Beint á leiđarkerfi vefsins

Kjaramál

16. Janúar 2012

SAMMÁLA BSRB, BHM OG KÍ

bhm - bsrb - kí
 
...En viti menn. Innan verkalýðshreyfingarinnar eru enn straumar - og virðast þeir jafnvel vera að eflast - sem ganga í þá átt að hreyfingin stofnanavæðist og gerist að uppistöðu til rekstrarstofnun; hverfi frá upprunalegu ætlunarverki sínu sem baráttu- og hagsmunagæsluaðili en leggi þeim mun meiri áherslu á hlutverk sitt sem rekstrarlegur þjónustuaðili. Skyldi það vera gott fyrir launafólk? Ekki tel ég svo vera. Skyldi það vera gott fyrir hina atvinnulausu? Nei, ekki tel ég svo vera...

5. Apríl 2011

AFRÍKUTRÚBOĐIĐ OG ATVINNUREKNDASAMTÖKIN


...Hugrenningatengsl urðu til þess að þetta kom upp í hugann þegar ég heyrði Samtök atvinnurekenda hóta því í dag að þeir myndu halda kauphækkunum frá launafólki ef ríkisstjórnin félli ekki frá áformum um að umbylta kvótakerfinu, ef hún ekki spýtti í við stóriðjuframkvæmdir, lækkaði skatta á fyrirtæki  og viti menn - ef þjóðin felldi Icesave-samninginn!!! Ég vona að  mér hafi misheyrst að verkalýðshreyfingin hafi tekið undir þessar hótanir.
Í mínum huga er þetta ekkert annað en tilræði við lýðræðið - og það sem meira er tilræði við launafólk. Að taka það í gíslingu með þessum hætti er nánast sama ofbeldið og ...

30. Mars 2011

„ŢETTA FÓLK"


Það er engu líkara en „þetta fólk" ætli að skipta um sjávarútvegskerfi á Íslandi!
Hvaða fólk skyldi framkvæmdastjóri SA hafa verið að tala um í fréttum Sjónvarps í kvöld? Hann var að tala um Alþingi og ríkisstjórn Íslands. Sem framkvæmdastjóri Verslunarráðsins til langs tíma og síðan sem framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur Vilhjálmur Egilsson verið einn valdamesti maður í landinu um langt skeið. Það var hann á meðan flokksfélagar hans í Sjálfstæðisflokknum réðu á Alþingi og í Stjórnarráði Íslands. Á þeim tíma voru stjórnvöld samtökum atvinnurekenda þóknanaleg enda þeim leiðitöm. Nú talar Vihjálmur Egilsson sem maður hrakinn úr vistarverum sínum. Hann ávarpar hústökufólkið í Stjórnarráðinu: Hvað vill „þetta fólk" upp á...

11. Desember 2009

KRÖFTUGIR TRÚNAĐARMENN - LIFANDI VERKALÝĐSHREYFING!


...Verkalýðsstofnun án jarðtengingar er til lítils nýt. Lifandi verkalýðshreyfing getur hins vegar allt - nánast. En til að þetta gangi eftir þarf að gera allt sem hægt er til að treysta innviði hreyfingarinnar. Þar horfi ég ekki síst til trúnaðarmanna á vinnustað sem gegna lykilhlutverki við að gæta réttinda launamannsins gagnvart atvinnurekanda eða umboðsmanna hans. Einstök verkalýðsfélög hafa lagt mikla rækt við þetta starf að ónefndum Félagsmálaskóla Alþýðu sem sinnt hefur þessari fræðslu fyrir ASÍ og BSRB... Meðal annars af þessum sökum er ég þeirrar skoðunar að okkur beri nú sem aldrei fyrr að styrkja fræðslu trúnaðarmanna og stuðning við þá...

10. Desember 2009

FORSETA ASÍ SVARAĐ


...Við höfum margoft rætt þetta efni á opinberum og óopinberum vettvangi. Ég hef varað við því að smíða tvöfalt velferðarkerfi og viljað þess í stað efla almannaþjónustuna. Þótt markaðshyggjustjórnir undangenginna ára hafi vanrækt almannaþjónustuna skulum við ekki horfa fram hjá því sem þó hefur verið vel gert á þessu sviði og ættum við að sameinast um að þar verði gert enn betur. Hvernig væri að við gerðum það Gylfi? Ég vil vera í liði með verkalýðshreyfingunni - hef þar alið allan minn starfsaldur. En ég leyfi mér líka að gera kröfur til hennar þegar mér finnst hún fara út af sporinu...

2. Desember 2009

ASÍ LEIĐRÉTT

...Ég fagna því að ASÍ skuli setja fram þessa gagnrýni opinberlega. Það geri ég vegna þess að það gefur tilefni til umræðu. Því miður gerist það allt of oft að samið er um stórmál án félagslegrar umræðu. Það átti við um Starfsendurhæfingarsjóðinn. Skyndilega var hann orðinn að veruleika, okkur í öðrum samtökum sagt að þetta væri nokkuð sem ekki ætti við um okkar félagsfólk nema fram kæmu óskir um slíkt. Síðan líður tíminn og þá kemur í ljós að veruleikinn er annar. Þegar sköpuð hafa verið réttindi á stórum hluta vinnumarkaðar segir reynslan að aðrir eiga ekki annarra kosta völ en bjóða upp á samvarandi rétttindi eða fyrirkomulag fyrir sína félagsmenn. Annað áþekkt dæmi er...

17. Nóvember 2009

SFR 70 ÁRA!


...Sjaldan hefur það verið eins augljóst að launafólk þarf á kröftugri og lifandi verkalýðshreyfingu að halda sjálfs sín vegna; stjórnvöld þurfa á henni að halda sér til halds og trausts og þá ekki síst nú sem aðhaldsafli og mótvægi við frek fjármagnsöflin. Án sterkrar verkalýðshreyfingar, gagnrýninnar og róttækrar, munum við aldrei rétta út kútnum. Það ætlum við hins vegar að gera. Þess vegna er sterk verkalýðshreyfing þjóðarhagur. Megi SFR rísa undir væntingum okkar og óskum...

10. Nóvember 2009

STÖĐUGLEIKI?


...Er ég þar einkum að tala um Samtök atvinnulífsins. Atvinnurekendasamtökin hafa með beinum og óbeinum hætti haft í hótunum við ríkisstjórnina. Hótunin er ófriður á vinnumarkaði og byggir á því að hafa af láglaunafólki kjarabætur ef ekki er orðið við kröfum atvinnurekenda um að hlífa vildarvinum þeirra, fjármagnseigendum og stóriðjunni. Þetta eru þeir aðilar á Íslandi sem helst eru aflögufærir. Nei, frekar skal almennt launafólk skattlagt, skorið niður á heilbrigðisstofnunum og kjör öryrkja og aldraðra skert en að hrófla við þessum mannskap. Hvers virði er "stöðugleiki" um slíkt ástand? Í mínum huga er Stöðugleikasáttmáli sem byggir á félagslegu ranglæti verri en einskis virði. ... Ríkisstjórnin verður að hætta undanslætti gagnvart ...

29. Október 2009

SÖGUNNI HALDIĐ TIL HAGA


...Oft hefur verið sótt að þessum réttindum og hefur stundum munað litlu að þau væru skert stórlega. Alvarlegasta atlagan að þessu kerfi var gerð á seinni hluta níunda áratugar síðustu aldar. Þá gáfust margir upp. Flestir. Ekki Gunnar Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri SFR, síðar framkvæmdastjóri Sjúkraliðafélags Íslands. Hann stóð vaktina. Einn með storminn í fangið. Innan BHMR voru líka til einstaklingar vel vakandi. En það var Gunnar sem gerðist ...

25. Október 2009

SAMFÉLAGSVITUND/SJÓĐSVITUND OG EIN LÍTIL SPURNING


..... Í dag og í gær heyrum við síðan fulltrúa vinnumarkaðar krefjast þess að fá atvinnuleysistryggingasjóð yfir til sín eins og var fyrr á tíð......Ef ég verð veikur vil ég fara út á heilsugæslustöð og eiga um veikindi mín við minn lækni og síðan eftir atvikum fara á Reykjalund, Grensásdeild eða annað sem heilsugæslan ráðleggur mér. Þetta vil ég miklu frekar en fá Vilhjálm Egilsson, framkvæmdastjóra SA eða Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ eða fulltrúa þeirra í heimsókn. Ég vil hins vegar áfram geta sótt til Gylfa, Elínar Bjargar formanns BSRB, Sigurðar Bessa, formanns Eflingar og Árna Stefáns, formanns SFR, þurfi ég á að halda stuðningi gagnvart "kerfinu"  og þá einnig til míns sjúkrasjóðs ef um einhverjar sérstakar .....


Bréf til síđunnarRSS Fréttaveita

Frá lesendum

3. Febrúar 2012

LÁTTU BLÓĐIĐ SVELLA!

...Ég hef lengi treyst þér Ögmundur og vil gjarnan geta kosið þig í næstu kosningum, en það get ég ekki nema þú segir skilið við hið kasúldna og svikula hræ, hið forræðisvædda VG, og gangir til samstarfs við þann flokk, sem Lilja Mósesdóttir vinnur nú af fullum krafti við að koma á fót. Ef þú og Lilja sameinið krafta ykkar, þá verð ég ekki í vafa um að ég mun kjósa Samstöðu - flokk lýðræðis og velferðar. Megi gott og heiðarlegt fólk, sem þú og Lilja og fleiri, standa saman til góðra verka og réttláts samfélags til lýðræðis og velferðar.
Og trúðu mér Ögmundur, að svo hugsa flestir ...
Jón Jón Jónsson

3. Febrúar 2012

HROSSAKAUP?

Ég vona að þú sjáir af þér og greiðir atkvæði gegn tillögu Bjarna Bendiktssonar. Ég hef kynnt mér rök þín og finnst þau vond. Þú ert einn þriggja stjórnmálamanna sem ég þekki og hef alltaf stutt en í þessu máli veður þú villu vegar og ég vona þú sjáir ljósið í þessu máli því annars get ég ekki stutt þig framar. Annars lyktar þessi afstaða þín af pólitískum hrossakaupum....
Stefán Þorgrímsson

3. Febrúar 2012

ÁKALL UM RÉTTLĆTI

...Það er ekkert launungar mál að ég tel þig vera að gera mistök í þessu máli, bæði hugsana villu og svo mjög alvarlega pólitíska skissu, nema auðvita þú haldir að þú getir farið í stjórn með Sjálfstæðisflokknum 2013. Það gæti alveg verið stjórn sem næði árangri, og hefur lengi verið ósk mín að þið í Vg farið með Sjálfstæðisflokknum í stjórn. En því miður held ég að með sama áframhaldi muni fólkið ekki kjósa á þann veg, traustið er nær ekkert og sigur Besta-flokksins mun endurtaka sig þar til í það minsta einhver þarf að bera ábyrgð. Ég vona að þú getir fundið í þessu bréfi ...
Hallur Hróarsson

2. Febrúar 2012

VALDIĐ VONBRIGĐUM!

...Ég er einn af fjölmörgum sem að eru virkilega óánæðgir með ákvörðun þína í Landsdómsmálinu. Ég er gamall sjálfstæðismaður sem að gekk í VG þar sem að ég hafði virkilega trú á þér og G. Lilju. Mér fannst fyrir kosningar sumar hugsjónir okkar fara saman. Ég verð að segja það að þetta kjörtímabil hefur hver vonbrigðin á fætur öðrum dunið á manni og nú síðast föstudaginn 20. janúar. Ég hef verið sammála ykkur (þér og Lilju) í nokkrum málum þó. En ég er með nokkrar spurningar til þín; hvernig í ósköðunum getið þið sitið áfram í þessari ríkisstjórn eftir þessa uppákomu? Hvernig er það hægt, ef satt er ...
Auðbergur Magnússon

1. Febrúar 2012

ÓBRAGĐ Í MUNNINN

Þegar það lág fyrir að Geir yrði einn ákærður fékk ég óbragð í munninn. Nú fæ ég óbragð í munninn vegna þess fólks sem ræðst á þig. Ég kaus VG í síðustu kosningum og kjósi ég VG aftur er það vegna þín. Það að sjaldan sem maður verður vitni að hugrekki.
Valdimar Hjálmarsson

1. Febrúar 2012

HVERT GAGNRÝNIN BEINIST

...Að þessu leyti snýr gagnrýnin vissulega að BSRB en þá að þeim sem sitja við kjötkatlana, ekki almenna félagsmenn. Gagnrýnin beinist klárlega að stjórnsýslunni en þá að þeim sem hafa komið ár sinni vel fyrir borð. Hafa áhrif og taka ákvarðanir um hvert er farið og hvaða erinda. Þá er vel komið fyrir kjarabaráttu á Íslandi ef þessi ummæli eru það eina sem fær blóðið til að renna hjá forystunni.
Ingveldur

27. Janúar 2012

GÓĐ KVEĐJA

...Ég hef ekki gleymt að við hrunið var kallað eftir nýrri tegund stjórnmála; stjórnmála án flokksaga, stjórnmála samræðu og sáttagjörða og aukinnar virðingar fyrir Alþingi. Nú keppast forvígismenn hins síðastnefnda við að níða skóinn af vinnustað sínum og samtalið á lítinn hljómgrunn meðal misþroskaðra þingmanna. Krafan um flokksaga hefur sjaldan verið sterkari og skoðanir þínar á smæstu málum virðast nægja til að setja þingheim á hliðina.
Nú þegar þú hefur með góðum rökum stutt afstöðu þína í Landsdómsmálinu; afstöðu sem leiðir rökrétt af orðum þínum og gjörðum í gegnum tíðina, virðist það vera markmið einhverra fyrrverandi stuðningsmanna þinna að níða af þér æruna og ævistarfið....
Stuðningsmaður

26. Janúar 2012

NÝJA ÍSLAND?

...Þegar kemur að Landsdómsmálinu þá er ég er fyllilega sammála þeim skilningi að atkvæðagreiðslan þar sem að samþykkt var að ákæra Geir, en engan ráðherra annan, hafi fært það mál úr þeim farvegi að vera rannsókn á aðkomu ríkisstjórnar og stjórnmálaumhverfisins að hruni fjármálakerfisins en í stað þess gert málið að flokkspólitískum slag... Viljum við beita Landsdómsákvæðinu til að slaka hefndarþorsta eða til að sýnast taka til eftir sóðaskapinn. Ef fleiri ráðherrar stæðu í sömu sporum og Geir Haarde þætti mér annað uppi á teningnum...
Dagur Pálmar Eiríksson Mörk

26. Janúar 2012

PÓLITÍSKUR FARSI

Eina ástæða þess að hætta á við þessa sýndarmálssókn er sú að um leið og þeir aðilar sem átti að ákæra með honum fengu frípassa breyttist þetta í pólitískan farsa. Að sjálfsögðu á þetta fólk að sæta ábyrgð, en ekki undir flaggi pólitískra nornaveiða.
Ellert Júlíusson

26. Janúar 2012

ANDA LÉTTAR

...fyrsta frétt af hrunauppgjörsmálum á RÚV var röng; ekki í fyrsta skipti að sú stofnun bregst. Héðan í frá treysti ég frekar athugasemdum frá þeirri merku konu, Örnu Mosdal en fréttastofu RÚV. Ég er sammála ummælum hennar á fésbók um málið: "Uppgjör við Hrunið getur aldrei falist í því að hengja Geir H. Haarde upp á snaga. Það vita allir sem vilja vita. En Íslendingar eru sérlega iðnir við að gleyma sér í tittlingaskít. Uppgjörið átti ma. að koma fram í breyttum vinnubrögðum á Alþingi, í stjórnsýslunni og í Stjórnarráðinu...
Jón Jón Jónsson


BSRBVGAlţingi

Póstlisti

Hér ađ neđan geturđu skráđ ţig á póstlista Ögmundar. Skráđir ađilar fá reglulega sent fréttabréf í tölvupósti.




Afskrá | Breyta skráningu

Frjálsir pennar

23. Janúar 2012

Björn Jónasson skrifar: ÖLD LÝĐRĆĐISINS

Úlfar Þormóðsson, baráttumaður fyrir betri heimi, veit einsog svo margir í hans flokki, að til er aðeins ein leið. Það er leið meirihlutans. Í eina tíð töldu menn nægilegt að vera með einn flokk og einn leiðtoga. Síðan gætu menn deilt á flokksþingum en þegar niðurstaða meirihlutans lægi fyrir, skyldu menn leggja niður deilur og tala einum rómi. Fylkja sér bak við leiðtogann. Þeir sem voru svo óþroskaðir að geta ekki stigið þennan tangó með réttum takti og hæfilegum aga, voru kallaðir niðurrifsöfl, leiguþý auðvaldsins og endurskoðunarsinnar. Úlfar lýsir hinu gleðiríka lífi í "flokknum" VG, (sem illu heilli er ekki eini flokkurinn) þar sem...

23. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: HEIMSKRA MANNA VEGARÁĐ

...Lög nr. 97/2010 eiga að leiða til annarlegs valds séreignarklúbba yfir geðvöldum hlutum vegakerfis, nú  í sameignarformi undir lýðstjórn.  Sú hugmynd er andstæð alþýðuaskapi á Íslandi.  Að auki eru hún óframkvæmanleg, á þeim þrönga grunni heimskrar markaðshyggju sem hún er reist.  Lögin eru óráð. Skólaspeki gróðaleiða er þó furðu langglíf,  þótt heljarhrun hafi kostað.  Við stöldrum við að sinni og beitum saman viti okkar.  Við höfnum vitleysu. Við höfnum hugmyndagrunni laga 97/2010.

12. Janúar 2012

Baldur Andrésson skrifar: ÖRSKÝRSLA UM VAĐLAHEIĐAR-GÖNG

Þekktir, valinkunnir sérfræðingar hafa metið að kostnaður við gerð Vaðlaheiðarganga verið vart undir 14 milljarðar kr. yrðu verlok árið 2015. Vaðlaheiðargöng hf. og  Vegagerð ríkisins kynntu 11 ma kr. verðmat á göngum í mars 2011.  Margt bendir til að það sé vanmat, að t.d. sé horft fram hjá verðmætri ríkisfyrgreiðslu, fjármagnskostnaði á verktíma og algerlega sleppt aukakostnaði sem og bætist við af ýmsum ástæðum. Áætluð hækkun vístölu á verktíma er vanmetin. Náttúrfarsáföll möguleg. Hafa skal í huga að sambærileg, nýgerð göng á Íslandi, tvöfölduðust bæði í  krónuverði...

Slóđin mín:

Kjaramál

Stjórnborđ

Forsíđa vefsins Stćkka letur Minnka letur Senda ţessa síđu Prenta ţessa síđu Veftré Hamur fyrir sjónskerta