Beint á leiđarkerfi vefsins

Kjaramál

28. Desember 2008

KRAFAN ER KJARAJÖFNUN - EKKI ALMENN LAUNALĆKKUN


Í fréttum í dag var ágætt viðtal við Þuríði Einarsdóttur, formann Póstmannafélags Íslands. Hún sagði að farið væri að skerða kjör póstburðarfólks. Gæti kjaraskerðingin numið 10%. Það væri stór biti fyrir fólk með innan við 200 þúsund krónur í tekjur. Ég vil taka undir með formanni PFÍ. Greinilegt er að upp er kominn alvarlegur misskilningur hjá þeim sem stýra stofnunum og fyrirtækjum. Þeir virðast halda að gefið hafi verið grænt ljós á launalækkun hjá launaþjóðinni einsog hún leggur sig. Það er af og frá. Það eru topparnir sem eiga að lækka. Þeir lægstu eiga að hækka. Krafan er kjarajöfnun. Ekki ...

24. Nóvember 2008

FJÖLMENNUM Á INGÓLFSTORGIĐ Í REYKJAVÍK Í DAG!

BSRB_Verjum-velf_nov_2008ltá Ingólfstorgi í dag, mánudaginn 24. Nóvember, kl. 16:30. Tilefni fundarins er óvissuástandið í efnahagsmálum þjóðarinnar, kjaraskerðing sem nú þegar blasir við mörgum og síðast en ekki síst hugmyndir stjórnvalda um stórkostlegan niðurskurð á útgjöldum til velferðar...Í fréttatilkynningu sem boðendur fundarins á Ingólfstorgi í dag, sendu frá sér segir m.a.: "..Íslenskt samfélag stendur nú á krossgötum. Við teljum að grundvöllur hins nýja Íslands verði að byggjast á samkennd og sameiginlegri ábyrgð okkar hvert á öðru. Það að vega að núverandi velferðarkerfi er ekki fyrsta skref á þeirri leið. Verjum því velferðina sem fyrsta áfanga að bættri framtíð. Við krefjumst síðan lýðræðislegra vinnubragða stjórnvalda, opinnar stjórnsýslu og upprætingu spillingar."

20. Nóvember 2008

VERĐTRYGGINGIN RĆDD HJÁ BSRB

hip
Undanfarnar vikur hefur BSRB efnt til opinna funda um ýmis þau mál sem heitast á okkur brenna nú um stundir. Fundirnir hafa verið vel sóttir og mun svo eflaust verða í dag þegar þeir Ingólfur H. Ingólfsson og Pétur H. Blöndal ræða verðtrygginguna, kosti hennar og galla og hvort æskilegt sé að afnema hana til skammst tíma eða til langframa. Ég vek athygli á að fundurinn er öllum opinn. Sjá nánar um stað og stund...

6. Nóvember 2008

VEL NOTAĐIR PENINGAR ERU VEL GEYMDIR

Birtist í nýútkomnum SFR-tíðindum
Íslendingar standa á tímamótum. Öllum er ljós sá mikli vandi sem þjóðin stendur frammi fyrir. Flestir gera sér líka grein fyrir því að framundan er tími endurmats. Yngsta kynslóðin er forviða. Hún þekkir bara sveifluna upp á við - alla vega þegar þjóðfélagið er skoðað í heild sinni. Hún hefur að vísu haft af því spurn að þjóðfélagið sé orðið harðneskjulegra en áður var og vissulega erfitt að vera tekjulítill og veikur. Fæstir af þessari kynslóð þekkja þetta þó af eigin reynslu ...Hitt sem þá snýr að endurmatinu er hvaða lærdóma við getum dregið af reynslu undangenginna ára. Hér kemur lífeyrissparnaðurinn fyrst upp í hugann. Í hruninu innan fjármálageirans hafa lífeyrissjóðirnir orðið fyrir gríðarlegum búsifjum. Nú þurfa gæslumenn þeirra að ...

2. Nóvember 2008

TALAĐ FYRIR RÉTTLÁTRI KJARASTEFNU


Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
skrifar að venju frábæran laugardagspistil í Morgunblaðið í gær. Hún vill nýja launastefnu í þjóðfélaginu: „Nú er ráð að íhuga gamla tíma og nýja. Hvað segja rætur okkar um sanngirni...Þær segja okkur m.a. þetta: Það var menningarleg venja að skipstjórahlutur væri tvöfaldur hásetahlutur. Réttlætiskrafa þjóðarsálarinnar og áratuga barátta kynslóðanna bergmálaðist m.a. í frægu þingmáli Stefáns Jónssonar þar sem hann lagði til að engin laun í landinu væru hærri en tvöföld verkamannalaun.

23. Október 2008

ÁVARP Á ÁRSFUNDI ASÍ


Ræða flutt á Ársfundi Allþýðusambands Íslands 23.10.08.
...Þá er það hin megin krafan og hún er þessi: Þeir sem komu okkur út í þetta fen eiga að axla ábyrgðina, þeir eiga að borga.
Þá fyrst opni almenningur pyngjur sínar að,
allar hallirnar,
allar snekkjurnar,
öll fótboltaliðin,
og allar þoturnar hafa verið seldar og allir felureikningarnir á Cayman eyjum, Kýpur  og á Ermasundi  hafa verið tæmdir
og að S-hópar einkavinavæðingarinnar  hafa skilað ránsfeng sínum tilbaka.
Þetta hlýtur að verða krafa verkalýðshreyfingar og forsenda þess að gengið verði til einhvers sem kalla megi þjóðarsátt.
Og er ég þá ekki byrjaður að ræða hina pólitíska ábyrgð. Einnig hún kallar á uppgjör. Uppgjör á milli stjórnmálaflokka og innan stjórnmálaflokka....

22. Október 2008

BSRB OG KĆRKOMIN BLÓM


...Þetta var í október árið 1988. Þá hafði ég verið félagi í BSRB í tíu ár eða allar götur frá því ég kom til starfa hjá Ríkisútvarpinu vorið 1978. Inn í stjórn BSRB kom ég á þingi bandalagsins í byrjun níunda áratugarins og einnig átti ég aðkomu að starfsemi BSRB sem formaður Starfsmannafélags Sjónvarps mestallan tíma sem ég var þar starfandi.  Þegar allt reiknast til hafa leiðir mínar og BSRB legið saman í þrjá áratugi. BSRB er því orðinn snar þáttur í minni tilveru. Þótti mér vænt um blómvönd sem félagar mínir og vinir færðu mér í tilefni af þessum tímamótum og góðum kveðjum sem fylgdu..

17. Október 2008

BSRB: STYRKJUM INNVIĐINA - SANNLEIKANN Í LJÓS


Aðalfundur BSRB sem haldinn var í dag sendi frá sér ályktun þar sem krafist er ítarlegrar rannsóknar á fjármálakreppunni, aðdraganda hennar og afleiðingum. Því er hafnað að láglaunafólk verði látið bera allan herkostnaðinn af óráðsíu forkólfa í efnahags- fjármálalífi okkar undanfarinn ár. Nú þurfi að stórefla innviði samfélagsins og snúa erfiðri varnarbaráttu upp í sókn. Til þess séu allar forsendur því undirstöður íslensks efnahagslífs séu þrátt fyrir allt traustar....

5. Október 2008

LÍFEYRISSJÓĐIRNIR HEIM - EN AĐEINS GULLTRYGGĐIR


...Í fyrsta lagi yrðu fjármunir lífeyrissjóðanna því aðeins fluttir heim að fyrir þá fengjust ríkistryggð skuldabréf.
Í annan stað vilja forsvarsmenn lífeyrissjóðanna vita hvernig bankar og fjármálafyrirtæki ætli að axla sína ábyrgð. Ætla þau að flytja fjármuni heim , selja eignir og beina sjóðum sem þau kunna að ráða yfir til Íslands?
Í þriðja lagi  viljum við vita hvernig fjármununum yrði ráðstafað, til að tryggja að ríkið geti staðið við skuldbindingar sínar . Rynnu þessir peningar inn í almenna púlíu til að lengja dauðastríð fjármálafyrirtækja um nokkrar vikur, eða yrði skilyrt að þeir færu til að standa straum af kostnaði við skuldbindingar hins opinbera?
Þessum spurningum ...

4. Október 2008

HRINDUM AĐFÖRINNI AĐ ÍBÚĐALÁNASJÓĐI!


...Á mannamáli þýðir þetta hærri vextir og þyngri byrðar fyrir skattgreiðendur.  Hvers vegna í ósköpunum þá að gera þetta? Jú, þetta bætir samkeppnisstöðu bankanna á húsnæðismarkaði og þetta er líklegra - segja þeir sem tala fyrir þessum breytingum - að forða okkur frá reiði lögfræðinga í Brussel.  Lögfræðingarnir, sem hafi sérhæft sig í heilagri markaðsritningu Evrópusambandsins, segi að húsnæðiskerfi þjóða eigi einvörðungu að stjórnast af markaðslögmálum og megi ekki eiga sér félagslegan bakhjarl. Brussel ætli hins vegar að sjá í gegnum fingur sér varðandi fátækraaðstoð...Við þessu er þetta tvennt að segja...

31. Júlí 2008

HROKAFULLT PRÓFGRÁĐUMANNATAL


...Talsmenn hálaunalækna segja niðurstöðu úr atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning fela í sér skýr skilaboð: Meirihluti lækna vilji að menntun þeirra sé metin að verðleikum. Svipaðir tónar hafa heyrst frá ýmsum hópum háskólamenntaðara að undanförnu. Þeir tala með fyrirlitningu um tilraunir til að jafna kjörin. Slíkt tal hljómar ekki  sérlega vitiborið í mínum eyrum. Læt ég þá réttlætið liggja á milli hluta. Langskólamenntað fólk verður að skilja að menntun er ekki og á ekki að vera óskilyrt ávísun á miklu betri kjör en þeir njóta sem búa yfir minni skólamenntun...

26. Júní 2008

FLUGUMFERĐARSTJÓRAR OG KJARABARÁTTAN


Það er verst hvað samfélagið og þá ekki síst fjölmiðlaumhverfið er oft latt og værukært. Alltof fáir nenna að setja sig inn í flókin mál. Einmitt í þessu sýnist mér vera fólginn vandi flugumferðarstjóra sem standa nú í ströngum í kjarasamningaviðræðum í Karphúsinu. Þeim er úthúðað fyrir að stefna ferðaiðnaði í vandræði vegna verkfalla.  Ég hlýt að taka undir með þeim sem hafa áhyggjur af truflunum í flugi á háannatíma. En hverjum er um að kenna?Flugumferðastjórar tóku því ekki fagnandi þegar þeir voru „hlutafélagavæddir" í tíð síðustu ríkisstjórnar. Sýnt var þá að ýmis kjaramál þyrfti að leiða til lykta í tengslum við breytinguna. Það var aldrei gert að fullu. Þá voru - og eru - einnig til staðar ýmis ...

25. Maí 2008

BJÖRGUNARSAMNINGUR BSRB


...Sú hætta var fyrir hendi - það er að segja ef menn hefðu ekki tekið að af skarið og samið nú - að kjarasamningar hefðu farið í hægagang og jafnvel dregist fram á haustið. Fimm mánaða töf hefði þýtt að hver og einn hefði orðið af eitt hundrað þúsund krónum auk þess sem launahækkanir á grunntaxta skila sér í hækkun afleiddra stærða svo sem yfirvinnu og álags í vaktavinnu. Því hefði verið um að ræða mun hærri fjárhæð sem fólk hefði orðið af....  

7. Maí 2008

ŢJÓĐARSÁTT UM HVAĐ?


...En til þess að þetta verði ekki bara orðagjálfur þarf meira kjöt á bein. Á Íslandi hefur misrétti færst í aukana á undanförnum árum. Á sama tíma hefur ríkisstjórnin hafið stórfellda einkavæðingu innan heilbrigðisþjónustunnar. Ef ríkisstjórnin ætlar að efna til þjóðarsáttar - nokkuð sem ég styð heilshugar - þá þarf hún að snúa af þessari braut; hefja markvissar aðgerðir til að jafna kjörin í landinu og vinda ofan af einkavæðingunni. Þar nægir ekki að láta staðar numið heldur ...

3. Maí 2008

RÍKISSTJÓRNIR SKIPTA MÁLI


Formaður Samfylkingarinnar, utanríkisráðherrann, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,  talaði um nauðsyn „þjóðarsáttar" á baráttudegi verkalýðsins 1. maí. Gott ef formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, Geir H. Haarde, hefur ekki einnig orðað þessa hugsun. Hvað þau eiga við er mér hins vegar hulin ráðgáta....Oft hefur verið vísað til Þjóðarsáttarsamninganna, sem svo voru nefndir,  frá árinu 1990. Þar hafa iðulega verið uppi ýmsar söguskýringar, sem margar eiga það sammerkt að gera sem minnst úr hlut þáverandi ríkisstjórnar...Þótt ríkisstjórn Geirs H. Haarde og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur  sé rétt fram höndin virðist hún fullkomlega áhugalaus um að taka í þá hönd...  

1. Maí 2008

SKILYRĐI BSRB OG EFASEMDIR UM ENDURHĆFINGARSJÓĐ


1. maí ræða í Vestmannaeyjum.
...Á þessum málum verður nú að taka af festu og ábyrgð því eitt mega menn vita að okkar tilboð er ekki án skilyrða. .. lögð verði á hilluna áform um frekari einkavæðingu innan velferðarþjónustunnar og hætt verði að úthýsa láglaunahópum og koma fram við fólk eins og ómerkilegar stærðir  í bókhaldi ... Þá þurfum við að heyra hvenær stjórnvöld ætli að framfylgja fyrirheitum um að bæta kjör umönnunarstétta og annarra hópa sem búa við óviðunandi kjör og aðstæður?...Ætlar ríkisstjórnin Almannatryggingum rýrari hlut þegar farið verður að beina fjármagni inn í þennan nýja farveg Endurhæfingarsjóðs? Við þessu þurfa að fást svör....

9. Apríl 2008

SAMFÉLAGIĐ HALDI VÖKU SINNI


Í gær hófst þing Kennarasambands Íslands þar sem lagðar eru línur til næstu ára hjá sambandinu. Athyglisvert var að hlýða á ávörp sem flutt voru við setningu þingsins og ber þar fyrst að telja ræðu Eiríks Jónssonar, formanns KÍ, sem flutti kraftmikla ræðu þar sem hann ræddi þjóðfélagsmál almennt og málefni kennara sérstaklega. Varaði Eiríkur mjög eindregið við einkavæðingarstefnunni og vék hann sérstaklega að heilbrigðiskerfinu í því efni. Við svipaðan tón kvað í ræðum erlendra gesta. Ég flutti þinginu ávarp og færði þingfulltrúum kveðjur stjórnar BSRB...Minntist ég föður míns, Jónasar B. Jónssonar, en hann var heiðursfélagi í Kennarasambandi Íslands og hefði orðið hundrað ára 8. apríl ef hann hefði lifað...

2. Apríl 2008

BĆNDASAMTÖKIN GRUNUĐ UM AĐ STARFA FYRIR BĆNDUR!

Birtist í Fréttablaðinu 01.04.08.
FB logo
Samkeppnisstofnun hefur minnt á sig. Hinn 7. mars síðastliðinn birtist frétt í Morgunblaðinu undir fyrirsögninni, „Sátt um hækkanir nauðsynleg".  Hér var vísað til hækkunar á mjólkurverði sem þá var til umræðu. Og Bændasamtökin vildu samkvæmt Morgunblaðinu sátt um verðhækkanir. Samkeppnisstofnun þótti nú mælirinn fullur og hefur óskað eftir því að fá í hendur afrit af þingskjölum og fundargerðum nýafstaðins búnaðarþings svo og samþykktir og ályktanir, minnisblöð og tölvupóstar sem ritaðir hafa verið eftir 1. september á síðasta ári!
Í yfirlýsingu Samkeppniseftirlitsins í tilefni af frétt Morgunblaðsins þar sem hvatt er til sátta um verðbreytingar segir m.a. ...

2. Apríl 2008

FORĐUMST ALHĆFINGAR

Birtist í Morgunblaðinu 01.04.08.

...Ástæðan fyrir því að BSRB ákvað að standa að þessari hækkun er í fyrsta lagi sú að samtökin hafa sannfærst um að kúabændur myndu upp til hópa lenda í verulegum hremmingum ef ekki yrði komið til móts við óskir þeirra og væri það í hæsta máta óábyrgt að tefla afkomu þessa mikilvæga atvinnuvegar í tvísýnu. Í annan stað má ekki gleyma því að bændur geta ekki farið líkt að og ýmsir aðrir sem stýra verði á vöru sinni eða þjónustu og ákveðið verðlagið einhliða. Sannast sagna er ástæða til að ætla að sveiflur á heimsmarkaðsverði eða gengissveiflur hafi iðulega ekki skilað sér í lægra vöruverði þegar þær hafa verið neytendum í hag þótt

24. Mars 2008

VANGAVELTUR UM VERĐLAG OG SAMFÉLAGSLEGA ÁBYRGĐ


Gengissveiflur síðustu daga hafa veitt nokkra innsýn í verslun og viðskipti. Ekki að það þurfi að koma á óvart að gengi krónunnar hafi áhrif á vöruverð heldur er hitt umhugsunarvert með hvaða hætti það gerist. Ekki voru liðnir tveir dagar frá falli krónunnar en blöðin birtu flennifyrirsagnir um að holskefla hækkana væri skollin á þjóðinni... Það verður að segjast einsog er, að rökin hætta að vera sannfærandi þegar þau eru alltaf neytandanum í óhag. Er til of mikils mælst að þeir sem annast innkaupin erlendis frá og stunda verslun og viðskipti sýni að nú sé tími til að draga ögn úr...

1. Mars 2008

ER KOMINN TÍMI TIL AĐ SELJA ŢOTURNAR?


...Okkur ber að spyrja hvort notkun peninganna sé hugsanlega besti mælikvarðinn á geymsluna; að ef þeir eru vel notaðir þá séu þeir vel geymdir og ef illa notaðir þá séu þeir jafnframt illa geymdir... Samfélag sem er vel fjármagnað af eigin sparnaði á lágum vöxtum, með háu atvinnustigi er arðbær fjárfesting. Samfélag sem skapar slíkan arð er örugg fjárfesting. Er ef til vill kominn tími fyrir innrás í stað útrásar? Eru íslenskir bankar tilbúnir í innrás til Vestfjarða? Tilbúnir til að hjálpa til að skapa gott mannlíf á Norðurlandi? Eru íslenskir bankar tilbúnir til að minnka? Tilbúnir til samráðs við samfélagið? Tilbúnir til að hlusta? Tilbúnir til að selja þoturnar og keyra um á Toyota Yaris og Nissan Micra? Vera hluti af þjóðfélaginu? Tilbúnir til aðeins meiri auðmýktar, skilnings, ábyrgðar...?

1. Mars 2008

VEL HEPPNAĐ MÁLŢING UM LÍFEYRISMÁL


Í gær var haldið mjög vel heppnað málþing á vegum BSRB um lífeyrismál. Málþingið var tileinkað Gunnari Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Sjúkraliðafélags Íslands en hann fyllir 70 ár á þessu ári. Gunnar á sér langa sögu innan verkalýðshreyfingarinnar og hefur látið mjög að sér kveða í réttindabaráttu launafólks um áratugaskeið. Sérstaklega hefur hann komið við sögu lífeyrismála einsog ég kom að í erindi mínu á málþinginu sem einnig er að finna hér á síðunni. Á myndinni hér að ofan er Gunnar (lengst til hægri)  ásamt mér, Sigurði Einarssyni  stjórnarformanni Kaupþings banka, sem flutti erindi á ráðstefnunni og Guðna Ágústssyni, formanni Framsóknarflokksins sem heiðraði ráðstefnuna með nærveru sinni...

29. Febrúar 2008

MINNT Á MÁLŢING UM LÍFEYRIMÁL HJÁ BSRB


Í dag klukkan 13 verður efnt til rúmlega tveggja tíma málþings um lífeyrismál í höfuðstöðvum BSRB að Grettisgötu 89 í Reykjavík.  Þeir sem þar tala eru að ýmsu leyti eins konar tákngervingar fyrir aðskiljanlega þætti hinnar félagslegu og fjármálalegu  umgjarðar um íslenska  lífeyriskerfið. Þar mun mæla fulltri lífeyrissjóðanna allra, Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða; forstjóri Tryggingastofnunar ríkisins ... SigríðutrLilly Baldursdóttir;  stórvesír úr banka- og fjárfestinagaumhverfinu, Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings banka en hann fjallar um hlutdeild lífeyrissjóðanna í „útrásinni" og síðan höfum við hina bókmenntalegu og sögulegu sýn bókmenntafræðingsins.. Katrínar Jakobsdóttur. Ég verð einnig með innleg á þessari ráðstefnu sem...

19. Febrúar 2008

GÓĐA FÓLKIĐ Í RÍKISSTJÓRNINNI?


Ég skal játa það hreinskilnislega að mér varð hálf illt innra með mér þegar ég hlýddi í dag á Geir H. Haarde, formann Sjálfstæðisflokksins og Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formann Samfylkingarinnar, kætast yfir nýgerðum kjarasamningum fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar. Ég man satt að segja ekki eftir eins hástemmdum lýsingaroðrum í tengslum við kjarasamninga og við urðum vitni að á Alþingi í dag...En að ríkisstjórn stórfyrirtækjanna og hátekjufólksins geti leyft sér það sjálfshól og mærðartal sem þjóðin hefur orðið vitni að síðustu dægrin með skírskotun til árangurs þessara samninga er út úr öllu landakorti og hróplega úr takti við hinn daglega veruleika fólks með innan við 300 þúsund krónur í kaup á mánuði...

15. Febrúar 2008

VILHJÁLMUR TIL BJARGAR?

Birtist í 24 Stundum 14.02.08.
24 stundirSíðastliðin ár hafa fréttir af manneklu innan almannaþjónustunnar - á velferðarstofnunum og í löggæslunni - orðið æ tíðari. Öllum ber nú saman um að ástandið hafi aldrei verið verra. Ef ekkert er að gert blasir við neyðarástand á grunnstofnunum velferðarsamfélagsins.  Þetta bitnar á þeim sem síst skyldi, börnum, öldruðum, veikum og fötluðum, auk þess sem starfsfólki er boðið upp á að vinna undir ólíðandi álagi og bágum kjörum. Til verður til vítahringur: Fólk flýr bágborin kjör, úr verður mannekla, sem aftur eykur á álagið. Og starfsfólkið leggur á flótta.
Kjarakannanir hafa sýnt að gliðnun hefur orðið í kjaraþróun á milli almenna markaðarins og almannaþjónustunnar á undanförnum misserum, almannaþjónustunni  í óhag. Við þessu þarf að bregðast í komandi kjarasamningum...

15. Febrúar 2008

SA GEGN SAMNINGSRÉTTI

Birtist í Fréttablaðinu 14.02.08.
FB logoGreinilegt er að samtök atvinnurekenda leggja nú allt kapp á að fá ríkisstjórnina til að undirgangast loforð um að hvergi verði komið til móts við kjarakröfur launafólks innan almannaþjónustunnar umfram það sem Samtökum atvinnulífsins þóknast. Þessi krafa SA, sem m.a. hefur komið fram í Fréttablaðinu, gengur út á að ríkisstjórnin hundsi samningsrétt BSRB og annarra samtaka sem semja fyrir launafólk innan almannaþjónustunnar. Í annan stað er þetta krafa um að  ríkisstjórnin svíki gefin fyrirheit um að bæta verulega kjör stétta innan velferðarþjónustunnar. Að undanförnu hafa borist fréttir af ...

12. Febrúar 2008

BSRB MÓTMĆLIR FORRĆĐISHYGGJU OG FREKJU


Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, hefur lýst því yfir opinberlega að atvinnurekendur muni hvetja ríkisstjórnina til að hlíta í einu og öllu því sem SA komi til með að semja um við sína viðsemjendur. Hvað felst í þessu? Tvennt felst í þessu: Annars vegar krafa um að ríkisstjórnin hundsi samningsrétt sinna viðsemjenda. Hins vegar er þetta krafa um að ríkisstjórnin svíki gefin fyrirheit um að bæta verulega kjör stétta innan velferðaþjónustunnar...Hvað vakir fyrir Samtökum atvinnulífsins? Eru atvinnurekendur að hjálpa ríkistjórninni við að svíkja viðsemjendur sína og hundsa samningsrétt þeirra? ...

8. Febrúar 2008

HVAĐ GERA ŢAU GUĐLAUGUR ŢÓR OG JÓHANNA?

Birtist í Fréttablaðinu 07.02.08.
FB logoTónninn í láglaunahópum samfélagsins er að harðna. Skiljanlega og sem betur fer. Starfsmenn á velferðarstofnunum samfélagsins eru ýmsir við það að gefast upp, bæði vegna óforsvaranlegs álags og lágra launa...Ég er sannfærður um að ef ekki verður samið af raunsæi ...þá mun velferðarkerfið springa í skipulegum og óskipulegum launauppreisnum...

4. Febrúar 2008

HVAĐ SEGJA UMÖNNUNARRÁĐHERRAR UM LAUNAKJÖRIN OG KJARASAMNINGA FRAMUNDAN?


...Ég sakna þess að þeir ráðherrar, sem fara með heilbrigðismál og félagsmál, þau Guðlaugur Þór Þórðarson og Jóhanna Sigurðardóttir, séu spurð á sama hátt og menntamálaráðherra um starfsfólk skólanna, hvað þeim finnist um þau laun, sem  starfsfólki á dvalarheimilum aldraðra, sjúkrahúsum og stofnunum fyrir fatlaða eru greidd. Ætla þau að beita sér þessu fólki til framdráttar? Ég er sannfærður um að ef ekki verður samið af raunsæi við starfshópa innan þessara geira, sem búa við ófullnægjandi kjör þá mun kerfið springa í skipulegum og óskipulegum launa-uppreisnum fyrr eða síðar. Tónninn í láglaunahópum er að harðna. Skiljanlega og...

25. Janúar 2008

AF HEILUM HUG

Birtist í Morgunblaðinu 24.01.08.
MBL  - Logo...Ég þakka Niels fyrir að veita opinberlega svör við spurningum mínum þótt þau séu í stikkorðastíl og kalli fyrir bragðið á nánari skýringar sem fulltrúar SFR og BSRB munu ganga eftir í viðræðum við stjórnendur sjúkrahússins á komandi dögum. Ég vil ítreka það sem ég hef áður bent á í blaðagreinum að stjórnendur á Landspítala hafa gefið frá sér afar misvísandi yfirlýsingar varðandi framtíð læknaritara, nokkuð sem augljóslega þarf að fá botn í. Eitt atriði í svari Nielsar Chr. Nielsen í umræddri grein tel ég ástæðu til að staldra við en það er skírskotun hans í fund sem forsvarsmenn LSH héldu til kynningar á útboðsgögnum. Á þennan fund mættu tugir læknaritara. Niels segist svo frá...

16. Janúar 2008

EINKAVĆĐINGIN Á LANDSPÍTALANUM

Birtist í Morgunblaðinu 15.01.08.

...Læknaritarastarfið er eitt af lykilstörfum í heilbrigðiskerfinu. Persónuverndarsjónarmið og krafa um góða fagmennsku eru þar grundvallaratriði. Læknaritarar vilja að sjálfsögðu koma að endurskipulagningu á verksviði sínu ef um slíkt ætti að vera að ræða. Furðu sætir að stjórnendur á LSH skuli sýna starfsstéttinni þá framkomu sem raun ber vitni...

11. Janúar 2008

HELDUR FJÁRMÁLARÁĐHERRA AĐ VANDINN HVERFI MEĐ ŢVÍ LOKA AUGUNUM?


...Heldur Árni Mathiesen að málið sé þar með út af borðinu? Að sjálfsögðu ekki. Vandinn sem við blasti á vaktavinnustöðum árið 2005 hefur vaxið en ekki minnkað.Hann er sá að sífellt erfiðara reynist að ráða fólk til starfa þar sem fólk þarf að vinna á öllum tímum sólarhrings, svo sem innan löggæslu, í heilbrigðisstofnunum, á dvalarheimilum aldraðra og í stofnunum sem sinna fötluðum. Bókunin í kjarasamningunum 2005 var gerð til þess að reyna að finna lausn á raunverulegu vandamáli. Verkefnið hverfur ekki þótt fjármálaráðherra og hans lið gefist upp. Kröfurnar verða á samningaborðum aðildarfélaga BSRB og BHM þegar samningar losna með vorinu. Fjármálaráðherra er hins vegar að glutra niður tækifæri til að taka á vandanum á heildstæðan hátt og búa jafnframt í haginn fyrir komandi kjarasamninga. Þetta kalla ég að...

Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAĐ VORU ŢEIR AĐ SEGJA ÁRIĐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAĐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUĐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GĆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIĐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ŢURFUM BARNA-RÉTTLĆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLĆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIĐ ŢIG VEGNA VERU ŢINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Kjaramál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta