Í brennidepli
2. Apríl 2004
Rauði kross Noregs axlar ábyrgð gagnvart spilafíkn
Mikil umræða hefur verið í Noregi að undanförnu um skaðsemi spilakassa. Um þetta hefur fréttaritari RÚV meðal annars fjallað. Í hinu víðlesna blaði Dagbladet frá 8. mars eru fréttir af þessum málum. Þar segir frá ungri stúlku Eiléen að nafni, sem tapaði fimm milljónum (íslenskum) á hálfu ári. Eiléen hóf spilaferil sinn með því að setja tuttugu krónur í spilakassa fyrir tveimur árum. „Ég tók lán hvar sem ég gat“, síðan leiddi eitt af öðru, „nú er ég svefnlaus, geng með svefnpillur í vasanum, búin að veðsetja allt sem ég á. Áður var ég jákvæð manneskja. Það er liðin tíð. Blekkingarnar hafa farið verst með mig.“
Í blaðinu kemur fram að í þeim reglum, sem norsk stjórnvöld hyggjast setja eru reistar skorður við því hve „ágengir“ kassarnir mega vera. Kassarnir tala nefnilega við spilarann og hvetja hann til að halda áfram.
Í fréttinni í Dagbladet segir að björgunarsveitir og Rauði krossinn hagnist vel á spilakössum en með nýju fyrirkomulagi munu tekjur þessara aðila rýrna. „Árið 2003 þénuðum við um fimm milljarða (ísl) á spilakössum. Fyrirsjáanlegt er að þessi upphæð verði 2,2 milljarðar á næsta ári. Það þýðir tap upp á 2,8 milljarða. Engu að síður styðjum við þessar breytingar. Spilafíkn er orðin að alvarlegum heilsufarsvanda, sem við tökum alvarlega,“ segir Bent Apeland, ráðgjafi hjá Rauða krossi Noregs.
Frá lesendum
11. Febrúar 2012
EN HVAÐ VORU ÞEIR AÐ SEGJA ÁRIÐ 2006?
Hreinn K
11. Febrúar 2012
UM STAÐREYNDIR SEM SEGJA ÓSATT OG KÍNVERKST SÍLIKON
Sigurjón Mýrdal
10. Febrúar 2012
ALLAN MINN STUÐNING!
Anna Sigríður Guðmundsdóttir
10. Febrúar 2012
Í VINSTRI GÆRU
Einar Guðjónsson
10. Febrúar 2012
HRÓS SKILIÐ
Hjörtur Kristján Hjartarson
10. Febrúar 2012
FAGLEGT? HLUTLAUST?
Árni V.
10. Febrúar 2012
FÓR SJÁLFUR Á VEFINN
Árni V.
9. Febrúar 2012
MARKVISS FRAMSETNING?
G.
9. Febrúar 2012
ÞURFUM BARNA-RÉTTLÆTI FREMUR EN FORELDRA-RÉTTLÆTI!
Lísa B. Ingólfsdóttir
9. Febrúar 2012
GET EKKI KOSIÐ ÞIG VEGNA VERU ÞINNAR Í VG
Þórólfur












