Kjaramál
11. Desember 2007
HVATNING FRÁ BSRB: VERJUM VELFERÐINA

Í dag birtist í Morgunblaðinu grein eftir þau Garðar Hilmarsson, formann Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og Kristínu Á Guðmundsdóttur, forrmann Sjúkraliðafélags Íslands en bæði eru þau í stjórn BSRB. Í þessari grein birtast skýr skilaboð frá forystu BSRB til Alþingis sem nú ræðir um Fjárlög ríkisins fyrir komandi ár. Greinarhöfundar hvetja fjárveitingarvaldið til að verja velferðarkefið áföllum sem séu fyrirsjánaleg ef opinberum stofnunum verði áfram sniðinn þröngur stakkur. Þau vísa til manneklu sem orðin sé slík á ýmsum stofnunum að beinlínis stefni í neyðarástand ef fjárhagur þeirra verði ekki stórbættur svo og kjör starfsfólksins.
Eftirfarandi úr grein þeirra Garðars og Kristínar hlýtur að verða okkur öllum til umhugsunar: „Í rauninni er það fráleitt að við skulum nú í byrjun 21. aldarinnar – þegar ríkidæmi þjóðarinnar hefur aldrei verið meira – þurfa að leggjast í vörn fyrir velferðarkerfið. Í reynd ættum við að vera í stórfelldri sókn á öllum sviðum velferðarþjónustunnar því þegar allt kemur til alls nýtur samfélagið sem heild góðs af. Því öflugra velferðarkerfi sem við byggjum upp þeim mun betra verður þjóðfélag okkar. Það er til hagsbóta fyrir alla, einstaklinginn, fjölskylduna og fyrirtækin að hafa góð sjúkrahús, dvalarheimili fyrir aldraða, góða skóla, góðar almenningssamgöngur, löggæslu, brunavarnir, raforku- og vatnsveitur og annað sem telst til grunnþjónustu í nútímasamfélagi.“
Hér að neðan er umrædd grein úr Morgunblaðinu sem birtist undir fyrirsögninni, „Stórbæta þarf kjör innan almannaþjónustunnar.“:
Á UNDANFÖRNUM árum hafa í æ ríkari mæli borist fréttir frá ýmsum stofnunum almannaþjónustunnar þar sem fram kemur að það vanti fólk til starfa. Þær stéttir sem oftast hafa verið nefndar í þessu sambandi eru sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar þótt einnig eigi þetta við um fjölmargar aðrar stéttir og starfshópa. Fréttir af manneklu hafa borist af sjúkrahúsum, stofnunum fyrir aldraða, stofnunum fyrir fatlaða og nú í sumar einnig frá löggæslunni. Þessar staðreyndir allar ættu að vera yfirvöldum og þar með viðsemjendum launafólks innan almannaþjónustunnar sem blikkandi viðvörunarljós.
Vandinn vindur upp á sig
Í ályktun sem nýafstaðinn aðalfundur BSRB sendi frá sér er beinlínis talað um að víða stefni í hreint neyðarástand. Þar segir m.a.: „Ljóst er að gera þarf stórátak til þess að efla grunnþjónustu samfélagsins ef ekki á illa að fara. Mjög alvarlegar blikur eru nú á lofti. Sums staðar er manneklan slík að horfir beinlínis til landauðnar. Á sjúkrahúsum og dvalarheimilum fyrir aldraða, á stofnunum fyrir fatlaða, innan löggæslunnar og víðar í grunnþjónustu samfélagsins verður sífellt erfiðara að ráða fólk til starfa á þeim kjörum og við þau skilyrði sem starfsfólki eru búin. Manneklan veldur síðan enn meira álagi á starfsfólkið og vinda erfiðleikarnir þannig upp á sig. Samfélagið þarf að horfast í augu við þá staðreynd að ef lengur verður látið reka á reiðanum stefnir í óefni, ef ekki neyðarástand.“
Enda þótt manneklan í sjúkra- og aðhlynningarstörfum hafi í för með sér alvarlegustu afleiðingarnar og geti hreinlega leitt til neyðarástands fyrir skjólstæðinga velferðarþjónustunnar verður einnig að skoða af miklu raunsæi hvað gerist ef erfiðleikum er háð að manna almenn skrifstofustörf. Án skipulagningar starfseminnar, bókhalds og annars utanumhalds um rekstur skapast fljótlega ringulreið. Fjármálastofnanir sem á undanförnum árum hafa vaxið og dafnað sem aldrei fyrr soga nú til sín starfsfólk og oftast á mun betri launakjörum en ríki og sveitarfélög bjóða upp á. Ef launakjörin á þessum sviðum opinberrar stjórnsýslu verða ekki löguð í komandi kjarasamningum er ljóst að ríki og sveitarfélög geta ekki keppt við einkamarkaðinn. Þessa er t.a.m. tvímælalaust farið að gæta hjá Reykjavíkurborg og er það á ábyrgð kjörinna forsvarsmanna borgarinnar að gæta hagsmuna hennar sem atvinnurekanda.
BSRB hvetur til framfarasóknar
Það sem hér hefur verið nefnt er fyrst og fremst til varnar starfsemi á vegum hins opinbera. Varað er við því að ef ekki er tekið markvisst á kjaramálum starfsfólks innan samfélagsþjónustunnar muni það hafa alvarlegar afleiðingar í för með sér. Í rauninni er það fráleitt að við skulum nú í byrjun 21. aldarinnar – þegar ríkidæmi þjóðarinnar hefur aldrei verið meira – þurfa að leggjast í vörn fyrir velferðarkerfið. Í reynd ættum við að vera í stórfelldri sókn á öllum sviðum velferðarþjónustunnar því þegar allt kemur til alls nýtur samfélagið sem heild góðs af. Því öflugra velferðarkerfi sem við byggjum upp þeim mun betra verður þjóðfélag okkar. Það er til hagsbóta fyrir alla, einstaklinginn, fjölskylduna og fyrirtækin að hafa góð sjúkrahús, dvalarheimili fyrir aldraða, góða skóla, góðar almenningssamgöngur, löggæslu, brunavarnir, raforku- og vatnsveitur og annað sem telst til grunnþjónustu í nútímasamfélagi.
Í þessum anda ályktaði fyrrnefndur aðalfundur BSRB. Þar sagði að brýnt væri að gervöll velferðarþjónustan væri „í stöðugri framför og veiti samfélaginu öllu þá bestu þjónustu sem völ er á“. Til að þetta megi takast verður að búa betur að starfsfólki innan almannaþjónustunnar en nú er gert, bæði varðandi launakjör og starfsskilyrði almennt.
Garðar er formaður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar og gjaldkeri BSRB. Kristín er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Bæði eru í stjórn BSRB.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
8. Febrúar 2012
RÓTTÆKA FÁNA AÐ HÚNI!
Þakka þér fyrir frábæra frammistöðu í Kastljósi í gær þar sem þú útskýrðir vel allt sem viðkemur aðkomu þinni að Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins. Það er mikilvægt að fram fari vönduð og upplýst umræða um þessi mál. Það er eins og margir séu búnir að gleyma hvert er eðli kapítalismans, kerfis sem þú hefur alla tíð barist gegn. Þar höfum við átt samleið. Nú þarf að hefja að nýju róttæka fána að húni. það gerðirðu í gærkvöld. Það er óþarfi fyrir þig að vera í nokkurri vörn í þessu mál enda varstu það ekki. Nú er það bara sóknin sem gildir!
Þorleifur Gunnlaugsson
Þorleifur Gunnlaugsson
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












