Kjaramál
13. Maí 2006
ORÐSENDING TIL EINARS ODDS FRÁ ÞJÓÐVILJARITSTJÓRA Á SKAGANUM
12. Maí 2006
HVAÐ VAKIR FYRIR MORGUNBLAÐINU?
...Margt ágætt var sagt í Morgunblaðinu í aðdragandanum að 1. maí. Það er eins og blaðið hafi misst sig í kjölfarið. Ágæta grein skrifaði hins vegar ungur frjálshyggjumaður í Fréttablaðið og tók hann – á sinn hátt - upp hanskann fyrir verkalýðshreyfinguna. Kvaðst hann hafa verið sæmilega nestaður úr foreldrahúsum á Siglufirði í uppvextinum um málefni verkalýðshreyfingarinnar. Síðan hafi hann komið suður og lært að meta hin borgaralegu gildi, þar með talið sjálfa brjóstvörnina, Morgunblaðið, sem nú hafi hins vegar brugðist bogalistin í umfjöllun um 1. maí. Þetta er ...
8. Maí 2006
VIÐKVÆMIR VERKALÝÐSFORINGJAR EÐA RANGTÚLKANIR MORGUNBLAÐSINS?

...Að sjálfsögðu á að ræða þessi mál. Og það á að sjálfsögðu að gera „af yfirvegun“ og helst „án alls fjandskapar“. Hvorugt gerir Morgunblaðið í þessum ívitnuðu skrifum. Í fyrsta lagi er á það að líta að ræður sem fluttar voru 1. maí að þessu sinni voru, eftir því sem ég hef heyrt og lesið, almennt alvöruþrungnar og innihaldsríkar og fráleitt allt tal um að þær hafi ekki átt erindi til samtímans. Eða var tal formanns Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, ræðumanns BSRB á Ingólfstorgi, um vaxtabætur og kjör fólks sem er að koma yfir sig húsnæði innihaldslaust píp, eða skyldi þar ekki fara maður sem talar máli þúsunda launamanna? Ég tel svo hafa verið. Var óviðurkvæmilegt af hans hálfu að minnast á einkavæðingarfárið og nefna sérstaklega – ýmsa grunnþætti samfélagsins, vatnið, rafmagnið, velferðarþjónustuna og hugmyndir forsætisráðherrans um að einkavæða eldvarnir á alþjóðaflugvellinum í Keflavík? Átti hann að...Var Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, varaforseti ASÍ, svo áfram sé haldið, ef til vill ekki að fjalla um brennandi mál þegar hún beindi sjónum að erlendu vinnuafli og hvernig íslenskum stjórnvöldum og vinnumarkaði bæri að bregðast við...
2. Maí 2006
HVER KANN EKKI AÐ TELJA?

...Svipað var upp á teningnum í fyrra því einnig þá var fréttaflutningurinn fjarri öllum sanni og áhersla margra fjölmiðla greinilega að gera lítið úr þeim fjölda sem tók þátt í útifundi verkalýðsfélaganna í Reykjavík. Þess má geta að áætlað er að komið hafi sjö hundruð manns í 1. maí kaffi BSRB í gær og hef ég frétt af mjög fjölmennum öðrum samsvarandi samkomum. Auðvitað er einhver hópur, einkum eldra fólks, sem ekki tekur þátt í göngu og útifundi þótt flestir geri það. Af þessu má augljóst vera þúsundir manna tóku þátt í hátíðahöldunum í gær. Ég var í Reykjanesbæ á fjölmennum fundi í Stapanum en af frásögnum manna að dæma um hátíðahöldin í Reykjavík og margmenninu í 1. maí kaffi verkalýðsfélaga og stjórnmálaflokka, var þátttaka miklu meiri en fjölmiðlar greina frá og segja myndir frá göngunni, útifundinum á Ingólfstorgi og í BSRB kaffinu sína sögu eins og sjá má...
1. Maí 2006
1. MAÍ RÆÐA Í STAPANUM Í REYKJANESBÆ

...Atvinnurekendur verða nú að endurskoða sína afstöðu og nálgun við samningsgerð. Þeir hafa litið á það sem sitt verkefni að standa gegn kröfum verkalýðshreyfingarinnar um kjarabætur. Því minni kjarabætur í samningum, þeim mun hróðugri eru þeir. En er þetta rétt afstaða? Hún er vissulega skiljanleg. Enhver mörk eru á því hvað fyrirtæki og stofnanir geta greitt starfsfólki í kaup. En á atvinnurekanda hvíla einnig aðrar kvaðir. Hann þarf að geta mannað sitt fley. Það er staðreynd að vandi hinna öldruðu á biðlistum eftir hjúkrunarrými er ekki einvörðungu sá að stjórnvöld hafi ekki svarað kalli um ný rými heldur er ekki hægt að manna það sem fyrir er. Aðstaðan nýtist ekki vegna manneklu. Talsvert hefur verið rætt um skort á hjúkrunarfræðingum á heilbrigðisstofnunum landsins. Minna hefur verið rætt um skort á sjúkraliðum og er hann þó enn meiri. ... Á þeim sem neitað hafa að semja um hærri kjör þessu fólki til handa hvílir ábyrgð. Undir henni hafa þeir ekki risið. Fyrst og fremst er það þó fjárveitingarvaldið sem hefur brugðist. Það hefur ekki sinnt skyldum atvinnurekandans, ekki gert öldrunarheimilum og hjúkrunarstofnunum kleift að manna sitt fley....
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












