Kjaramál
14. Nóvember 2005
SA TIL HNEISU
Birtist í Morgunblaðinu 13.11.05.
...Skjólstæðingar formanns SA, atvinnurekendur þessa lands, eru almennt séð ekki vanhaldnasti hluti þjóðfélagsins. Ingimundur Sigurpálsson hefur litlar áhyggjur yfir því að sá hópur, forstjórar og þeirra hirð, fái fullmikið í sinn hlut...
...Skjólstæðingar formanns SA, atvinnurekendur þessa lands, eru almennt séð ekki vanhaldnasti hluti þjóðfélagsins. Ingimundur Sigurpálsson hefur litlar áhyggjur yfir því að sá hópur, forstjórar og þeirra hirð, fái fullmikið í sinn hlut...
11. Nóvember 2005
INGIMUNDUR Í SLÆMUM FÉLAGSSKAP?
Ingimundur Sigurpálsson er dagfarsprúður maður og á meðan hann gegndi stöðu sveitarstjóra og sat í stjórn Lífeyrissóðs starfsmanna ríkisins urðu menn þess ekki varir að hann hefði horn í síðu opinberra starfsmanna. Á stjórnarfundum í lífeyrissjóðnum var hann málefnalegur, alla jafna tillögugóður og vildi lífeyriskerfinu hið allra besta. Um þetta get ég sjálfur borið vitni því við vorum samtíða í stjórninni. Efir að Ingimundur gerðist formaður Samtaka atvinnulífsins virðist einhver viðsnúningur hafa átt sér stað innra með honum. Nú sér hann, ef dæma skal af yfirlýsingum hans á nýafstaðinni ráðstefnu Sambands íslenskra sveitarfélaga, starfsmönnum almannaþjónustunnar allt til foráttu, þeir séu ofhaldnir í launum og kjörum og beindi hann því til sveitarstjórnarmanna að nú væri lag að... 9. Nóvember 2005
HVERT STEFNIR HJÁ SAMTÖKUM LAUNAFÓLKS INNAN ALMANNAÞJÓNUSTUNNAR?

...Fólk er hætt að fást til mikilvægra starfa innan almannaþjónustunnar, svo sem í heilbrigðiskerfinu. Ef ekki er tekið mið af þessu í fjárveitingum til stofnanasamninga sem gerðir verða á samningstímabilinu mun illa fara, ekki einvörðungu fyrir starfsfólkinu heldur fyrir þeirri þjónustu sem á að veita. Og því mega stjórnvöld ekki gleyma að hætta sem steðjar að hinu niðurnjörvaða opinbera vinnuumhverfi er mikil núna vegna þenslu í þjóðfélaginu og samkeppni...
5. Nóvember 2005
HAFA SKAL ÞAÐ SEM SANNARA REYNIST
...Á meðal þeirra sem tóku þátt í þessari umræðu var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir , formaður Samfylkingarinnar og nefndi hún í umræðunni að tekist hefði að draga úr kynbundnum launamun hjá Reykjavíkurborg um 50% á árabilinu 1995 til 2001. Þetta véfengdi ég með þeim orðum að ég væri ekki reiðubúinn að skrifa upp á að svo hefði verið og nefndi einnig að vegna þeirra launakerfisbreytinga sem gerðar hefðu verið á þessu tímabili hefði kjaramunurinn í borginni, á milli þeirra hæstu og hinna lægstu aukist. En þótt svo hafi verið mun hitt vera rétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu að kynbundinn launamunur minnkaði um 50% á þessu tímabili. Ég hefði því betur látið ógert að draga þær staðhæfingar hennar í efa og mun...
3. Nóvember 2005
HÚRRA FYRIR VINNUMÁLASTOFNUN

...Í kvöldfréttum Sjónvarps í gær og síðan í Kastljósi í kjölfarið var lagt út af innanhússpósti í Vinnumálastofnun þar sem fram kom það sjónarmið starfsmanns að afgreiða ætti umsókn um starfsleyfi fyrir tiltekinn erlendan verkamann með "ljóshraða" enda mætti búast við því að fyrir vikið væri verkamaðurinn reiðubúinn að fletta ofan af óheiðarlegum vinnubrögðum óprúttinnar starfsmannaleigu. Kristján Kristjánsson stýrði umræðunni í Kastljósi og fórst það vel úr hendi. Hins vegar var bæði í fréttum og kynningu á samtali framkvæmdastjóra Vinnumálastofnunar og lögmanns starfsmannaleigu sem legið hefur undir ámæli fyrir óprúttin vinnubrögð, gefið sterklega í skyn að Vinnumálastofnun hefði misnotað aðstöðu sína...
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
...Mikið var tekist á um grundvallaratriði. Meðal þeirra var ákvæðið um hámarksávöxtun. Það veit ekki Helgi Seljan. Það vissi ekki Jónas Kristjánsson. Gegn þessu ákvæði talaði Ögmundur Jónasson, einn manna. Það vissi Helgi Seljan ekki og Jónasi Kristjánssyni var alveg sama, þar sem hann hefur alltaf passað sín fjármál mjög vel að eigin sögn. Ögmundur Jónasson sat síðan hjá um þetta atriði...Þegar til atkvæðagreiðslu kom greiddi Jón Baldvin atkvæði með öllum breytingartillögum. Það gúgglaði Helgi Seljan. Það nennti Jónas Kristjánsson ekki að gúggla, en gúgglaði það sem ...
Hreinn K
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Við bíðum eftir því að fréttastofa RÚV leiðrétti rangfærslur í tengslum við ummæli þín í Kastljósi. Því það teljast auðvitað rangfærslur þegar staðreyndum er stillt upp til að sýnast segja annað en þær gera í raun. Vilji fréttastofan vera með gagnrýna umfjöllun um þátt þinn í misheppnuðum fjárfestingum lífeyrissjóðsins, er til of mikils mælst að hún sé vitræn? En að öðru ... þarf að koma á óvart að landsölufólkið sé komið á kreik enn á ný? Það er vitanlega þannig að einkahagsmunir ríma ekki alltaf við hagsmuni þjóðar til lengri tíma. En Grímsstaðamálið fær ...
Sigurjón Mýrdal
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
...Þú getur huggað þig við að: að ekki verður ófeigum í hel komið, né feigum forðað. Það gildir þegar allt kemur til alls. Þú hefur gert allt, sem er í þínu valdi einu saman, þegar kemur að rétlátri lýðræðishugsjón, og hefur fórnað miklu til að mæta pólitískum andstæðingum á miðri leið, af eðlilegri og siðsamlegri virðingu. Þeir pólitísku andstæðingar, sem launa þér þá tillitsömu virðingu og heiðarleika, með svona aðför að þér, munu ekki eiga auðvelt uppdráttar í þessum nýja heimi samstöðu, virðingar og heiðarlegra vinnubragða. þeir hrópa hæst um spillingu annarra, sem helst skyldi hlífa, og þurfa mest á fyrirgefningu að halda, vegna siðleysis-veikleika sinna. Svona er ...
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Það er auðvitað skiljanlegt að þú reynir að hagræða staðreyndum og skrifa söguna þér í hag. Það breytir ekki því að þú ert bara harðsvíraður fjrálshyggukall í vinstri gæru og kjósendur munu sjá það í næstu kosningum. En eftirlaunin góðu verða áfram þín.
Einar Guðjónsson
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
...Þú átt hrós skilið fyrir að standa upp í hárinu á honum Helga í Kastljósinu. Þú færðir mjög góð rök fyrir þínu máli. Haltu áfram að gera góða hluti í þágu fólksins í landinu.
Hjörtur Kristján Hjartarson
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
...RÚV nefndi Jón Baldvin sérstaklega til sögunnar sem eina manninn sem greiddi atkvæði gegn frumvarpinu, en hann greiddi atkvæði með þessari grein líka. Það gerðu það allir nema einn sem sat hjá og andmælti. Sem er einmitt það sem þú sagðir í Kastljósi - að þú hefðir andmælt einn. Í því samhengi er fréttaflutningur RÚV sérkennilegur í meira lagi. Er eðlilegt að gera heila frétt um að tilvitnun standist ekki en greina ekki frá því sem efnislega er vísað til í ummælunum? Það er varla hægt að kalla þetta hlutlausa og faglega umfjöllun.
Árni V.
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Í fréttum í gærkvöld áðan sá ég mikið gert úr því að þú hafir setið hjá við atkvæðagreiðslu um 7. gr. laga um lífeyrisréttindi starfsmanna ríkisins, en sú grein lögbindur að lífeyrissjóðir skuli ávallt leita hæstu vaxta. Í Kastljósinu varst þú sagður hluti af „já liðinu". Þar sem ég horfði á Kastljósið daginn áður og sá ummæli þín þar um að þú hafir staðið gegn þessu varð ég forvitinn og fór sjálfur á alþingisvefinn. Þar sá ég þau ummæli sem þú viðhafðir við atkvæðagreiðsluna. Ég læt þau fylgja með hér að aftan ásamt vefslóð. Ég sé ekki annað en þú ...
Árni V.
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
...Vissulega ber stjórn ábyrgð á fjárfestingarstefnu starfinu í heild sinni - en er ekki of langt gengið að persónugera einstakar fjárfestingar og segja þær þínar? Öll framsetning þessarar umræðu virðist vera sniðin til þess að koma á þig höggi. Í mínum bókum varst þú sá eini sem gagnrýndir þetta kerfi - og átt nú að taka fallið fyrir það. Þarna eru hræsnin og heimskan samferða og ríða ekki við einteyming...
G.
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Þakka þér Ögmundur fyrir gott framlag hvað varðar barnalög. Flestir þeir sem hafa kynnt sér mál vita að sameiginlegt forræði er eingöngu hægt að hafa ef foreldrar eru samstíga um málefni barna sinna. Sem betur fer er það oftar en hitt. Þeir foreldrar sem eru það ósamstíga að þeir sjái nauðsyn til að fara í forræðisdeilu, sem bæði er ömurleg og niðurdrepandi, hafa ekkert með sameiginlegt forræði að gera. Fyrst og fremst þarf að ....
Lísa B. Ingólfsdóttir
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
...Kaus VG í síðustu kosningum og get ekki tekið það til baka. Finnst VG ekki hafa staðið við það sem lofað var. Í dag ber ég ekki traust til margra á Þingi og eins og staðan er í dag ert þú í efsta sæti yfir fólk ekki þingflokk sem ég treysti. Maður sem lætur ekki beygja sig of mikið undir flokksræðið. Því miður hefur aldrei verið lýðræði á Íslandi frekar en í öðrum vestrænum löndum, aðeins flokksræði. Þó ég hafi ekkert út á ...
Þórólfur
Þórólfur
Póstlisti
Frjálsir pennar
23. Janúar 2012
Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝÐRÆÐISINS
Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...
23. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁÐ
...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú í sameignarformi undir lýðstjórn. Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi. Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist. Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf, þótt heljarhrun hafi kostað. Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar. Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.
12. Janúar 2012
Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAÐLAHEIÐAR-GÖNG
Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011. Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í krónuverði...












