Í brennidepli
14. Apríl 2004
Í bréfi, sem heimasíðunni barst í dag kemur fram hörð gagnrýni á RÚV og er lagt til að í stað þess að einblína á eignatengsl í fjölmiðlaheiminum skuli menn skoða tengsl Ríkisútvarpsins við framkvæmdavaldið. Í umræddu bréfi frá Ólínu segir m.a.: " Og hvernig stendur á að menn skipa ekki nefnd til að kortleggja samband framkvæmdavaldsins og stofnunarinnar í Efstaleiti með sama hætti og menn þykjast nú hafa kortlagt eignarhald á íslenskum fjölmiðlum? Forsætisráðherra þarf ekki að skipa nýju nefndina ...
8. Apríl 2004
Í lesendadálkinum hér á síðunni í dag birtist bréf frá 25 ára gömlum manni um spilakassa og reynslu hans af þeim. Bréfið þykir mér lýsandi og áhrifaríkt þótt engin séu þar stóryrðin. Ungi maðurinn byrjaði smátt, með því að setja klínk í kassa 11 eða 12 ára. "Ég byrjaði að setja...
5. Apríl 2004
Eitt athyglisvert segir leiðarahöfundur að auki, sem er umhugsunarvert fyrir okkur hér á landi og það snýr að hrifningu OECD á ákvörðun bresku stjórnarinnar að koma á skólagjöldum við breska háskóla. Þar segir að skýringin á hrifningu OECD sé sú, að ...
4. Apríl 2004
Hér á þessari síðu hefur áður verið vitnað í William Blum, þekktan skríbent og höfund bókarinnar "Rogue State" eða "Fanta ríkið". Blum hefur talað mjög ákaft og á sannfærandi hátt gegn fjáraustri til hermála. Hér er lítill þanki frá honum, styttur þó: Hinn 6. mars, hvolfdi ferju við Baltimore...
3. Apríl 2004
Ekki trúi ég því að ég sé einn um að fara hjá mér þegar Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra vor, tjáir sig um hernaðarbandalagið NATO. Samkvæmt fréttum frá fundi utranrikisráðherra bandalagsins í Brussel í gær, eru vaxandi efasemdir um það í röðum aðildarríkjanna, að sú hernaðarstefna sem því hefur verið sett, sé rétt. Joscha Fischer, utanríkisráðherra Þýskalands, telur að ...
2. Apríl 2004
Í fréttinni í Dagbladet segir að björgunarsveitir og Rauði krossinn hagnist vel á spilakössum en með nýju fyrirkomulagi munu tekjur þessara aðila rýrna. „Árið 2003 þénuðum við um fimm milljarða (ísl) á spilakössum. Fyrirsjáanlegt er að þessi upphæð verði 2,2 milljarðar á næsta ári. Það þýðir tap upp á 2,8 milljarða. Engu að síður ...
1. Apríl 2004
Sjö ný ríki, öll í Mið- og Austur-Evrópu, gengu í NATO í vikunni. Bush Bandaríkjaforseti fagnaði þeim ákaflega og kvað inngöngu þeirra styrkja hernaðarbandalagið. Hann sagði öll ríkin hafa verið "fanga heimsveldis" og vísaði þá að sjálfsögðu til Sovétríkjanna. Þetta er að hárrétt en óneitanlega er skrýtið...
30. Mars 2004
Nýlega var hér á síðunni frásögn af ráðstefnu Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs um menntamál. Þar var m.a. fjallað mikið um leikskólastigið. Á meðal þeirra sem það gerðu var Ingólfur Á Jóhannesson, prófessor í menntunarfræðum við Háskólann á Akureyri. Hann setti fram kenningu um hvaða leiðir væru heppilegastar fyrir ungviðið að fara þegar það heldur úr leikskóla yfir í grunnskóla. Ingólfur segir íhaldsemi valda því að við...
30. Mars 2004
Athyglisverðar vefslóðir um Írak birtast í síðasta fréttabréfi frá sænsku rannsóknarstofnuninni, Transnational Foundation for Peace and Future Research (TFF). Það gagnlegt fyrir áhugafólk um málefnið að fá á einu bretti margar góðar vefsíður og er það ástæða þess að ég ákvað að koma þeim á framfæri við lesendur síðunnar. Að öðru leyti vil ég næla með ...
28. Mars 2004
Reynir Jónsson, yfirtannlænir hefur verið óþreytandi baráttumaður fyrir úrbótum á sviði tannlækniga, stundum gegn talsverðu andstreymi og á lof skilið fyrir staðfestu sína. Þingmenn VG, og vísa ég þar bæði í eigin mál og Þuríðar Backman, hafa með skiplegum hætti flutt þingmál um alllangt árabil, sem ganga í þá átt, sem Reynir Jónsson bendir til og er það fagnaðarefni að hann skuli nú telja að forsendur hafi skapast...
27. Mars 2004
Í bréfi frá Þrándi hér á síðunni í dag eru athyglisverðar vangavletur um siðferðið í Hvíta húsinu í Washington,um hefnigirni og fyrirgefningu syndann og síðast en ekki síst um vináttuna. Þrándi þykir íslenskir ráðamenn rugla saman vináttu annars vegar og hlýðni hins vegar. Vináttan eins og þeir túlka hana, segir hann ...
26. Mars 2004
Ekki svo að skilja að forseti Alþingis hafi á því einhvern sérstakan áhuga að skikka mig í slíkt próf. Aldrei hefur verið ýjað að slíku af hálfu forseta þingsins. En mér dettur þessi samlíking í hug vegna þess að hann fer með fyrirsvar í stjórn þingsins. Stjórnendur Álversins í Straumsvík láta alla sína starfsmenn undirrita plagg þar sem þeir fallast á að gangast undir læknisskoðun hvenær sem stjórnendum fyrirtækisins þóknast. Markmiðið er sagt vera að uppræta notkun vímuefna á vinnustað.
21. Mars 2004
Í rauninni þarf það ekki að vera neitt undarlegt að fólk og fjölmiðlar skemmti sér yfir gátunni um hvað Davíð Oddsson ætlar að taka sér fyrir hendur við stólaskiptin í haust. Fréttablaðið slær því upp ...
18. Mars 2004
Fáir atburðir hafa haft eins sterk áhrif á mig og morðið á Rachel Corey. Í gær var liðið eitt ár frá þeim atburði. Rachel reyndi að koma í veg fyrir að ísraelsk jarðýta eyðilegði hús Palestínumanna í bænum Rafah á Gaza svæðinu. Valtað var yfrir hana og lést hún af þeim sökum. Morðinginn gengur laus – sennilega með medalíu – enda að vinna sína vinnu. Rachel Corey var 23 ára gömul....
17. Mars 2004
Formaður Rafiðnaðarsambandsins, Guðmundur Gunnarsson, skrifar lesendabréf í DV í gær og gagnrýnir þá umræðu sem á sér stað í viðræðuþáttum ljósvakamiðlanna, m.a. um nýgerða kjarasamninga. Guðmundi þykir umræðan grunn. Sérstaklega lýsir hann furðu á vanþekkingu á stöðu lífeyrismála. “Hvar í veröldinni myndi það viðgangast ...
16. Mars 2004
Í dag birtist hér á síðunni afar fróðlegur pistill eftir Magnús Þorkel Bernharðsson, fræðimann í Bandaríkjunum, um hina nýju stjórnarskrá í Írak og hryðjuverkin á Spáni. Magnús Þorkell segir nýja stjórnarskrá Íraks merkilega fyrir margra hluta sakir en það geti hins vegar torveldað framhaldið að...
15. Mars 2004
Ég held að enginn geti láð þingmönnum Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs að spyrja forsætisráðherrann í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag hvort yfirlýsingar hans sjálfs í þessa veru að undanförnu og annarra ráðherra ríkisstjórnarinnar, nú síðast Árna Magnússonar, boðuðu stefnubreytingu af hálfu ríkisstjórnarinnar....
14. Mars 2004
Margan manninn rak í rogastans við ummæli Árna Magnússonar, félagsmálaráðherra á Iðnþingi á föstudag þegar hann hélt uppi málflutningi sem var nánast orðréttur úr ræðum þingmanna Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs nú um árabil. Þinngmenn VG vöruðu við því að einkavæðing ríkisbanaknna myndi einmitt hafa í för með sér þær breytingar ...
14. Mars 2004
Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, var beðinn um að fílósófera um utanríkismál í útvarpsþætti í dag. Hvaða erindi ættu Íslendingar að hans mati í Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna? Þetta lék þáttastjórnendum forvitni á að vita. Við erum friðelskandi, sagði Halldór, og við erum...
13. Mars 2004
Að undanförnu hafa menn nokkuð velt fyrir þeirri ákvörðun forsætisráðherra að láta rita sögu forsætisráherra landsins fram á þennan dag og gefa bókina út 15. september þann dag sem Davíð Oddsson stendur upp fyrir Halldóri Ásgrímssyni. Í frjálsum pennum hér á síðunni fjallar Kristján Hreinsson skáld um valdabrölt í Stjórnarráði Íslands á ómyrkan hátt...
11. Mars 2004
Í mjög athyglisverði grein hér á síðunni eftir Þorleif Óskarsson er fjallað um áróður Verslunarráðs Íslands fyrir kostnaðarvitund í heilbrigðiskerfinu. Greinin ber heitið, Hann komst aldrei til kostnaðarvitundar. Þar segir...
10. Mars 2004
Einmitt þá opnast gáttir himinsins með ofsaroki og rigningu. Ég orðaði það við Kristján Hreinsson, skáld að mjög þætti mér þetta miður. Kristján sagði að ég skyldi taka gleði mína að nýju, "Það má kannski kvarta undan gæðum veðursins en magnið svíkur ekki," sagði Kristján. Hann bætti síðan við að bragði...
7. Mars 2004
Það vakti nokkra athygli þegar Egill Helgason fjölmiðlamaður með meiru, kvaddi þá félaga í frjálshyggjunni, Hannes Hólmstein og Jón Steinar Gunnlaugsson í þætti sínum "Silfri Egils" fyrir stuttu með þeim hjartnæmu orðum að hann kynni þeim "ástarþakkir fyrir komuna" og vonaðist til að sjá þá hið allra fyrsta að nýju. Það eru fleiri ástfangnir en Egill Helgason. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fellur í stafi og einnig Morgunblaðið í dag, sunnudag sem...
7. Mars 2004
Þessi deila sýndi mér hve samstæður og kröftugur hópur átti í hlut. Samfélaginu er það mikið hagsmunamál að missa ekki af þessu fólki til annarra starfa eins og leit út um skeið að gæti gerst. Ef ég ætti að nefna einhver störf sem verðskulduðu góð kjör þá eru það nákvæmlega ...
4. Mars 2004
Í kjaradeilu heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu gegn starfsfólki heimahjúkrunar, er nú beðið í ofvæni eftir því að ríkisstjórinin grípi í taumana og komi í veg fyrir frekari erfiðleika hjá því fólki sem þarf að reiða sig á heimajúkrun. Yfirstjórn heimahjúkrunar virðist vera í eins konar afneitun og ...
2. Mars 2004
Einu sinni keypti ég mig inn á foss í Wales. Þetta var ný upplifun fyrir Íslending. Ekki var aðgangseyririnn hár og ekki sá ég eftir peningunum. En ég man að þetta hafði áhrif á upplifun mína á því sem bar fyrir sjónir. Mér fannst fossinn hálfómerkilegur, eiginlega fannst mér þetta vera platfoss. Ef ég hefði gengið fram á þennan foss...
1. Mars 2004
Dómsmálaráðherra núverandi hefur lengi verið mikill áhugamaður um að fá íslenskan her. Væntanlega vel borðalagðan, á gljáfægðum stígvélum og að sjálfsögðu með ráðherera málaflokksins í reglulegri liðskönnun með hönör. Áhugi Björns Bjarnasonar á hervæðingu Íslands vaknaði löngu áður en hryðjuverkaótti komst í hámæli í heiminum. Sá ótti hefur orðið...
26. Febrúar 2004
Í athyglisverðum pistli, sem birtist í dag hér á vefsíðunni eftir Magnús Þorkel Bernharðsson, koma fram ýmsar skarpar athugasemdir. Mig langar til að vekja athygli á tveimur...
25. Febrúar 2004
Á Pressukvöldi Sjónvarps í kvöld sat Geir H. Haarde, fjármálaráðherra, fyrir svörum. Margt jákvætt kvað Geir vera nú í stöðunni. Til dæmis væri lítil þensla. Því væri að þakka að fleiri útlendingar væru að störfum í Kárarahnjúkum en búist hafði verið við. Landsmenn hlýtur að hafa sett hljóða við þessa yfirlýsingu. Því hafði nefnilega....
24. Febrúar 2004
Verslunarráð Íslands hefur verið að tjá sig að undanförnu um mikilvægi þess að örva kostnaðarvitund í heilbrigðiskerfinu. Með þessu móti sé hægt að hafa áhrif á eftirspurnina og liggur þá í hlutarins eðli að kostnaðarvitundinni þurfi að fylgja notendagjöld. Vitundinn þarf með öðrum orðum að ná niður í pyngju sjúkilngsins. Eða með orðalagi ...
23. Febrúar 2004
Út er komið nýtt fréttabréf BSRB en samtökin tóku upp þann sið fyrir allnokkru síðan að senda reglulega frá sér slík bréf. Kennir margra grasa og liggur mikil vinna að baki mörgu sem þarna birtist. Í þessu fréttabréfi er fjallað um þau mál sem efst eru á baugi, svo sem deiluna um heimahjúkrun, sameiningu nokkurra stéttarfélaga innan BSRB í nýtt félag, Kjöl; afstöðu BSRB og ASÍ í raforkumálum, rýnt er í hvað búi að baki OECD tölunum í heilbrigðismálum, sagt frá margvíslegri ...
22. Febrúar 2004
Þjóðin er að verða hálf dofin yfir stöðugum fréttum af milljarðagróða nokkurra einstaklinga og hópa og væri ráð að öflugir fjölmiðlamenn kortelgðu alla alla þessa fjármuni og skýrðu það út hver sé að hagnast og hver sé að tapa. Á þessum málum eru að sjálfsögðu margar hliðar og í lesendadálkinum á síðunni í dag veltir Þrándur fyrir sér ýmsum athyglisverðum þáttum, m.a. muninum á því hvernig "skatturinn" fer með launamanninn annars vegar ...
22. Febrúar 2004
Fyrir nokkrum dögum efndi einn lesandi síðunnar til eins konar getraunar. Hann birti skrif einstaklings, sem hann kvað vera "þekktan Íslending" og bað menn geta sér til um hver það væri. Í skrifunum var gerð samlíking á milli mjólkurkaupa annars vegar og sölu ríkisbankanna fins vegar. Þótti "þekktum Íslendingi" enginn munur á þessu tvennu...
20. Febrúar 2004
Í yfirgripsmikilli grein sem Þorleifur Gunnlaugsson skrifar í dálkinn frjálsir pennar hér á síðunni í dag kemur fram hörð gagnrýni á þingsályktunartillögu sem ég flyt ásamt Þuríði Backman um úrræði fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur. Tillagan er ...
19. Febrúar 2004
Í fréttum í kvöld var einnig rætt við Leo Michel, sérfræðing í varnarmálum hjá Institute of National Strategic Studies í Washington D.C. Hann flutti okkur þær fréttir að Kalda stríðinu væri lokið og var á honum að skilja að loftárásir á Ísland væru ekki yfrirvofandi. Því miður hafði ekki verið gengið eftir því við Halldór Ásgrímsson að...
19. Febrúar 2004
Jón frá Bisnesi, skrifar lesendadálki síðunnar áhugavert bréf í dag þar sem hann birtir orðréttan texta, sem hann hefur eftir "þekktum Íslendingi"og hvetur lesendur til eða geta sér til um hver skrifi. Í skrifunum er vikið lítillega að ...
18. Febrúar 2004
All undarleg umræða fór fram á Alþingi í dag. Mörður Árnason alþingismaður spurði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra hvað ráðuneytið ætlaði að aðhafast vegna brota á lögum um áfengisauglýsingar. Mörður kvað ýmsa á því máli að breyta bæri lögum um bann við áfengisauglýsingum. Ástæða væri til að taka þá umræðu og leiða hana til lykta. Staðreyndin væri hins vegar sú...
17. Febrúar 2004
Pétur Guðjónsson hefur látið mikið að sér kveða á vettvangi Húmanistahreyfingarinnar um langt árabil, ekki síst í Rómönsku Ameríku en þeir sem komnir eru um miðjan aldur minnast án efa frægrar uppákomu þegar Pétur, þá ungur námsmaður, lenti í orðaskiptum við Kastró Kúbuforseta, sem í kjölfarið bauð Pétri...
16. Febrúar 2004
Í dag fóru fram utandagskrárumræður á Alþingi um skort á skattskilum Impregilo og undirverktaka við Kárahnjúka. Steingímur J. Sigfússon hóf umræðuna fyrir hönd Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs en Geir H. Haarde, fjármálaráðherra var til svara. Reyndar var hann ekki einn um að vilja svara. Varaþingmaður Framsóknarflokksins Guðjón Ólafur Jónsson vakti athygli...
15. Febrúar 2004
Á öldum ljósvakans er iðulega boðið upp á prýðisgott efni. Með fullri virðingu fyrir öðrum fjölmiðlum hefur Ríkisútvarpið þar mikla yfirburði. Ekki stendur RÚV sig þó alltaf í stykkinu. Oft fer því meira að segja mjög fjarri. Ég velti því stundum fyrir mér hvort þeir Sjónvarpsmenn geri sér alltaf grein fyrir...
14. Febrúar 2004
Björfgólfur Guðmundsson, formaður bankaráðs Landsbankans, birtist á skjánum í fréttatíma Ríkissjónvarpsins í kvöld talsvert ábyrgðarfullur á svip. Umræðuefnið var lækkun vaxta. Björgólfur kvaðst eygja leið til að ná þessu markmiði. Ég held að flestir hafi búist við því að lausnarorðið væri...
13. Febrúar 2004
Nú eru menn farnir að óskapast yfir því að raforkuverð komi til með að hækka í Reykjavík vegna fyrirhugaðra skipulagsbreytinga í raforkugeiranum. Þessu er nú slegið upp á baksíðu Morgunblaðsins. Þetta gæti gerst vegna jöfnunar raforkuverðs á landinu öllu. Minna hefur farið fyrir hinu, hvað hugsanleg markaðsvæðing raforkugeirans komi til með að kosta...
12. Febrúar 2004
Svavar Gestsson fyrrverandi alþingismaður var einhver duglegasti og ódeigasti baráttumaður í hreyfingu sósíalista um árabil. Svavar hamaðist í pólitík lengur en flestir hafa gert og sér víða stað verka hans. Löngum þótti mér mikið til Svavars koma sem stjórnmálamanns og saknaði þess þegar hann hvarf af vettvangi stjórnmálanna, mér liggur við að segja fyrir aldur fram. Í Féttablaðinu í gær er því slegið upp að...
11. Febrúar 2004
Í Morgunblaðinu í dag beinir Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður spjótum sínum að Páli Vilhjálmssyni blaðamanni. Hann hafði staðhæft að sparisjóðafrumvarpið svokallaða hefði "komið í veg fyrir að stofnfjáreigendur gætu höndlað með eigin fé sparisjóðanna sem sitt eigið...".
8. Febrúar 2004
Heldur er nú dapurlegt að fylgjast með þeim félögum, Bush Bandaríkjaforseta og Blair forsætisráðherra Bretlands, svara fyrir óvandaðan málflutnig til að réttlæta árásina á Írak síðstliðið vor. Nú er komið á daginn að fullyrðingar þeirra um gereyðingavopnabirgðir Íraka reyndust meira og minna út í loftið. Hans Blix fyrrum stjórnandi vopnaleitar Sameinuðu þjóðanna í Írak sagði...
7. Febrúar 2004
Fjórir þingmenn tjá skoðun sína á "sparisjóðamálinu" í Fréttablaðinu í dag: Pétur H. Blöndal, Sigurður Kári Kristjánsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Helgi Hjörvar. Andstaða Péturs H. Blöndals er flestum kunn og að sjálfsögðu einnig framganga...
4. Febrúar 2004
Hvernig fara menn að því í Stjórnarráði Íslands að réttlæta það fyrir sjálfum sér að grípa til ráðstafana sem valda eyðileggingu og koma síðan fram í fjölmiðlum og skýra frá því að skipuð hafi verið nefnd, sem eigi að gera tillögur um hvernig bæta megi skaðann? Ég hef grun um að sökudólgurinn í þessu máli sé ekki núverandi heilbrigðisráðherra. Mín tilfinning er sú...
30. Janúar 2004
Sem betur fer er til á Íslandi fólk sem á í skrokknum á sér blóð sem rennur; fólk sem hefur ábyrgðartilfinningu og fylgir henni eftir. Slíkur maður er Árni Guðmundsson, æskulýðs- og tómstundafulltrúi í Hafnarfirði. Hann hefur kært vesaldóminn í Ölgerð Egils Skallagrímssonar fyrir að ríða á vaðið til að reyna að hnekkja félagslegri viðleitni þjóðarinnar til að berjast gegn áfengisvánni með því að sporna gegn áfengisauglýsingum...
30. Janúar 2004
Óskandi væri að Ríkisútvarpið endurskoðaði afstöðu sína til kostunar dagskrárliða. Auglýsingar eiga að heita auglýsingar og birtast undir þeim formerkjum í auglýsingatímum sjónvarps og útvarps. Kostun heitir það hins vegar þegar auglýsandanum er leyft að líma sig við einstaka dagskrárliði með yfirlýsingum um að viðkomandi dagskrá sé þeim að þakka: Í kvöld var okkur sagt að ...
24. Janúar 2004
Í Morgunblaðinu í gær er fjallað um fund sem Samfylkingin efndi til í umboði Alþýðuflokks Reykjavíkur (sem ég hélt að hefði verið lagður til hvílu) um "eftirlaunafrumvarpið" margfræga þar sem Alþingi festi í lög umframréttiindi ráðherrum til handa sérstaklega og þingmönnum almennt einnig. Enginn í þingflokki VG studdi þetta frumvarp þegar það var afgreitt sem lög. Það verður hins vegar ekki sagt um þingflokk Samfylkingarinnar. Þar studdu...
23. Janúar 2004
Nýlokið er í Indlandi World Social Forum. Einar Ólafsson rithöfundur fjallar um þessa samkomu á heimasíðu sinni og er ástæða til að vekja athygli á umfjöllun hans og reyndar einnig heimsíðu Einars sem er einkar athygliverð. Netslóðina er að finna hér að neðan. Einar Ólafsson segir þar meðal annars um World Social forum: "Þessi ráðstefna er raunar engin ein ráðstefna heldur mörg hundruð ráðstefnur, fundir og samkomur til að ræða þann vanda sem...
18. Janúar 2004
Sá sem mælir er breski rithöfundurinn John Mortimer í skemmtilegu viðtali sem Jónas Knútsson tók við hann og birtist í helgarblaði Morgunblaðsins. Viðtalið vakti athygli mína af tveimur sökum. Það gefur skemmtilega innsýn í hugarheim þessa aldraða og lífsreynda Breta. Að hinu leytinu er viðtalið skemmtilegt og fjörugt og er það að sjálfsögðu Mortimer að þakka en ekki spilla stórskemmtilegar – stundum svolítið ögrandi – spurningar Jónasar Knútssonar. Varðandi ummæli Mortimers um Tony Blair þá...
16. Janúar 2004
Hjá framsóknarmönnum skiptast á skin og skúrir. Tveir mjög hamingjusamir framsóknarmenn hafa birst á sjónvarpsskjánum á undanförnum dögum. Annar er formaður flokksins, Halldór Ásgrímsson, sem sagðist vera "stoltur og glaður" yfir efnasprengjufundi í Írak, enda "hefði hann alltaf vitað" að gereyðingarvopn væri að finna í landinu. Hinn hamingjusami framsóknarmaðurinn er Jónína Bjartmarz. Ég sá ekki betur en ráðherraglampi væri í augum hennar...
9. Janúar 2004
Það er merkilegt hve áhugasamir ýmsir aðilar innan Samfylkingarinnar virðist vera um einkavæðingu. Í fréttum í kvöld birtist formaður svokallaðrar Framtíðarnefndar flokksins til að lýsa þeirri skoðun sinni að ekki beri nauðsyn til að opinberir starfsmenn sinni almannaþjónustunni. Þetta er hárrétt hjá Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, sem gegnir formennsku í framangreindri nefnd. Það er vissulega hægt að einkavæða þessa þjónustu og fela hana fyrirtækjum á markaði. En hvaða þjónustu telur hún ...
7. Janúar 2004
Læknafélg Íslands kórónar nú allt með því að segja að beini TR sjúklingum inn í almennu heilsugæsluna eða á sjúkrahús þá sé það að öllum líkindum lögbrot. Og lögin sem Læknafélagið segir brotin eru samkeppnislög. Talsmenn sérfræðilækna skyldu fara varlega í að tala um blautar tuskur. Almennt eru læknar samfélagslega sinnuð og ábyrg stétt. Hún má ekki láta bisnissmenn úr sínum röðum taka völdin og stýra förinní kjarabaráttunni...