Kjaramál
24. Nóvember 2008
FJÖLMENNUM Á INGÓLFSTORGIĐ Í REYKJAVÍK Í DAG!
á Ingólfstorgi í dag, mánudaginn 24. Nóvember, kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar...Í fréttatilkynningu sem boðendur fundarins á Ingólfstorgi í dag, sendu frá sér segir m.a.: "..Íslenskt samfélag stendur nú á krossgötum. Við teljum að grundvöllur hins nýja Íslands verði að byggjast á samkennd og sameiginlegri ábyrgð okkar hvert á öðru. Það að vega að núverandi velferðarkerfi er ekki fyrsta skref á þeirri leið. Verjum því velferðina sem fyrsta áfanga að bættri framtíð. Við krefjumst síðan lýðræðislegra vinnubragða stjórnvalda, opinnar stjórnsýslu og upprætingu spillingar."
20. Nóvember 2008
VERĐTRYGGINGIN RĆDD HJÁ BSRB

Undanfarnar vikur hefur BSRB efnt til opinna funda um ýmis þau mál sem heitast á okkur brenna nú um stundir. Fundirnir hafa verið vel sóttir og mun svo eflaust verða í dag þegar þeir Ingólfur H. Ingólfsson og Pétur H. Blöndal ræða verðtrygginguna, kosti hennar og galla og hvort æskilegt sé að afnema hana til skammst tíma eða til langframa. Ég vek athygli á að fundurinn er öllum opinn. Sjá nánar um stað og stund...
6. Nóvember 2008
VEL NOTAĐIR PENINGAR ERU VEL GEYMDIR
Birtist í nýútkomnum SFR-tíðindum
Íslendingar standa á tímamótum. Öllum er ljós sá mikli vandi sem þjóðin stendur frammi fyrir. Flestir gera sér líka grein fyrir því að framundan er tími endurmats. Yngsta kynslóðin er forviða. Hún þekkir bara sveifluna upp á við - alla vega þegar þjóðfélagið er skoðað í heild sinni. Hún hefur að vísu haft af því spurn að þjóðfélagið sé orðið harðneskjulegra en áður var og vissulega erfitt að vera tekjulítill og veikur. Fæstir af þessari kynslóð þekkja þetta þó af eigin reynslu ...Hitt sem þá snýr að endurmatinu er hvaða lærdóma við getum dregið af reynslu undangenginna ára. Hér kemur lífeyrissparnaðurinn fyrst upp í hugann. Í hruninu innan fjármálageirans hafa lífeyrissjóðirnir orðið fyrir gríðarlegum búsifjum. Nú þurfa gæslumenn þeirra að ...
2. Nóvember 2008
TALAĐ FYRIR RÉTTLÁTRI KJARASTEFNU

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir skrifar að venju frábæran laugardagspistil í Morgunblaðið í gær. Hún vill nýja launastefnu í þjóðfélaginu: „Nú er ráð að íhuga gamla tíma og nýja. Hvað segja rætur okkar um sanngirni...Þær segja okkur m.a. þetta: Það var menningarleg venja að skipstjórahlutur væri tvöfaldur hásetahlutur. Réttlætiskrafa þjóðarsálarinnar og áratuga barátta kynslóðanna bergmálaðist m.a. í frægu þingmáli Stefáns Jónssonar þar sem hann lagði til að engin laun í landinu væru hærri en tvöföld verkamannalaun.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
Þórólfur












