Kjaramál
23. Október 2008
ÁVARP Á ÁRSFUNDI ASÍ

Ræða flutt á Ársfundi Allþýðusambands Íslands 23.10.08.
...Þá er það hin megin krafan og hún er þessi: Þeir sem komu okkur út í þetta fen eiga að axla ábyrgðina, þeir eiga að borga.
Þá fyrst opni almenningur pyngjur sínar að,
allar hallirnar,
allar snekkjurnar,
öll fótboltaliðin,
og allar þoturnar hafa verið seldar og allir felureikningarnir á Cayman eyjum, Kýpur og á Ermasundi hafa verið tæmdir
og að S-hópar einkavinavæðingarinnar hafa skilað ránsfeng sínum tilbaka.
Þetta hlýtur að verða krafa verkalýðshreyfingar og forsenda þess að gengið verði til einhvers sem kalla megi þjóðarsátt.
Og er ég þá ekki byrjaður að ræða hina pólitíska ábyrgð. Einnig hún kallar á uppgjör. Uppgjör á milli stjórnmálaflokka og innan stjórnmálaflokka....
22. Október 2008
BSRB OG KĆRKOMIN BLÓM

...Þetta var í október árið 1988. Þá hafði ég verið félagi í BSRB í tíu ár eða allar götur frá því ég kom til starfa hjá Ríkisútvarpinu vorið 1978. Inn í stjórn BSRB kom ég á þingi bandalagsins í byrjun níunda áratugarins og einnig átti ég aðkomu að starfsemi BSRB sem formaður Starfsmannafélags Sjónvarps mestallan tíma sem ég var þar starfandi. Þegar allt reiknast til hafa leiðir mínar og BSRB legið saman í þrjá áratugi. BSRB er því orðinn snar þáttur í minni tilveru. Þótti mér vænt um blómvönd sem félagar mínir og vinir færðu mér í tilefni af þessum tímamótum og góðum kveðjum sem fylgdu..
17. Október 2008
BSRB: STYRKJUM INNVIĐINA - SANNLEIKANN Í LJÓS

Aðalfundur BSRB sem haldinn var í dag sendi frá sér ályktun þar sem krafist er ítarlegrar rannsóknar á fjármálakreppunni, aðdraganda hennar og afleiðingum. Því er hafnað að láglaunafólk verði látið bera allan herkostnaðinn af óráðsíu forkólfa í efnahags- fjármálalífi okkar undanfarinn ár. Nú þurfi að stórefla innviði samfélagsins og snúa erfiðri varnarbaráttu upp í sókn. Til þess séu allar forsendur því undirstöður íslensks efnahagslífs séu þrátt fyrir allt traustar....
5. Október 2008
LÍFEYRISSJÓĐIRNIR HEIM - EN AĐEINS GULLTRYGGĐIR

...Í fyrsta lagi yrðu fjármunir lífeyrissjóðanna því aðeins fluttir heim að fyrir þá fengjust ríkistryggð skuldabréf.
Í annan stað vilja forsvarsmenn lífeyrissjóðanna vita hvernig bankar og fjármálafyrirtæki ætli að axla sína ábyrgð. Ætla þau að flytja fjármuni heim , selja eignir og beina sjóðum sem þau kunna að ráða yfir til Íslands?
Í þriðja lagi viljum við vita hvernig fjármununum yrði ráðstafað, til að tryggja að ríkið geti staðið við skuldbindingar sínar . Rynnu þessir peningar inn í almenna púlíu til að lengja dauðastríð fjármálafyrirtækja um nokkrar vikur, eða yrði skilyrt að þeir færu til að standa straum af kostnaði við skuldbindingar hins opinbera?
Þessum spurningum ...
4. Október 2008
HRINDUM AĐFÖRINNI AĐ ÍBÚĐALÁNASJÓĐI!

...Á mannamáli þýðir þetta hærri vextir og þyngri byrðar fyrir skattgreiðendur. Hvers vegna í ósköpunum þá að gera þetta? Jú, þetta bætir samkeppnisstöðu bankanna á húsnæðismarkaði og þetta er líklegra - segja þeir sem tala fyrir þessum breytingum - að forða okkur frá reiði lögfræðinga í Brussel. Lögfræðingarnir, sem hafi sérhæft sig í heilagri markaðsritningu Evrópusambandsins, segi að húsnæðiskerfi þjóða eigi einvörðungu að stjórnast af markaðslögmálum og megi ekki eiga sér félagslegan bakhjarl. Brussel ætli hins vegar að sjá í gegnum fingur sér varðandi fátækraaðstoð...Við þessu er þetta tvennt að segja...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUĐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GĆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIĐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












