Beint á leiðarkerfi vefsins

Kjaramál

17. Desember 2007

AUÐMENN ÍSLANDS OG ÁHERSLUR VERKALÝÐSHREYFINGAR


Í Morgunblaðinu hafa að undanförnu birst greinar eftir forsvarsfólk úr röðum BSRB sem hafa varað við vaxandi misskiptingu í íslensku samfélagi. Stundum hefur verið talað um að tvær eða fleiri þjóðir í landinu. Um helgina birtust tvær skýrar birtingarmyndir þessa. Annars vegar mátti finna hve gjörsamlega jarðsambandslaust þotuliðið úr auðkýfingastétt Íslands er orðið. Hins vegar birtist athyglisverð úttekt í Hjálmi, málgagni verkalýðsfélagsins Hlífar um launaþróun fiskverkafólks og alþingismanna sem er vísbending um vaxandi kjaragliðnun í þjóðfélaginu. Nánar að þessu tvennu...

13. Desember 2007

BSRB: MISSKIPTINGIN ÓGNAR SAMHELDNI OG STÖÐUGLEIKA


...Í grein okkar Þuríðar staðhæfum við að misskiptingin í íslensku þjóðfélagi sé orðin slík að samheldni þjóðarinnar og stöðugleika í samfélaginu sé ógnað.
Gegn þessu þurfi að ráðast í komandi kjarasamningum: „Sá söngur mun eflaust hefjast að ekki megi spenna bogann of hátt, stöðugleikanum megi ekki ógna. Nú er það hins vegar svo að undir verðbólgubálinu hafa engir láglauna- og millitekjuhópar kynt. Þar hafa aðrir kyndarar verið að verki. Krafan frá hendi BSRB hefur reyndar um langt skeið verið sú að reynt verði að koma böndum á verðbólgu og þenslu. En samtökin segja jafnframt að...

11. Desember 2007

HVATNING FRÁ BSRB: VERJUM VELFERÐINA


…Í þessari grein birtast skýr skilaboð frá forystu BSRB til Alþingis sem nú ræðir um Fjárlög ríkisins fyrir komandi ár. Greinarhöfundar hvetja fjárveitingarvaldið til að verja velferðarkefið áföllum sem séu fyrirsjánaleg ef opinberum stofnunum verði áfram sniðinn þröngur stakkur. Þau vísa til manneklu sem orðin sé slík á ýmsum stofnunum að beinlínis stefni í neyðarástand ef fjárhagur þeirra verði ekki stórbættur svo og kjör starfsfólksins. Eftirfarandi úr grein þeirra Garðars og Kristínar hlýtur að verða okkur öllum til umhugsunar...

8. Desember 2007

MIKILVÆG SKILABOÐ FRÁ BSRB


…Í komandi viku er stefnt að því að afgreiða fjárlög ríkisins fyrir næsta  ár. Í fjárlögum er kveðið á um fjárframlög til velferðarstofnana samfélagsins en þeim er nú mjög þröngur stakkur sniðinn eins og fram hefur komið í fréttum. Ríkisstjórninni væri nú í tengslum við afgreiðslu fjárlaga, hollt að hugleiða varnaðarorð Árna Stefáns Jónssonar og Elínar Bjargar Jónsdóttur, sem auk þess að vera varaformenn BSRB, eru í forystu fyrir fjölmenn stéttarfélög. Þau vita sem er að fjársveltar stofnanir munu eiga í erfiðleikum með að bjóða upp á eftirsóknarverð kjör og þar af leiðandi í vanda með að fá fólk til starfa...

20. Nóvember 2007

TEKIÐ UNDIR VARNAÐARORÐ HELGA GUÐMUNDSSONAR

...Enda þótt viðræðurnar taki einvörðungu til fólks á samningssviði þessara aðila er líklegt að þegar fram líða stundir muni sú spurning gerast áleitin gagnvart öðrum samningsaðilum hvort þeir fari inn á svipaðar brautir. Þá er ljóst að þær kerfisbreytringar sem lagðar eru til mundu kalla á umfangsmiklar lagabreytingar þar sem um er að ræða tilfærslu á verkefnum frá almannatryggingum til sjúkra- áfallasjóða verkalýðshreyfingarinnar. Helgi Guðmundsson, til margra ára framámaður í verkalýðshreyfingunni og ritstjóri Þjóðviljans um árabil, fjallar um þessi málefni ...Niðurstaða Helga...er sú að ASÍ og SA beri að hægja á ferðinni...Að öllu samanlögðu hallast ég að þessu sjónarmiði ...Það er ekkert sem á að þurfa að koma í veg fyrir að átak verði gert í endurhæfingu öryrkja við núverandi kerfi ...Síðan er það einnig mitt sjónarmið að ekki eigi að ráðast í djúpstæðar kerfisbreytingar sem snerta kjör öryrkja í ósætti við heildarsamtök þeirra...

16. Nóvember 2007

RÓTTÆKRA AÐGERÐA ÞÖRF


...Kjarakannanir hafa sýnt að starfsfólk innan almannaþjónustunnar hefur dregist aftur úr á vinnumarkaði hvað kjör varðar. Upp úr aðalfundi BSRB í dag stóð sú krafa á hendur viðsemjendum aðildarfélaga BSRB að í næstu kjarasamningum yrði gerð róttæk tilraun til þess að bæta úr þessu ófremdarástandi. Það verður ekki gert nema innan almannaþjónustunnar verði greidd laun og starfsfólki búin kjör eins og best gerist annars staðar á vinnumarkaði. Ella fáist starfsfólk þar einfaldlega ekki til starfa. Sjá ...

1. Nóvember 2007

LANDSPÍTALINN MEÐ LAUNAFÓLKI EÐA STARFSMANNALEIGUM?

Ágæt umræða hefur farið fram í fjölmiðlum um starfsmannaleigur á Landspítalanum. DV reið á vaðið með ítarlegri frásögn af því hvernig Landspítalinn hefur, það sem af er þessu ári, varið næstum eitt hundrað milljónum til að greiða starfsfólki sem ráðið er í gegnum starfsmannaleigur. Þetta er væntanlega gert vegna starfsmannaeklu. BSRB hefur krafist þess að fá upplýsingar um þau kjör sem starfsfólkinu eru búin. Nú bregður svo við að Landspítalinn neitar að láta þessar upplýsingar af hendi; afhendir gögn þar sem strikað hefur verið yfir allar tölulegar upplýsingar!
Telur Landspítalinn sig hafa  ríkari skyldur gagnvart...?

30. Október 2007

VANHÆFIR STJÓRNENDUR

Birtist í Fréttablaðinu 29.10.07.
Stjórnendur hjá ríkisstofnunum tóku nýlega þátt í könnun á eigin vegum, að því er mér skilst, þar sem þeir komust að þeirri niðurstöðu að þeim bæri meiri völd til að ráðskast með réttindi og kjör starfsmanna. Þar með ættu þeir að geta rekið fólk skýringalaust ef svo bæri undir. Þar er átt við að losna þurfi við svokallað lögbundið áminningaferli við uppsagnir. Það felur það í sér að ef reka á starfsmann þurfi að veita honum viðvörun og gefa kost á því að leiðrétta hugsanlegan misskilning eða bæta sig í starfi ef viðkomandi hefur ekki staðið sig í stykkinu. Þetta ferli er til þess að koma í veg fyrir geðþóttastjórnun og jafnframt tryggja sjálfsögð mannréttindi á vinnustað. Sú ranghugmynd hefur lengi verið á sveimi...

30. September 2007

SÓKNARHUGUR Á ÞINGI PSI


Íslensku fulltrúunum á þingi PSI –Public Services Union – heimssamtökum starfsfólks í almannaþjónustu bar saman um hve  fróðlegt og áhugavekjandi var að sækja þingið sem stóð alla undangengna viku. Fróðleg erindi voru flutt á þinginu og í tengslum við það störfuðu einnig vinnuhópar þar sem einstök málefni voru brotin til mergjar.  Hvarvetna í heiminum sækja markaðsöflin að almannaþjónustunni og hafa þau á sínum snærum stjórnmálamenn sem tala ákaft máli þeirra og greiða götu fjármagnsins í hvívetna.  Á þinginu var hvatt til samstöðu bæði til varnar og sóknar.

19. September 2007

LAUNAFÓLK BYRJAÐ AÐ ÞJAPPA SÉR SAMAN


Fréttir berast nú af undirbúningi komandi kjarasamninga. Félög innan ASÍ eiga lausa samninga um áramótin en félög innan BSRB á komandi ári fyrir utan Póstmannafélag Íslands en samningur þeirra rennur út fyrir áramót. Kjarasamningar við ríkið eru almennt lausir 30. apríl n.k. Undantekningar þar á eru samningar Tollvarðafélagsins og Landssambands lögreglumanna sem gilda til októberloka 2008. Almennur gildistími kjarasamninga við sveitarfélögin er hins vegar til 30. nóvember 2008 en samningur Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar rennur út mánuði fyrr.

18. September 2007

KJARAKÖNNUN SFR: AUKIÐ MISRÉTTI

Á undanförnum dögum hefur SFR, Stéttarfélag í almannaþjónustu, stærsta aðildarfélag BSRB birt mjög svo merkilega kjarakönnun, sem viðsemjendur félagsins verða að gefa gaum að í komandi kjarasamningum. Könnunin sýnir þrennt. Í fyrsta lagi sýnir hún að launamunur er að aukast. Munurinn á efstu hópunum og hinum lægstu verður stöðugt meiri. Þetta þarf að leiðrétta og laga. Í öðru lagi staðfestir könnunin eina ferðina enn kynbundinn launamun. Honum þarf að útrýma. Í þriðja lagi sýnir könnunin að kjaramunur fer vaxandi á milli stétta innan hins opinbera annars vegar og á almennum markaði hins vegar. Að þessu þarf að hyggja í komandi kjarasamningum...

10. September 2007

HÆKKA ÞARF LAUNIN HJÁ REYKJAVÍKURBORG

...Þegar þetta er allt tekið saman er niðurstaðan þessi: Reykjavíkurborg viðurkennir að laun starfsmanna eru allt of lág. Hún er tilbúin að ráða á því bót að því tilskildu að greiðslur skattborgarans renni í gegnum bókhald einkafyrirtækis. Ég spyr, er borgarfulltrúi sem svona talar þjónn skattborgarans eða fyrirtækjanna? Hinu fagna ég að fulltrúi borgarstjórnar skuli afdráttarlaust lýsa því yfir að laun starfsmanna séu allt of lág að á því verði að ráða bót. Til þess gefst tækifæri í komandi kjarasamningum. Þá gefst Þorbjörgu Helgu Vigfúsdóttur og félögum í borgarstjórn Reykjavíkur tækifæri til að sýna vilja sinn í verki.

24. Ágúst 2007

FRUMKVÆÐI HELGU BJARGAR OG SVANDÍSAR


Fyrir fáeinum dögum birtist grein í Fréttablaðinu eftir Helgu Björgu Ragnarsdóttur og Svandísi Svavarsdóttur undir fyrirsögninni Sóknarfæri með breyttri sýn. Svandís er sem kunnugt er borgarfulltrúi VG og Helga Björg er fulltrúi VG í leikskólaráði Reykjavíkurborgar. Þær Helga Björg og Svandís hrundu af stað atburðarás sem varð þess valdandi í gær að borgaryfirvöld ákváðu að greiða starfsmönnum borgarinnar sérstakar álagsgreiðslur á þeim vinnustöðum þar sem starfsmannaekla er fyrir hendi með tilheyrandi erfiðleikum fyrir þá sem eru í starfi.
 Þúfan sem velti hlassinu var...

24. Ágúst 2007

EFLUM HEILDARSAMTÖK LAUNAFÓLKS EN SUNDRUM ÞEIM EKKI


Í ágústhefti BHM tíðinda er fjallað um umræður sem nú fara fram á meðal hjúkrunarfræðinga um hugsanlega úrsögn úr BHM, bandalagi háskólamenntaðs fólks. Um þetta segir Halldóra Friðjónsdóttir formaður BHM í viðtali við BHM tíðindi m.a.: “Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh) sem er stærsta aðildarfélag BHM samþykkti nú í vor að efna til atkvæðagreiðslu um úrsögn úr bandalaginu í september næstkomandi. Það væri mikill missir að hjúkrunarfræðingum og auðvitað munar bandalagið um fjórðung tekna sinna....Undir þessi orð vil ég taka og leyfi mér að vísa í viðtal sem birtist við mig í sama BHM blaði undir fyrirsögninni, Það hefði lítið hreyfst án heildarsamtaka. Í viðtalinu reyni ég að færa rök fyrir því að mikilvægi heildarsamtaka eigi enn eftir að aukast og vara við því að veikja þau – slíkt geti haft áhrif um ófyrirsjáanlega framtíð. Umhverfið sé nefnilega viðkvæmt og brothætt...

23. Ágúst 2007

ÁBENDINGAR FRÁ LANDSSAMBANDI LÖGREGLUMANNA

Að undanförnu hafa borist fréttir af erfiðleikum við að manna störf innan almannaþjónustunnar. Mest hefur farið fyrir fréttum af slíkum vandkvæðum innan heilbrigðis- og félagsþjónustu. Hið sama er uppi á teningnum í skólakerfinu. Í gær voru síðan fréttir um mikinn mönnunarvanda innan löggæslunnar. Í Fréttablaðinu var sagt frá því að fimm lögreglumenn hafi sagt upp störfum í síðustu viku og hefðu þar með 35 sagt upp frá síðustu áramótum. Fram kemur í viðtali við formann Landssambands lögreglumanna, Svein Ingiberg Magnússon, af þessu tilefni að ekki sé einvörðungu um yngri menn að ræða heldur einnig menn sem hafi lengi verið í starfi. Segir hann að með þessu...

14. Júní 2007

VILJI TIL NÝSKÖPUNAR INNAN ALMANNAÞJÓNUSTUNNAR


Þessa dagana er haldin í Reykjavík ráðstefna á vegum norrænu verkalýðssamtakanna NTR (einkum bæjarstarfsmenn) en BSRB á þar aðild. Á ráðstefnunni er fjallað um nýsköpun og endurnýjun innan almannaþjónustunnar en NTR hefur beitt sér fyrir kröftugri umræðu um þetta efni. Í ávarpi Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, borgarstjóra í Reykjavík, til ráðstefnugesta greindi hann frá könnun sem gerð hefur verið á vegum borgarinnar um viðhorf starfsmanna. Þar kom fram mjög mikill og víðtækur vilji starfsmanna að leggja sig fram um að gera vel í starfi.

13. Júní 2007

STJÓRNARRÁÐIÐ ER EKKI FYRIRTÆKI


...Þetta er mikill misskilningur. Stjórnarráðið er æðsta stjórnsýslustofnun landsins og um hana gilda sérstök lög. Þá eru í gildi lög um starfsmenn almannaþjónustunnar en í þeim er að finna ýmis ákvæði sem á sínum tíma var samið um í kjarasamningum. Auglýsingaskyldan er dæmi um atriði sem samtök launafólks hafa lagt ríka áherslu á að verja. Ástæðuna er m.a. að finna í greinargerð BSRB til Alþingis í tengslum við umrætt stjórnarfrumvarp. Eitt er víst. Þótt frumvarp ríkkisstjórnarinnar nái fram að ganga fer því fjarri að þetta ....

12. Júní 2007

FLUGUMFERÐARSTJÓRAR GANGA Í BSRB

Félag flugum-
ferðarstjóra hefur fengið aðild að BSRB. Loftur Jóhannnson, formaður félagsins segir á heimasíðu BSRB að flugum-
ferðarstjórar hafi í gegnum árin notið góðs af starfi BSRB, einkum á sviði lífeyrisréttinda og annarra réttinda opinberra starfsmanna og vilji af þeim sökum efla samtökin: “Það gildir að standa saman þegar barist er fyrir sameiginlegum hagsmunum.” Það er mikið ánægjuefni fyrir BSRB að fá flugumferðarstjóra inn í heildarsamtökin og verður tvímælalaust til að efla þau. Ávinningurinn er því beggja aðila. Félag flugumferðarstjóra hefur oft þurft að ...

1. Maí 2007

1. MAÍ RÆÐA Á BARÁTTUFUNDI VERKALÝÐSFÉLAGANNA Á AKUREYRI


...Okkur er sagt að nú drjúpi smjör af hverju strái á Íslandi og að við eigum að krjúpa og þakka í þögulli bæn fyrir þeim örfáu mönnum, sem við eigum allt að þakka. Eignauppbygging og harðfylgi kynslóðanna sem á undan komu, segja menn nú að skipti engu máli. Þær kynslóðir sköpuðu engar eignir.  Og það litla sem það var skal nú selt og gefið. En hvernig má það vera að sameign þjóðarinnar er svona mikils virði strax eftir söluna, en einskis virði þegar hún er í eign þjóðarinnar? Hvernig stendur á því að auðmennina langar svona óskaplega mikið í þetta verðlausa drasl? ...Og þegar við segjum að það eigi að verja trúnaðarmann stéttarfélags vestur á Snæfellsnesi sem sagt var upp störfum - þá gerum við það ekki bara fyrir viðkomandi einstakling – konu sem var rekin vegna skoðana sinna - heldur gerðum við það fyrir alla trúnaðarmenn og alla hina sem ekki eru trúnaðarmenn og njóta góðs af starfi þeirra sem standa í baráttu fyrir réttlæti og mannréttindum.
Og þegar við verjum erlendu verkamennina við Kárahnjúka þá gerum við það fyrir alla verkamenn – svo allir menn geti gengið uppréttir og hnarreistir...

27. Apríl 2007

IMPREGILO ER HÉR Á ÁBYRGÐ RÍKISSTJÓRNAR ÍSLANDS

...Já, það er nefnilega það! Impregilo rekur heilsugæslustöðina og þess vegna á fyrirtækið að geta gengið að upplýsingum um heilsufar starfsmanna!!! Nú hljótum við að reisa þá afdráttarlausu kröfu á hendur verkstjórnendum undir Þrælahálsi og öllum þeirra fulltrúum, að þeir virði íslenskar samskiptareglur og hætti að reyna að innleiða hér fyrirkomulag sem byggir á kúgun og ofbeldi. Í þessu samhengi skulum við ekki gleyma hver ber endanlega ábyrgð í þessum efnum. Það er ríkisstjórn Íslands. Það er hún sem fékk þennan illræmda auðhring til verkanna við Kárahnjúka....

10. Mars 2007

126 ÁR AÐ VINNA UPP Í MORGUNVERK BANKASTJÓRA

Birtist í Fréttablaðinu 09.03.07.
Ég veit ekki hvað sjómenn síðustu aldar hefðu sagt ef þeir hefðu heyrt um tekjuskiptinguna hjá íslenskum fjármálastofnunum nú um stundir. Til dæmis hjá Glitni. Þar átti einn forstjórinn viðskipti við sjálfan sig eina morgunstund fyrir fáeinum dögum. Þau viðskipti gáfu honum rúmar 380 milljónir í vasann. Morgunstund gefur gull í mund var einhvern tímann sagt. Ekki veit ég nákvæmlega hvað almennir starfsmenn Glitnis fá í sinn hlut fyrir sín störf en hitt veit ég að það tæki einstakling með 250 þúsund króna...

9. Mars 2007

AFNEMUM LAUNALEYND – BRJÓTUM VARNARMÚRA MISRÉTTISINS


Kynnt hefur verið á Alþingi frumvarp sem kveður á um skref til afnáms launaleyndar. Frumvarpið byggir á þverpólitískri vinnu með aðkomu allra stjórnmálaflokka á þingi. Fyrstu viðbrögð hafa verið jákvæð – með undantekningum þó. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Vilhjálmur Egilsson, segir að afnám launaleyndar myndi leiða til þess að starfsanda á vinnustöðum myndi hraka. Varaformaður Sjálfstæðisflokksins, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hefur tekið undir þetta sjónarmið...

14. Febrúar 2007

BSRB 65 ÁRA Í DAG

Bandalag starfsmanna ríkis og bæja var stofnað í Reykjavík 14. febrúar árið 1942 og fagnar því 65 ára afmæli sínu í dag. Tilkoma heildarsamtakanna hleypti nýjum krafti í kjarabaráttu opinberra starfsmanna. Þegar á fyrstu starfsárunum náðu BSRB og aðildarfélögin umtalsverðum árangri í réttinda- og kjaramálum. BSRB eru fjölmennustu hagsmunasamtök opinberra starfsmanna hér á landi. Stofnfélög bandalagsins árið 1942 voru 14 og höfðu á að skipa um 1550 félagsmönnum. Í ársbyrjun 2007 voru aðildarfélög bandalagsins hins vegar 27 og félagsmenn um 20 þúsund ...

10. Janúar 2007

HLUTAFÉLAGAVÆÐING GEGN STARFSFÓLKI

Birtist í Morgunblaðinu 09.01.07.
...Hvað Matís ohf. áhrærir hefur þetta margsinnis verið ámálgað við ráðherra og stjórn hins nýja hlutafélags. Í umsögn BSRB um frumvarpið sagði að samtökin legðu "mikla áherslu á að tryggt verði að Matvælarannsóknir virði rétt stéttarfélaga starfsmanna sem gera kjarasamninga f.h. félagsmanna sinna...Ekki er nóg með að þessi beiðni hafi verið algerlega hunsuð heldur hefur stjórnarformaður hins nýja hlutafélags lýst því yfir á fundi með starfsmönnum að stjórnin sé lítið gefin fyrir samskipti við stéttarfélög! Um hátíðirnar bárust svo fréttir af atgangi forsvarsmanna nýja félagsins gagnvart starfsfólki. Margir starfsmenn voru þá króaðir af og gert að ...Nú þegar aðför verður að nýju gerð á Alþingi að Ríkisútvarpinu munu sjónir manna ekki einungis beinast að ráðherrum og ríkisstjórn heldur hverjum einasta alþingismanni sem lætur hafa sig í það að skerða réttindi launafólks og gerast handbendi gamaldags atvinnurekendavalds.

5. Janúar 2007

ER ÞAÐ STEFNA RÍKISSTJÓRNARINNAR AÐ BOLA FÓLKI ÚT ÚR STÉTTARFÉLÖGUM?

Birtist í Blaðinu 04.01.07.
...Markaðshyggjufólkið sem hér er vísað til var upptendrað af hugsjónum og vildi breyta þjóðfélaginu; báknið burt hét það á þessum árum. Hugsjónirnar stóðu því þó aldrei sérstaklega fyrir þrifum. Þannig lét það hugsjónir sínar aldrei aftra sér frá því að taka að sér verkefni á vegum ríkisins eða setja sig yfir fyrirtæki í ríkiseign. Þannig hefur þetta verið í öllu einkavæðingarferlinu. Einörðustu andstæðingar ríkisreksturs hafa verið manna fúsastir til að taka að sér slíkan rekstur með tilheyrandi hlunnindum.
Og nú er sem sé komið að fyrsta formanni Félags frjálshyggjumanna, Friðriki Friðrikssyni, hinum nýja stjórnarformanni Matís að láta til sín taka...

Bréf til síðunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

11. Febrúar 2012

EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?

...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K

11. Febrúar 2012

UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON

Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal

10. Febrúar 2012

ALLAN MINN STUÐNING!

...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir

10. Febrúar 2012

Í VINSTRI GÆRU

Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson

10. Febrúar 2012

HRÓS SKILIÐ

...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson

10. Febrúar 2012

FAGLEGT? HLUTLAUST?

...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.

10. Febrúar 2012

FÓR SJÁLFUR Á VEFINN

 Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V. 

9. Febrúar 2012

MARKVISS FRAMSETNING?

...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.

9. Febrúar 2012

ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!

Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir

9. Febrúar 2012

GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG

...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur


BSRBVGAlþingi

Póstlisti

Hér að neðan geturðu skráð þig á póstlista Ögmundar. Skráðir aðilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóðin mín:

Kjaramál

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta