Fara í efni

Greinasafn

Febrúar 2020

UM KÚRDA OG KVÓTA Á BYLGJUNNI

UM KÚRDA OG KVÓTA Á BYLGJUNNI

Tilefni þess að mér var boðið í morgunspjall í Bítið hjá þeim Bylgjumönnum Heimi og Gulla var að annars vegar er ég nýkominn frá Tyrklandi   þar sem ég var til stuðnings mannréttindabaráttu Kúrda og til að afla upplýsinga um stöðu mannréttinda þar í landi.  Hins vegar var tilefni spjalls okkar í morgun   fyrirhugaður fundur í Ólafsvík á laugardag um kvótann: Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim.  Í samtali við þá félaga  ...
SIGURÐUR VILL ENDURHEIMTA MANNORÐ ÍSLANDS

SIGURÐUR VILL ENDURHEIMTA MANNORÐ ÍSLANDS

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, kom fram í fréttum í dag og sagði samtökin vilja hverfa frá sölu “upprunavottorða”. Það eru falsvottorð sem íslensk raforkufyrirtæki selja stóriðjufyrirtækjum í Evrópu sem gefi þeim færi á að menga óáreitt því að orka þeirra sé hrein – því til sönnunar séu umrædd vottorð. Evrópusambandið hefur lag á að koma öllu lifandi og dauðu á markað ...
NÚ Í JÖKLI ÁÐUR Í SKESSUHORNI

NÚ Í JÖKLI ÁÐUR Í SKESSUHORNI

Í vikublaðinu  Jökli,   sem dreift er um allt Snæfellsnesið, segir frá fyrirhugðum fundi um kvótann í   Ólafsvík klukkan tvö á laugardag . Auglýsing um fundinn birtist í blaðinu, fréttatilkyninng og grein eftir mig þar sem ég spyr hvers vegna efnt sé til fundar í Ólafsvík um kvótann.   Undarleg spurning? Að sjálfsögðu er hún það en samt er ágætt að spyrja og svara ...

TIL ÓLAFSVÍKUR HÖLDUM

Til Ólafsvíkur leggjum leið líka fólk í hrönnum Á Skerið liggur gata greið og kvótamál þar könnum. Landsbyggðin vill lífsins njóta í líkingu við Reykjavík Við köllum til baka gjafa kvóta og kynnumst því að verða rík. Höf. Pétur Hraunfjörð.    
NÚ ER ÞAÐ ÓLAFSVÍK !

NÚ ER ÞAÐ ÓLAFSVÍK !

Laugardaginn 22. febrúar verður efnt til fundar í Ólafsvík undir yfirskriftinni  Gerum Ísland heilt á ný – Kvótann heim . Fundarstaður verður veitingastaðurinn Sker , Ólafsbraut 19.  Fundurinn verður semsé á laugardegi og hefst hann klukkan 14 en lýkur eigi síðar en kl. 16. ... Fundurinn í Ólafsvík er opinn eins og fyrri fundir í þessari fundaröð og eru allir velkomnir! Sjá nánar um viðburð ...
MÁ ÉG KYNNA …

MÁ ÉG KYNNA …

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 15/16.02.20. ...  En hvað er til ráða í þjóðfélagi sem lætur örfáa einstaklinga ráðskast með auðlindir sínar, skattaskjól eru nánast eins og annað heimili auðmanna landsins svo þeir fái komist hjá því að leggja sitt af mörkum við rekstur samfélagsins og standa fyrir bragðið utan veggja þess; þar sem Namibíuhneyksli raska ekki ró þeirra sem standa í stafni þjóðarskútunnar …? ...
HUGLEIÐINGAR Á FLUGVELLI AÐ LOKINNI TYRKLANDSFERÐ

HUGLEIÐINGAR Á FLUGVELLI AÐ LOKINNI TYRKLANDSFERÐ

Nú, þegar ég sit á flugvellinum í Istanbúl í morgunsárið sunnudaginn 16. febrúar og bíð eftir flugi áleiðis heim til Íslands, eru tilfinningar blendnar. Annars vegar er Tyrkland túristans, iðandi mannlíf, fögur nattúra, rík saga og menning – allt sem best má vera. Ég þykist vita að svo sé. Sá heimur sem ég hef stigið inn í á undanförnum dögum er hins vegar ekki þessi heimur heldur allt annar heimur. Það er heimur fangelsana, skoðanakúgunar, brottreksturs úr starfi, þvingaðra búferlaflutnina og ofbeldis – af hálfu hverra? Af hálfu “löggæslunnar”! Ekki svo að sklija að ...
ÁHRIFARÍKUR FUNDUR Í ISTANBÚL

ÁHRIFARÍKUR FUNDUR Í ISTANBÚL

Síðustu fundirnir sem Imrali sendinenfndin, sem ég tek nú þátt í til Tyrklands til stuðnings mannréttindabaráttu Kúrda, voru áhrifaríkir. Þar hittum við aftur fulltrúa mannréttindasamtakanna Human Rights Association of Turkey, en aðra fulltrúa þessara samtaka höfðum við hitt gyrr í vikunni í Ankara. Einnig hittum við fulltrúa “laugardagsmæðranna” sem svo nefna sig en þær koma saman hvern laugardag til að krefjast rannsóknar á mannshvörfum ...
Á FRÉTTAMANNAFUNDI Í ISTANBÚL EFTIR FUND MEÐ LÖGMÖNNUM ÖCALANS

Á FRÉTTAMANNAFUNDI Í ISTANBÚL EFTIR FUND MEÐ LÖGMÖNNUM ÖCALANS

Síðasti dagur okkar í Isatnabúl - Imrali sendinefndarinnar sem ég hef greint frá hér á síðunni - hefur verið annasamur og enn er honum ekki lokið þegar þetta er skrifað. Í morgun áttum við fund með lögfræðingum hins fangelsaða leiðtoga Kúrda, Abdullah Öcalan, í Asrim lögmannaskrifstofunni í Istnbúl en í kjölfar hans var efnt til fréttamannafundar sem sjónvapað var í beinni útsendingu í sjónvarpsstöðum Kúrda í Tyrklandi (sem á annað borð eru opnar hér í landi) og sunnan landamæranna Sýrlandsmegin og svo einnig í Evrópu ...
HRANT DINK

HRANT DINK

Í sumar var ég á ferð í Grikklandi. Hitti þar merkilega konu frá Armeníu. Ég sagði henni frá áhuga mínum á málefnum Kúrda. Hún sagðist hafa á þessu skilning, með þá væri illa farið. “En þekkr þú til þjóðarmorðsins á Armenum sem Tyrkir hófu árið 1915”, spurði hún. Og hún hélt áfram, “Kúrdar voru þar ekki alsaklausir, þvert á móti, voru þeir þar gerendur ásamt Tyrkjum.” Eitthvað þóttist ég hafa heyrt af þessu en ekki mikið. Svo ég hef verið óþreytandi að leita mér upplýsinga og hef  ...