Kjaramál
11. Desember 2009
KRÖFTUGIR TRÚNAĐARMENN - LIFANDI VERKALÝĐSHREYFING!

...Verkalýðsstofnun án jarðtengingar er til lítils nýt. Lifandi verkalýðshreyfing getur hins vegar allt - nánast. En til að þetta gangi eftir þarf að gera allt sem hægt er til að treysta innviði hreyfingarinnar. Þar horfi ég ekki síst til trúnaðarmanna á vinnustað sem gegna lykilhlutverki við að gæta réttinda launamannsins gagnvart atvinnurekanda eða umboðsmanna hans. Einstök verkalýðsfélög hafa lagt mikla rækt við þetta starf að ónefndum Félagsmálaskóla Alþýðu sem sinnt hefur þessari fræðslu fyrir ASÍ og BSRB... Meðal annars af þessum sökum er ég þeirrar skoðunar að okkur beri nú sem aldrei fyrr að styrkja fræðslu trúnaðarmanna og stuðning við þá...
10. Desember 2009
FORSETA ASÍ SVARAĐ

...Við höfum margoft rætt þetta efni á opinberum og óopinberum vettvangi. Ég hef varað við því að smíða tvöfalt velferðarkerfi og viljað þess í stað efla almannaþjónustuna. Þótt markaðshyggjustjórnir undangenginna ára hafi vanrækt almannaþjónustuna skulum við ekki horfa fram hjá því sem þó hefur verið vel gert á þessu sviði og ættum við að sameinast um að þar verði gert enn betur. Hvernig væri að við gerðum það Gylfi? Ég vil vera í liði með verkalýðshreyfingunni - hef þar alið allan minn starfsaldur. En ég leyfi mér líka að gera kröfur til hennar þegar mér finnst hún fara út af sporinu...
2. Desember 2009
ASÍ LEIĐRÉTT
...Ég fagna því að ASÍ skuli setja fram þessa gagnrýni opinberlega. Það geri ég vegna þess að það gefur tilefni til umræðu. Því miður gerist það allt of oft að samið er um stórmál án félagslegrar umræðu. Það átti við um Starfsendurhæfingarsjóðinn. Skyndilega var hann orðinn að veruleika, okkur í öðrum samtökum sagt að þetta væri nokkuð sem ekki ætti við um okkar félagsfólk nema fram kæmu óskir um slíkt. Síðan líður tíminn og þá kemur í ljós að veruleikinn er annar. Þegar sköpuð hafa verið réttindi á stórum hluta vinnumarkaðar segir reynslan að aðrir eiga ekki annarra kosta völ en bjóða upp á samvarandi rétttindi eða fyrirkomulag fyrir sína félagsmenn. Annað áþekkt dæmi er...
17. Nóvember 2009
SFR 70 ÁRA!

...Sjaldan hefur það verið eins augljóst að launafólk þarf á kröftugri og lifandi verkalýðshreyfingu að halda sjálfs sín vegna; stjórnvöld þurfa á henni að halda sér til halds og trausts og þá ekki síst nú sem aðhaldsafli og mótvægi við frek fjármagnsöflin. Án sterkrar verkalýðshreyfingar, gagnrýninnar og róttækrar, munum við aldrei rétta út kútnum. Það ætlum við hins vegar að gera. Þess vegna er sterk verkalýðshreyfing þjóðarhagur. Megi SFR rísa undir væntingum okkar og óskum...
10. Nóvember 2009
STÖĐUGLEIKI?

...Er ég þar einkum að tala um Samtök atvinnulífsins. Atvinnurekendasamtökin hafa með beinum og óbeinum hætti haft í hótunum við ríkisstjórnina. Hótunin er ófriður á vinnumarkaði og byggir á því að hafa af láglaunafólki kjarabætur ef ekki er orðið við kröfum atvinnurekenda um að hlífa vildarvinum þeirra, fjármagnseigendum og stóriðjunni. Þetta eru þeir aðilar á Íslandi sem helst eru aflögufærir. Nei, frekar skal almennt launafólk skattlagt, skorið niður á heilbrigðisstofnunum og kjör öryrkja og aldraðra skert en að hrófla við þessum mannskap. Hvers virði er "stöðugleiki" um slíkt ástand? Í mínum huga er Stöðugleikasáttmáli sem byggir á félagslegu ranglæti verri en einskis virði. ... Ríkisstjórnin verður að hætta undanslætti gagnvart ...
29. Október 2009
SÖGUNNI HALDIĐ TIL HAGA

...Oft hefur verið sótt að þessum réttindum og hefur stundum munað litlu að þau væru skert stórlega. Alvarlegasta atlagan að þessu kerfi var gerð á seinni hluta níunda áratugar síðustu aldar. Þá gáfust margir upp. Flestir. Ekki Gunnar Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri SFR, síðar framkvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Íslands. Hann stóð vaktina. Einn með storminn í fangið. Innan BHMR voru líka til einstaklingar vel vakandi. En það var Gunnar sem gerðist ...
25. Október 2009
SAMFÉLAGSVITUND/SJÓĐSVITUND OG EIN LÍTIL SPURNING

..... Í dag og í gær heyrum við síðan fulltrúa vinnumarkaðar krefjast þess að fá atvinnuleysistryggingasjóð yfir til sín eins og var fyrr á tíð......Ef ég verð veikur vil ég fara út á heilsugæslustöð og eiga um veikindi mín við minn lækni og síðan eftir atvikum fara á Reykjalund, Grensásdeild eða annað sem heilsugæslan ráðleggur mér. Þetta vil ég miklu frekar en fá Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA eða Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ eða fulltrúa þeirra í heimsókn. Ég vil hins vegar áfram geta sótt til Gylfa, Elínar Bjargar formanns BSRB, Sigurðar Bessa, formanns Eflingar og Árna Stefáns, formanns SFR, þurfi ég á að halda stuðningi gagnvart "kerfinu" og þá einnig til míns sjúkrasjóðs ef um einhverjar sérstakar .....
24. Október 2009
HEILLAÓSKIR TIL BSRB!

Elín Björg Jónsdóttir hefur verið kjörin nýr formaður BSRB. Hún hefur verið starfandi lengi innan bandalagsins, verið í framvarðarsveit og gegnt ótal trúnaðarstörfum. Hún er öflug baráttukona og mun án nokkurs vafa verða kröftugur málsvari launafólks. Ég sendi henni hlýjar heillaóskir. Á nýafstöðnu þingi BSRB var kjörin ný framkvæmdanefnd bandalagsins. Hún er skipuð Árna Stefáni Jónssyni, Garðari Hilmarssyni, Þuríði Einarsdóttur og Kristínu Á. Guðmundsdóttur. Allt er þetta kröftugt fólk, mjög félagsvant og...
9. Júní 2009
ÁBENDINGAR BSRB

Jafnréttisnefnd BSRB hefur sent frá sér ályktun þar sem hafnað er "atvinnustefnu á kostnað kvenna". Í ályktuninni er hvatningu beint til ríkisstjórnar og samningsaðila á vinnumarkaði að standa vörð um velferðarþjónustuna: "Starfsfólk í velferðarkerfinu - á sjúkrahúsum, í heilsugæslunni, á stofnunum fyrir fatlaða og í skólum, er í yfirgnæfandi meirihluta konur. Samdráttur og skerðing í velferðarþjónustunni bitnar því harkalega á kvennnastéttum." Þegar stjórnvöld grípi til atvinnuskapandi aðgerða megi atburðarásin ekki verða sú "að ...
13. Maí 2009
VARNAĐARORĐ UM PENINGAHYGGJU ESB OG AGS

BSRB hefur verið óhemju kraftmikið að halda úti upplýsingum um hvað er að gerast á vettvangi kjarabaráttunnar í Evrópu og annars staðar í heiminum. Í nýlegri samþykkt Evrópusambands verkalýðsfélaga, ETUC, European Trade Union Confedaration, er að finna varnaðarorð sem við ættum öll að hugleiða - líka verkalýðshreyfingin íslenska, eða svo vitnað sé í frétt á bsrb.is frá 8. maí sl.: "Þá gagnrýnir ETUC Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (ASG) fyrir að neyða þjóðir til að lækka laun og skera niður opinber störf og félagsleg útgjöld sem gjald fyrir að þiggja neyðarlán sjóðsins. Þessi aðferðafræði dýpki kreppuna og að meðul sjóðsins geti orðið verri en sjúkdómurinn. Þá er ...
1. Maí 2009
HEIĐUR AĐ HEIMSÓKN

Það yljar mér alltaf um hjartarætur að hlýða á Lúðrasveit Verkalýðsins - sjá hana og heyra. Og einstaklega vænt þótti mér um þegar sveitin tók Nallan af öllum lífs og sálarkröftum úti fyrir höfuðstöðvum BSRB á baráttudegi verkalýðsins - auk annarra vel valinna laga. Okkur var heiður að heimsókn Lúðrasveitar Verkalýðsins...Þórveig Þormóðsdóttir, formanni Félags starfsmanna Stjórnarráðsins mæltist einstaklega vel, þegar hún varaði við niðurskurði í velferðarþjónustunni....Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, minnti á áfangasigra verkalýðshreyfingarinnar í tímans rás....Síðan hvatti hann til þess að Íslendingar gengju í Evrópusambandið....Mikilvægt er að atvinnurekendur og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar einnig, átti sig á því hvenær og hvenær ekki - í hvaða málum og hvaða málum ekki - þeir hafa umboð til að tala í nafni þjóðarinnar. ...
1. Maí 2009
UM VONINA OG SAMSTÖĐUNA
Alltaf er gott að heyra í þeim sem kunna að spinna saman þræði réttindabaráttu og sögu og menningar. Það kann Ragnhildur G. Guðmundsdóttir flestum fremur ....Ragnhildur hittir naglann á höfuðið þegar hún bendir á mikilvægi hins huglæga í tilverunni. Sá á líf sem á von, segir hún. Þetta er rétt. Og áfram má spinna, sá á von sem býr yfir vilja til að berjast fyrir lífsbjörginni. Á baráttudegi verkalýðsins eflum við baráttuandann og þar með lífsviljann - og vonina. Þegar við finnum til samstöðunnar finnum við að við...
30. Apríl 2009
SAMSTÖĐUKVEĐJUR Á 1. MAÍ!!!

Á baráttudegi verkalýðsins flyt ég öllu launafólki og landsmönnum öllum eldheitar baráttukveðjur og minni á nauðsyn þess að við þjöppum okkur öll saman um kröfuna um réttlátt samfélag... Ræðumaður BSRB í Reykjavík að þessu sinni er Þórveig Þormóðsdóttir, formaður Félags starfsmanna stjórnarráðsins. Að loknum fundinum efnir BSRB venju samkvæmt til kaffisamsætis ...Þá vil ég vekja athygli á því að VG Í Reykjavík býður... einnig til kaffisamsætis og baráttufundar að Vesturgötu 7. Dagskráin hefst að loknum útifundi verkalýðsfélaganna, en þá munu þau Björg Eva Erlendsdóttir og Ari Mattíason flytja ræður, auk þess sem ...
25. Apríl 2009
UM LAUN OG LAUNAFÓLK
18. Apríl 2009
JÁKVĆĐAR YFIRLÝSINGAR BHM
Það var ánægjulegt að sitja fund með trúnaðarmönnum launafólks innan raða háskólamanna í BHM í vikunni. Og ég neita því ekki að það gladdi mjög hjarta mitt að heyra yfirlýsingar formanns BHM og annarra forsvarsmanna bandalagsins á fundinum og í kjölfar hans. Þar áréttaði ég að allt tal um lækkanir á kjarasamningsbundnum kjörum launafólks - einsog pólitískir andstæðingar hafa gert skóna að ég sé sérstakur áhugamaður um!!! - væri út í hött...
6. Apríl 2009
GEFANDI SAMRÁĐ

Troðfullt var út úr dyrum í fundarsölum BSRB þegar trúnaðarmenn innan aðildarfélaga ASÍ og BSRB komu til samráðsfundar með heilbrigðisráðherra í dag. Fundurinn var afar gagnlegur fyrir mig og vonandi einnig trúnaðarmennina sem komu með óteljandi ábendingar og úrræði. Athygli vakti að fólk kom á fundinn úr öllum landshlutum. Trúnaðarmenn kröfðust kjarajöfnunar, vöruðu við útboðum sem iðulega væru ávísun á kjararýrnun; sýnt var fram á að fækkun starfa þýddi útgjöld á öðrum sviðum þjóðfélagsins. Eða væri betra að...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












