar og skjalagerð. Nægir að benda á að hópur Íslendinga og Norðmanna samdi álit Eftirlitsnefndar ESA um að íslenskir skattgreiðendur bæru ábyrgð á Icesave skuldum Landsbankans hf. Ragnar Arnalds skrifaði ágæta bók um EES samninginn og fann honum ýmislegt til foráttu. Meðal annars það að hann ýtir undir hrávöruframleiðslu en hamlar fullvinnslu afurða á Íslandi. Engir tollar eru á óunnum fiski (þeas. óflökuðum) en tollur á unnum fiski. Þetta gildir um fleiri afurðir og hefur leitt til þess að vinna hefur flust úr landi og nægir að minna á fyrirtæki Sigurðar Ágústssonar sem fullvinnur afurðir í Hirsthals í Danmörku í stað Stykkishólms vegna þessa. Hægt er að færa rök fyrir því að...
4. Ágúst 2010
Baldur Andrésson skrifar: UM SKÚFFUR OG SKÖMM
...Forleikur að nýju átaki til einkavæðingar, sem í því tilviki er knúinn fram með engu minna ofstæki en fyrri daginn. Þessu síðara átaki er stýrt skipulega í anda AGS, eftir þekktri formúlu. Ríki og sveitarfélög eru sett í greiðsluklemmu, bönnuð lántaka. Ríkinu er fyrirlagt, við kreppu- aðstæður að draga úr framkvæmdum og eignavexti, því er ætluð bæklun, að búa við baklás AGS. Við blasa ógnir vegna ofurskuldsetningar OR og Landsvirkjun er ekki á góðu róli. Innan skamms er fyrirséð varnarstríð fyrir samfélagseign á þeim stórfyrirtækjum báðum. Ríkinu er fyrirmunað að eignast ný spítalahús, hvatt til sölu á öðrum. Nýjum almannavegum skal fyrirkomið í einkaeigu og jafnvel þeim gömlu, ef endurbóta er þörf. Megnið af fjármálafyrirtækjum er nú þegar á leið í hendur fjölþjóða braskara...
8. Júlí 2010
Þorleifur Gunnlaugsson skrifar: RÍKISSTJÓRNIN OG MAGMA ENERGY
...Nú kemur til kasta ríkisstjórnarinnar. Vilji VG er skýr. Nú reynir á hvort tekið er mark á ályktunum flokksráðs VG. Það er ófrávíkjanleg krafa að orkuverum og orkuauðlindum verði haldið í almannaeigu. Þessa orustu verður að taka núna því mikið er í húfi. Fari sem horfir eru þessar mikilvægu auðlindir landsmanna komnar á útsölu á markaðstorg alþjóðlega auðvaldsins. Í lögum um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri segir í 12.gr.... Ráðherra í vinstri stjórn sem ekki nýtir sér lagaákvæði sem þetta til að verja landið fyrir ágangi alþjóðlegra fjármagnseigenda sem í engu munu gæta hagsmuna landsmanna, hlýtur að þurfa að hugsa sinn gang. Sama gildir um ríkisstjórnina alla enda hún öll ábyrg fyrir því hvernig...












