Í brennidepli
31. Desember 2003
Menn velta fyrir sér hvað valdi viðsnúningi þeirra SPRON manna, sem fyrir ári eða svo máttu ekki heyra á það minnst að verða gleyptir af Búnaðarbankanum. Nú eru menn hins vegar farnir að reyna að skýra skákina og má sjá eina slíka skákskýringu í bréfi frá Bjarna á heimasíðunni í dag. Guðmundur Hauksson sparisjóðsstjóri í SPRON er höfuðpaurinn í...
29. Desember 2003
Þetta er það sem Samfylkingin íslenska, kallar "tveggja turna" kerfi. Yfirfært á íslenska pólitík eiga turnarnir tveir að vera Sjálfstæðisflokkur annars vegar og Samfylking hins vegar. Í Kastljósi RÚV í kvöld heyrðum við sjónarmiðin úr turnunum tveimur auk þess sem...
25. Desember 2003
Fyrst var það einkavæðingin, svo komu Kárahnjúkar, bankarnir, starfsloka- og kaupaukasamningar, og nú síðast er það SPRON. Ég spurði einn ágætan félaga minn og baráttuhauk, Svein Aðalsteinsson hvað hann teldi vera til ráða. Hann sagði að þetta væri eins og að eiga við tröll, en "þau munu daga uppi", sagði Sveinn, "ef við beitum afli upplýsinga gegn þeim". Ég bað Svein um að segja okkur í knöppu formi...
22. Desember 2003
Í morgun vöknuðum við upp við að hryðjuverkasamtökin Al Queda væru með stórárás í undirbúningi. Fulltrúi Bandaríkjastjórnar hvatti til þess í morgunútvarpinu okkar að ferðamenn hefðu augun hjá sér. Með árvekni gætum við komið í veg fyrir hryðjuverk. Sem betur fer er búið að herða allt öryggiseftirlit í heiminum og er í auknum mæli fylgst með öllum "vafasömum" karakterum. Við megum ekki láta það trufla okkur þótt einnig þurfi...
12. Desember 2003
Í pistli sem birtist á síðunni í dag frá Þrándi er fjallað um hið umdeilda starfskjarafrumvarp á Alþingi þar sem gerðar eru tillögur um breytt fyrirkomulag á lífeyrisgreiðslum þingmanna og ráðherra og þeim, sérstaklega ráðherrum, auðveldað að hætta störfum eftir tilltölulega skamman starfsaldur. Þetta þykir Þrándi hið besta mál og segir að gera þurfi ráðherrum, ekki síst forsætisráðherra, sem auðveldast að hætta: "Þjóðin hefur ekki nema gott af því að lifa nokkra góða mánuði án Davíðs." Þrándi þykir ósanngjarnt að...
9. Desember 2003
Í bréfi eða öllu heldur grein, sem birtist í lesendadálki síðunnar í dag, eftir Þjóðólf er vikið að grein sem Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður skrifar í Morgunblaðið um réttindabaráttu Öryrkja. Greinin heitir Öryrkjar Íslands og einn vinnandi lögspekingur. Þjóðólfur segir m.a....
8. Desember 2003
Ekki er kirkjunni alltaf lagið að tala sig inn í hjörtu þjóðarinnar – eða inn í heilabú hennar. Vissulega eiga prestar það til að vekja fólk til umhugsunar svo um munar. Það gerði séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum í Kjós í messu sem útvarpað var sl. sunnudag. Mín skoðun er sú, að hann hafi brillerað. Mér segir hugur um að...
5. Desember 2003
Þrándur skrifar athyglisverðan pistil í dag þar sem hann víkur m.a. að skrifum Þorvaldar Gylfasonar prófessors í hagfræði í Fréttablaðinu. Þrándur veltir vöngum yfir skrifum um nauðsyn þess að neytendur fái jafnan að vita "hvað hlutirnir kosta í raun og veru". Þetta viðhorf tekur að mati Þrándar á sig vafasama mynd þegar...
3. Desember 2003
Því hefur verið fleygt að eitthvað kunni að vera að slettast upp á vinskapinn milli Framsóknar og Sjálfstæðisflokks í ríkisstjórn og að þau tíðindi gætu jafnvel gerst að upp úr slitnaði í samstarfinu. Til marks um þetta hefur verið bent á nokkur dæmi um að Sjálfstæðisflokkurinn léti hugðarefni Framsóknar ekki ná fram að ganga og gerði ráðherra flokksins jafnvel ómerka orða sinna. Þar er sérstaklega bent á...
2. Desember 2003
Mér fannst árið vera 1984 þegar Jónatan Þórmundsson prófessor við Háskóla Íslands birtist á sjónvarpsskjánum í kvöld. Í fréttaviðtali fjallaði Jónatan um lagafrumvarp Geirs H Haarde fjármálaráðherra, sem heimilar forstöðumönnum í ríkisfyrirtækjum að reka starfsmenn án skýringa. Allir hljóta að leggja við hlustir þegar Jónatan Þórmundsson leggur orð í belg og þegar hann víkur að grundvallarréttindum á vinnumarkaði er vert að hafa í huga..
30. Nóvember 2003
Atburðarásin í RÚV gerist sífellt harðari og ljóst að mikið kraumar undir. Viðbrögð þeirra Friðriks Páls Jónssonar og Kára Jónassonar, fréttastjóra útvarps, við gagnrýni útvarpsstjóra á Spegilinn eru mjög skiljanleg og sýnir að enn rennur blóðið í mönnum á þessum bæ – alla vega sumum. Í Fréttablaðinu í vikunni talar Friðrik Páll Jónsson...
29. Nóvember 2003
Auðvitað eiga þau Davíð Oddssson forsætisráðherra og Valgerður Sverrissdóttir bankamálaráðherra sér einhverja stuðningsmenn og jafnvel aðdáendur eins ósennilegt og það kann nú að hljóma. Einn slíkur, Þjóðólfur, fastur penni hér á síðunni, kveður sér hljóðs í dag í ítarlegri grein í lesendadálki heimasíðunnar. Þjóðólfur leynir ekki vonbrigðum sínum yfir viðbrögðum forsætisráðherra yfir...
27. Nóvember 2003
"Í nafni hverra rétti Finnur Ingólfsson upp höndina við gljáfægt harðviðarborðið í haust þegar hann gekk endanlega frá upphæðunum og dagsetningunum sem lengi var togast á um? Beinist reiði forsætisráðherra ef til vill gegn þeim hluthafahópi sem Finnur er fulltrúi fyrir?" Þetta kemur meðal annars fram í pistli Ólínu hér á síðunni í dag en hún veltir því réttilega fyrir sér hvernig á því standi að kastljósum fjölmiðla sé ekki beint að þeim sem sátu handan samningaborðsins, kjölfestufjárfestum þeirra Davíðs og Valgerðar...
25. Nóvember 2003
Í lesendadálkinum í dag er einkar athyglisvert bréf sem hlýtur að verða okkur öllum , ekki síst fjölmiðlamönnum, umhugsunarefni. Bréfritari sat nýlega ráðastefnu um raforkumál. Þar kom fram hjá Friðriki Sophussyni, forstjóra Landsvirkjunar og Guðmundi Þóroddssyni, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur, að með markaðsvæðingu raforkugeirans myndi raforkuverð til heimilanna að öllum líkindum hækka. Ég tek undir með bréfritara, Helga, að undarlegt má heita að yfirlýsingar af þessu tagi skuli ekki enduróma í þjóðmálaumræðunni. Í bréfinu...
21. Nóvember 2003
Formaður Samfylkingarinnar, Össur Skarphéðinsson, fær á sig harkalega gagnrýni í bréfi frá Ólínu í dag fyrir að daðra við einkavæðingu heilbrigðiskerfisins. Nokkrir "núverandi og fyrrverandi þingmenn svokallaðra jafnaðarmanna hafa haldið á lofti nýrri framtíð i heilbrigðismálum landsmanna, bæði framtíð þeirra sem hafa ráð á henni og hinna sem fyrirsjáanlegt er að verða fyrir barðinu á nýfrjálshyggjunni", segir Ólína m.a.. En hún gengur lengra því hún víkur að því sem hún kallar sjúkdómavæðingu stjórnmálannna og staðnæmist þar við Einar Karl Haraldsson, sem hún réttilega vísar til sem eins af hugmyndafræðingum Samfylkingarinnar...
18. Nóvember 2003
Mjög athyglisverðar vangaveltur er að finna i hugleiðingum Þrándar i dalkinum Spurt og spjallað i dag. Hann sér sparnað i nýju samhengi og Rússagullið líka: " Í stað þess að Landsbankinn gefi börnum þjóðarinnar tíkall, gefur þjóðin Landsbankann mönnum sem kunna að gæða þær rúbblur, sem þeir hafa þénað hjá Rússum, nýju lífi. Má því segja að loks sé Rússagullið komið í ljós - en vissulega í óvæntum stað..."
14. Nóvember 2003
Í frétt í sænska blaðinu Aftonbladet sl. þriðjudag (11/11) segir að raforkuframleiðendur í Svíþjóð geri það gott. Raforkuframleiðendur í Svíþjóð eru ekki lengur sænskir nema að litlum hluta. Þrír stórir framleiðendur eru í landinu, Vattenfall (í sænskri eigu), Sydkraft ( í þýskri eigu) og Fortun ( í finnskri eigu). En þótt þessi fyrirtæki séu að gera það gott er ekki þar með sagt að sænskir neytendur séu ánægðir. Í frétt í Aftonbladet segir...
13. Nóvember 2003
Breska sjónvarpið, BBC, sagði í fréttaskýringu í vikunni að "engin hætta steðjaði að eignaréttinum" í Rússlandi. Umfjöllunarefni fréttaskýringarinnar var fangelsun auðjöfursins Mikhail Khodorkovsky. Hann er einn ríkasti maður Rússslands og einn stórtækasti þjófurinn í hópi þeirra sem sem nýttu sér pólitíska aðstöðu sína til að stela samfélagseignum eftir fall kommúnismans...
13. Nóvember 2003
Hvað hefði heimurinn sagt ef kynþáttastjórnin í Suður-Afríku hefði reist aðskilnaðarmúr eins og ísraelska ríkisstjórnin er að reisa utan um byggðir Palestínumanna? Ég leyfi mér að fullyrða að viðbrögðin hefðu orðið sterkari. Hvers vegna? Ofbeldið nú er að öllu leyti framið í skjóli Bandaríkjamanna ...
6. Nóvember 2003
Helgi Guðmundsson rithöfundur með meiru varð nýlega sextugur. Ekki bauð hann til hefðbundins afmælisfagnaðar að þessu sinni. Hins vegar bauðst hann til að lesa fyrir okkur um hinn breyska en góðviljaða heimiliskött, Markús Árelíus. Bækurnar um Markús Árelíus las Helgi á sinni tíð í Ríkisútvarpinu en nú...
4. Nóvember 2003
Það var athyglisvert að hlusta á þá Styrmi Gunnarsson ritstjóra Morgunblaðsins og Björgólf Guðmundsson fjármálamann í morgunútvarpi RÚV glóðvolga af þingi Samfylkingarinnar. Ekki svo að skilja að þeir séu Samfylkingarmenn heldur voru þeir fengnir á þing Samfylkingarinnar sem sérstakir gestir til að örva þar umræðu. Samfylkingin vill greinlega stækka sig til hægri og voru þessir ágætu fyrirlesarar...
2. Nóvember 2003
Það vita allir að Samfylkinguna langar óumræðilega til að verða stór flokkur. Ekki höfðu menn þó almennt hugarflug til að ímynda sér að öllu væri fórnandi til þess! Til að ná til kjósenda á hægri vængnum í stjórnmálum er flokkurinn farinn að tala fyrir málstað Verslunarráðs Íslands og vill markaðvsvæða heilbriðgðisþjónustuna. Ólína rifjar upp, í mjög athyglisverðu bréfi í dag...
1. Nóvember 2003
Í morgun var ég í þætti Þorfinns Ómarssonar ásamt þeim Bryndísi Hlöðversdóttur þingmanni Samfylkingarinnar og Ástu Möller varaþingmanni Sjálfstæðisflokksins. Það vakti athygli að Ásta lék við hvern sinn fingur. Ekki svo að skilja að hún sé ekki lífsglöð manneskja, en greinilegt var að nú var sérstakt tilefni til að gleðjast...
30. Október 2003
Alveg eru þeir stórfenglegir hjá bönkunum þessa dagana. Þeir segjast vilja fá inn til sín umsýslukerfið fyrir húsbréfin. Íbúðalánasjóður á að verða "heildsala" sagði talsmaður fjármálastofnana, Guðjón Rúnarsson, í viðtalsþætti Arnþrúðar Karlsdóttur á Útvarpi Sögu. Þetta yrði miklu hagkvæmara fyrir lántakandann...
27. Október 2003
Hér á landi var nýlega stödd Suzanne Gordon, þekktur bandarískur blaðamaður , sem um áratugaskeið hefur rannsakað bandaríska heilbrigðiskerfið. Hún var hér í boði Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og flutti fyrirlestra. Hún ræddi einnig við Svavar Knút Kristinsson, blaðamann á Morgunblaðinu. Í því viðtali var margt athyglisvert sagt...
22. Október 2003
Mikil umfjöllun hefur orðið um bréfasafn Halldórs Laxness og aðgang að því. Í bréfi eða öllu heldur grein sem birtist hér neðar á síðunni veltir Ólína vöngum yfir ýmsum hliðum þessa máls. Hún spyr m.a.: "Hver á Laxness? Strangt til tekið er ekki hægt að spyrja svona séu menn að fjalla um bókmenntir skáldsins og ekki jörð í Flóanum eða fyrir austan. Bókmenntaverk hættir vitaskuld að vera eign höfundarins í vissum skilningi um leið og fólk les verkið og verður fyrir áhrifum af því, lætur hrífast með, eða skiptir kannski um skoðun í lífinu. Það á enginn...
18. Október 2003
Vill útvarpsstjóri ef til vill fréttatíma sérhannaða fyrir þá Björn Bjarnason og Hannes Hólmstein, fréttatíma sem smellpössuðu inn í þeirra heimsmynd? Þá gengi náttúrlega ekki að segja frá öllu, til dæmis því að Bandaríkjastjórn njóti ekki vinsælda í heiminum nú um stundir...
14. Október 2003
Af hálfu ísraelsku ríkisstjórnarinnar er nú sem fyrri daginn allt réttlætt með því að þjóðin eigi í stríði. Þetta gefi henni siðferðilegan rétt. En er það þá ekki á báða bóga? Hvað fannst okkur um andstæðinga hernáms nasista og vopnaða baráttu þeirra gegn ofbeldi þýska ríkisins á stríðsárunum? Hvorir skyldu nú eiga meira sammerkt með nasistum og hvorir fórnarlömdum þeirra, Ísraelsmenn eða Palestínumenn? Hvað finnst ríkisstjórn Íslands um linnulausar sprengjuárásir á íbúðarhverfi í flóttamannabúðum? Hvers vegna þegir hún þunnu hljóði á meðan mannréttindin eru brotin á saklausu fólki? ...
13. Október 2003
Ég mun aldrei gleyma yfirlýsingu eins gamals frænda míns þegar hann lá banaleguna. Hann hafði verið mjög rauður í pólitík. Alla ævi hafði Mogginn verið hans höfuðandstæðingur í stjórnmálum og enn leit hann á að svo væri. En rámri röddu hvíslaði hann í eyra mér – vitandi að þar var á ferðinni pólitískur samherji – "ég held Ögmundur minn að ég sé búinn að gútera Morgunblaðið; ekki að ég sé sammála Mogganum í pólitíkinni, heldur vegna hins, að hann er náttúrulega íslenskt stórveldi...
10. Október 2003
Portúgalskir verkamenn við Kárahnjúka neituðu í gær að vinna nema hópurinn allur fengi hlífðarfört. Um var að ræða skófatnað og ullarsokka eftir því sem fram kom í fréttum. Í frásögnum fjölmilðla í gær var svo að skilja að þessi vinnustöðvun, þetta verkfall starfsmanna "væri í samráði" við Impregilo! Óvenjluegt er að samkomulag náist á milli atvinnurekanda og verkamanna um að...
9. Október 2003
Ef dæma skal af þeim lesendabréfum sem mér hafa borist í dag þá er fólki heitt í hamsi út af framkomu Impregilo og samstarfsaðila við verkamenn á Kárahnjúkum. Fólk veltir greinilega fyrir sér þýðingu Rómargöngu Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra. Ljósmóðir spyr hvort hann sé að feta í spor fyrri tíðar manna og leita eftir syndaaflausn og Ólína veltir fyrir sér hvort ímynd Impregilo sé til umræðu í Róm enda hafi utanríkisráðherranum íslenska...
7. Október 2003
Starf fjölmiðlamanna er mikilvægt. Þeir miðla upplýsingum og hafa veruleg áhrif við að móta farveg þjóðfélagsumræðunnar. Eðlilegt er að störf þeirra séu undir smásjá og mikilvægt er að þeir kunni að taka gagnrýni á sín störf ekki síður en stjórnmálamenn og reyndar allir sem gegna trúnaðarstörfum í þjóðfélaginu. Ég vona að fjölmiðlamenn lesi af kostgæfni bréf Ólínu sem birtist hér á sðunni í dag. Hún kemur víða við en telur að fjölmiðlarnir standi seg ekki sem skyldi við Kárahnjúka...
5. Október 2003
Skyldu þau hafa fengið forskrift hjá Valgerði Sverrisdóttur iðnaðarráðherra um hvernig eigi að standa vörð um sameignir þjóðarinnar með sérstakri hliðsjón af áformum ríkisstjórnarinar að einkavæða raforkugeirann og vatnið? Það er ekki laust við að tilhugsunin valdi depurð...
3. Október 2003
Fyrsta umræða um fjárlögin fór fram á Alþingi í dag. Sá háttur er hafður á að kynna þingmönnum úr stjórnarandstöðu ekki efnisatriði fjárlaga fyrirfram. Lítið ráðrúm gefst því til að fara í saumana á innihaldi frumvarpsins fyrir fyrstu umræðu. Hún er því dæmd til að vera almenns eðlis og nokkuð yfirborðskennd. Engu að síður fékk þingheimur innsýn í sálarlíf ríkisstjórnarinnar...
2. Október 2003
Óðinn Jónsson fréttamaður bauð utanríkisráðherra í spjall í morgunsárið. Reyndar kom aldrei fram hvort Óðinn bauð upp á kaffi eða te. Kannski var það bara ég sem fékk það á tilfinninguna að um teboð væri að ræða. Komið var víða við en þó fyrst og fremst rætt um tilraun ríkisstjórnar lands vors að fá sæti í Öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði að tilgangurinn með því væri fyrst og fremst...
2. Október 2003
Að lokinni setningu Alþingis í gær héldu þingmenn og starfslið þingsins suður í Kópavog. Í tónlistarhúsinu þar hafði Jónas Ingimundarson boðið til tónleika með nokkrum helstu stórsöngvurum þjóðarinnar. "Það er fólk eins og þetta, sem gerir okkur að þjóð", sagði Jónas og vísaði þar jafnt til tónsmiða frá fyrri tíð söngvaranna sem stóðu á senunni...
30. September 2003
Í sumar hafa raforkumálin verið ofarlega á baugi. Að garði hefur borið erlenda gesti sem varað hafa við einkavæðingu raforkunnar. Vísað hefur verið til illra afleiðinga slíkrar stefnu í Kaliforníu, í ýmsum Evrópuríkjum, nú síðast Ítalíu að ógleymdum grannlöndum okkar, Danmörku, Svíþjóð og Noregi. Í kjölfar markaðsvæðingar hefur raforkuverðið þar snarhækkað, ekki síst á álagstímum, vegna þess fyrirhyggjyleysis sem sókn í skjótfenginn gróða veldur. Ekki er séð fyrir varaforða þannig að kaupa þarf raforku annars staðar frá dýrum dómum þegar eftirspurnin verður mikil. Á vefriti bendir Rúnar Sveinbjörnsson á að...
24. September 2003
Maður stöðvaði mig á götuhorni í dag og kvaðst hafa hlustað á samræður okkar Péturs H. Blöndals alþingismanns í Kastljósi Sjónvarps í gær. Þar hefði Pétur haldið því fram eina ferðina enn, að ef fólk væri ekki að sýsla með eigin fjármuni...
23. September 2003
Merkileg frétt var í Sjónvarpinu í gærkvöldi: Fram kom að meira en helmingur Íslendinga á aldrinum 16 til 75 ára hefur keypt líftryggingu og um 40% eru sjúkdómatryggðir. Í fréttinni var tekið fram að hver tryggingarþegi er metinn sérstaklega og þá horft til sjúkdómssögu viðkomandi Allt er þetta rakið í fréttinni og í framhaldinu segir fréttamaður...
17. September 2003
…eða á að spyrja á hinn veginn, hvort kvenlegar konur séu ekki rökvísar? Um síðustu helgi birtist í Morgunblaðinu örstutt frétt undir fyrirsögninni, Karlar kvenlægari en konur. Þar segir frá meistaraprófsritgerð Önnu Guðrúnar Edvardsdóttur. Um niðurstöður ritgerðarinnar segir í frétt Morgunblaðsins...
17. September 2003
Þetta varð mottó þróunarríkjanna í Kankún. Í grein í frjálsum pennum í dag greinir Páll H Hannesson nýafstaðinn fund Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar í Kankún. Þar veltir hann upp ýmsum athyglisverðum flötum og telur ekki útilokað að ýmsilegt jákvætt komi út úr fundinum...
9. September 2003
Halldór Ásgrímsson er þakklátur maður. Hann hefur nú, væntanlega fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, fært ítölsku verktökunum Impregilo sérstakar þakkir enda er hann þeirrar skoðunar “að það sé mikilvægt að hið jákvæða komi fram…”
31. Ágúst 2003
Talsverð umræða hefur orðið í kjölfar uppsagna á Stöð tvo. Slæmt er að sjá á eftir mörgu góðu fólki þaðan úr starfi – alla vega í bili. Á síðum blaðanna hefur verið rætt um tengsl fjármagns og fréttamennsku og í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld bar einmitt þetta á góma. Þar voru mættir í boði Elínar Hirst þeir Árni Snævarr, Jónas Kristjánsson og Magnús Hreggviðsson...
22. Ágúst 2003
Já, Herra minn og lausnari! Það er ekki að undra að mörgum þyki þetta minna á alhörðustu trúarsöfnuði. Þegar ég kom að ágætum manni að lesa þennan vikugamla Mogga leit hann upp og sagði, hér eru engin rök færð fyrir veru hersins frekar en fyrri daginn. Hér er bara trú. Þeir vitna. Þetta er einsog í Krossinum...
21. Ágúst 2003
Formaður Framsóknarflokksins og utanríkisráðherra, Halldór Ásgrímsson, flutti ræðu á Hólahátíð um síðustu helgi. Hann gerði samhjálp og samkennd að umræðuefni og lagði áherslu á að varðveita samheldni í samfélaginu. Þetta eru tónar sem ég kann vel að meta. Mín tillaga er sú að Halldór Ásgrímsson láti ekki hér við sitja...
16. Ágúst 2003
Að öllu leyti þykir mér koma fram meiri ábyrgð í afstöðu Björgólfs Guðmundssonar, formanns bankaráðs og jafnframt eins af aðaleigendum Landsbankans, en á sínum tíma kom fram hjá bankamálaráðherranum Valgerði Sverrisdóttur. Á Alþingi var hún spurð hvort mat hefði verið lagt á listaverkaeign Landsbankans...
15. Ágúst 2003
Davíð Oddsson, forsætisráðherra hefur greinilega ekki látið lesendur þessarar síðu ósnortna þegar hann birtist á sjónvarpsskjánum til að lýsa sigrum sýnum á vettvangi alþjóðastjórnmála, sbr. bréfin frá þeim Þjóðólfi og Hafsteini Orra. Sigurinn fólst í því að koma Bandaríkjamönnum í skilning um að vera hersins á Íslandi snýst ekki um hvað nauðsynlegt er...
14. Ágúst 2003
Í morgunfréttum fengum við að heyra niðurstöðuna, alla vega til bráðabirgða. Herflugvélarnar verða hér áfram. Að vísu virtist aðalatriði málsins vera hver hringdi í hvern. Condoleezza Rice, öryggismálafulltrúi Bandaríkjaforseta, hringdi í Davíð Oddsson og Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Halldór Ágrímsson. Þetta vitum við að þeim báðum þykir vera mikið aðalatriði í málinu...
13. Ágúst 2003
Hinsegin dagar eru að verða fastur liður í sumardagskrá landsmanna og mælast vel fyrir. Í litskrúðugri fjöldagöngu skemmtir fólk sér og sýnir jafnframt hug sinn til mannréttindabaráttu samkynhneigðra. Ekki hef ég heyrt nokkurn mann agnúast út í þennan atburð. Þvert á móti er alls staðar jákvæðni að finna. Ekki efast ég þó um að víða leynast fordómar í garð samkynhneigðs fólks og fékk ég staðfestingu á því á fundi Samtakanna ´78 fyrir síðustu Alþingiskosningar...
12. Ágúst 2003
Morgunblaðið á lof skilið fyrir að birta athyglisverðar erlendar greinar sem varpa ljósi á málefni líðandi stundar. Síðastliðinn laugardag var birt grein eftir Joseph Stiglitz, handhafa Nóbelsverðlaunanna í hagfræði árið 2001 og fyrrverandi varaforseta Alþjóðabankans. Hann hefur ítrekað sett fram gagnrýni á stefnu bankans og í þessari grein, sem ber heitið Lýðskrumarar hafa stundum rétt fyrir sér, varar hann við aðilum, sem reyni að gera lítið úr félagslegum sjónarmiðum...
10. Ágúst 2003
Sjónvarpsfréttir laugardaginn 9. ágúst árið 2003 eiga eftir að verða mörgum eftirminnilegar. Þetta var fréttatíminn, sem formaður LÍÚ gerði þjóðina endanlega kjaftstopp. Í fyrsta lagi var svo að skilja á Kristjáni Ragnarssyni, að hann teldi smábátaveiðar almennt til óþurftar, og blési þar með á allt sem heitir vistvænar veiðar. Maður fékk á tilfinninguna að fremur vildi hann togara en smábáta uppí landsteinana. Látum þetta þó vera, því það var ekki fyrr en Kristján gerði réttlætið að umræðuefni að menn misstu kjálkann niður á bringu...
8. Ágúst 2003
Ríkisútvarpið hefur tekið upp þá nýbreytni að heyra skoðanir stjórnmálamanna í yngri kantinum í Speglinum að loknum fréttum tiltekna daga vikunnar. Að sumu leyti var ég sammála Bjarna Benediktssyni, Sjálfstæðisflokki sl. þriðjudag þegar hann sagði, að þeim stjórnmálaflokkum sem lofuðu opnu bókhaldi bæri skylda til að standa við fyrirheit sín. Þegar hins vegar kom að nánari útleggingum og vangaveltum um spillingu skildu með okkur leiðir...
7. Ágúst 2003
Það er allfaf fengur að fá pistla Magnúsar Þorkels Bernharðssonar, sem hann hefur góðfúslega veitt leyfi til að birta hér á heimsíðunni. Magnús Þorkell er sérfræðingur í málefnum Mið-austurlanda og fjallar þess vegna af mikilli þekkingu og yfirsýn um mál sem tengjast þessum heimshluta. Í gær birtist nýjasti pistill Magnúsar Þorkels og fjallar hann þar m.a. um þá erfiðleika sem hernámsliðið í Írak á við að stríða. Einnig víkur hann að hraðvaxandi kostnaði Bandaríkjanna vegna hernaðarins í Írak. Hann vísar í vefslóðir...
6. Ágúst 2003
Ungt fólk í stjórnmálum hefur látið að sér kveða að undanförnu, hver hópur með sínum hætti. Fróðlegt er að virða fyrir sér hugsjónabálin því þar má sjá hvað ungt fólk telur brýnast að berjast fyrir. Ungir Vinstri grænir hafa hvatt til varðstöðu um sjálfstæði þjóðarinnar, krafist jafnréttis kynjanna og stungið niður penna um þau mál sem brenna á þjóðinni. Þar vil ég sérstaklega nefna margar mjög athyglisverðar greinar Katrínar Jakobsdóttur, formanns UVG, sem birst hafa í sumar um mennta- og kjaramál. Ungir Samfylkingarmenn sýndu lofsverð tilþrif þegar þeir skrifuðu páfa um mannréttindi samkynhneigðra. Einsog jafnan á þessum tíma árs hafa ungir sjálfstæðismenn nokkuð látið til sín taka í umræðu um kjaraleynd en stöku maður úr þeirra röðum hefur einnig vikið orði að brennivíni...
27. Júlí 2003
Vísindin skýra ýmis tilbrigði í mannlegri hegðan í ljósi atvika sem hafa haft mikil áhrif á sálarlíf okkar, iðulega í bernsku. Svo er þó að skilja að Davíð Oddsson forsætisráðherra hafi verið búinn að slíta barnsskónum þegar hann varð fyrir reynslu sem greinilega hefur haft djúpstæð áhrif á hann. Frá þessu greinir hann í mjög opinskáu og einlægu viðtali við DV nú um helgina. Á hispurslausan hátt segir hann...
25. Júlí 2003
Æðstu menn Bandaríkjanna og Bretlands fögnuðu því mjög ákaft þegar synir Saddams Husseins, þeir Udday og Quasy, voru skotnir til bana í vikunni. Einhvern tímann hefðu forsvarsmenn þessara ríkja sagt að þeir hörmuðu að mennirnir hefðu verið drepnir án þess að áður hefði verið réttað í máli þeirra. Það ættu að vera grundvallarreglur réttarríkis. Slikum viðhorfum er ekki að heilsa nú. Menn eru skotnir á færi við fagnaðarlæti æðstu stjórnenda í okkar heimshluta. Í dag birtist hér á heimasíðunni nýr pistill frá Magnúsi Bernharðssyni...
25. Júlí 2003
Þeir sem komnir eru á miðjan aldur vita að áður en Björn Bjarnason alþingismaður var kjörinn á þing var hann blaðamaður á Morgunblaðinu. Þar sérhæfði hann sig í erlendum málefnum, en sérstakt áhugasvið hans voru samskipti Vesturveldanna og Sovétblokkarinnar. Það má segja með nokkrum sanni að Kalda stríðið hafi verið sérsvið Björns Bjarnasonar. Það er ef til vill þess vegna sem Björn virðist alltaf vera í essinu sínu þegar þessi mál ber á góma...
24. Júlí 2003
Forsætisráðherra efndi til fundar með fréttamönnum í gær til að ræða um aðskiljanleg efni: Framtíð bandarísku herstöðvarinnar á Suðurnesjum, olíufélagssamráðið, umdeilda málsmeðferð bandaríska hermannsins og fleira sem hátt hefur borið í fjölmiðlum. Allt þetta hefur verið rækilega tíundað í fjölmiðlum í dag. Sérstaka athygli vakti að Davíð Oddsson kaus að láta ekki uppi á hvern hátt hann skilgreindi varnarþörf Íslands, nokkuð sem ríkisstjórnin hefur verið krafi svara um. Þess í stað lagði hann fyrir okkur gátu. Hún er á þessa leið...
23. Júlí 2003
Síðastliðinn mánudag skrifar Guðmundur Andri Thorsson pistil í Fréttablaðið undir fyrirsögninni Fall Tony Blair. Pistillinn er skemmtilegur aflestrar eins og við var að búast frá Guðmundi Andra og er ég sammála honum um flest. Þó er ég ósammála um eitt grundvallaratriði sem þar kemur fram. Það er reyndar svo veigamikið að mér finnst skipta máli í pólitískri umræðu samtímans að vekja á því máls.
22. Júlí 2003
Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, ríður ekki við einteyming þessa dagana. Ekki er nóg með að ólmur vilji hann koma gömlum draumi sínum um íslenskan her til framkvæmda, heldur er hann einnig kominn á kaf í umræðuna um samráð olíufélaganna...
19. Júlí 2003
Það er gott til þess að vita að til skuli vera menn sem alltaf eru reiðubúnir að taka upp hanskann fyrir þá sem misrétti eru beittir; reiðubúnir að berjast í þágu tjáningarfrelsis og helgustu mannréttinda. Það er staðreynd að víða í heiminum er pottur brotinn, spilling þrífst og er okkar land því miður ekki undanskilið – nema síður sé. Þeir sem vilja fletta ofan af spillingu eiga þakkir skilið og ef einhver vill leggja stein í götu þeirra, þá vinnur sá gustukaverk sem færir þann stein úr vegi. Í gær kynnti Sjónvarpið í upphafi frétta að rætt yrði við slíkan mann...
18. Júlí 2003
Ég er búinn að gleyma því hvað tónlistarmaðurinn hét sem ætlaði að halda konsert í Vín, eða var það Búdapest, og gerði þá "sjálfsögðu kröfu" að smíðaður yrði bar baksviðs nákvæmlega eins og barinn var á hótelinu sem hann bjó á og "hafði tekið ástfóstri við". Þetta þótti mjög sniðugt og ofur eðlileg krafa, að maðurinn vildi vera í samræmdu umhverfi. Í fréttum Sjónvarps í kvöd fengum við fréttir af ...
16. Júlí 2003
Staksteinadálkur Morgunblaðsins í dag vekur okkur til umhugsunar. Að mati pistlahöfundar er “óskiljanlegt hvað vinstri menn eiga við þegar þeir tala um nýfrjálshyggju”. ...
15. Júlí 2003
Niðurlag leiðara DV í dag er einstaklega gott og vil ég taka undir hvert einasta orð, sérstaklega í lokasetningunni. Hún er svohljóðandi: "Í þessu efni eins og öðrum verður skynsemin að ráða." En þótt þessi setning sé góð og hafi lög að mæla þá gildir hið sama því miður ekki um flestar aðrar setningar í þessum leiðara...
13. Júlí 2003
Í sunnudagsblaði Fréttablaðsins situr Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, fyrir svörum. Víða er komið við. Á meðal annars er rætt um Íraksmálið. Vísað er í hremmingar Tonys Blairs í Bretlandi en breski forsætisráðherrann sætir nú sem kunnugt er vaxandi gagnrýni fyrir að hafa ekki komið hreint fram gagnvart þjóð og þingi þegar hann talaði fyrir árás á Írak. Fyrir bragðið hafi dregið úr fylgi við hann.Halldór er spurður hvort hann hafi ekki sjálfur tekið skakkan pól í hæðina.
11. Júlí 2003
Utanríkisráðherra landsins blæs á kröfur um að umræður um framtíð bandaríska herliðsins hér á landi fari fram fyrir opnum tjöldum. Það gerði Halldór Ásgrímsson m.a. í Fréttablaðinu í gær. Honum og Davíð Oddssyni forsætisráðherra hefur verið legið á hálsi fyrir að leyna þjóðina mikilvægum upplýsingum um áform Bandaríkjamanna.
9. Júlí 2003
Yfirleitt taka Íslendingar hlýlega á móti nýjum löndum sínum og er það vel. Þannig er það ánægjulegt hve forsetafrúnni á Bessastöðum, Doritt Moussaieff, hefur verið vel tekið af landsmönnum. Það hefur einnig átt við um fjölmiðla, þ.e.a.s. að öllu öðru leyti en einu.
9. Júlí 2003
Leiðari Morgunblaðsins í dag er kostulegur. Hann ber fyrirsögnina: BLAIR, BBC og GEREYÐINGARVOPNIN. Í leiðaranum segir orðrétt: "Nefnd breska þingsins telur sannað að þær fullyrðingar sem BBC setti fram eigi ekki við rök að styðjast. Hugsanlega hafði heimildarmaður BBC ekki aðgang að öllum upplýsingum.....
8. Júlí 2003
Það er umhugsunarvert hve oft Tony Blair forsætisráðherra Bretlands og nánustu samstarfsmenn eru sakaðir um óvönduð vinnubrögð og að í því samhengi komi alltaf sömu nöfnin upp á yfirborðið. Eitt þessara nafna er Alastair Campbell sem er almannatengslafulltrúi breska forsætisráðherns. Í Kosovostríðinu var Campbell þessi einhvern tímann gerður út til Brussel að ræða upplýsingamál í höfuðstöðvum Nató. Haft hefur verið eftir Jamie Shea þáverandi fréttafulltrúa Nató að þessi heimsókn hafi verið mikil mistök því.........
8. Júlí 2003
Bæjarstjórinn á Siglufirði og samgönguráðherra sátu á rökstólum í Kastljósi Sjónvarps í kvöld og fjölluðu um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að fresta Siglufjarðargöngum. Látum þá ákvörðun liggja á milli hluta. Gleymum því líka að ríkisstjórnin skuli farin að svíkja kosningaloforð sín í gríð og erg, aðeins fáeinum vikum eftir kosningar. Staðnæmumst hins vegar við þær skýringar sem hún gefur á kosningasvikum sínum.
30. Júní 2003
Í morgun fór fram umræða um framtíð Ríkisútvarpsins í morgunsjónvarpi Stöðvar 2. Til leiks voru mætt þau Birgir Ármannsson, Sjálfstæðisflokki og Katrín Júlíusdóttir, Samfylkingu. Ekki bar eins mikið í milli í málflutningi þeirra og ég hefði ætlað að óreyndu. Samkeppnisstaðan væri skökk, sögðu þau bæði og hallaði á einkareknar stöðvar; úr þessu þyrfti að bæta hið bráðasta.
30. Júní 2003
Herstjórnin í í Írak hefur ákveðið að stöðva bæjarstjórnarkosningar í Írak. Paul Bremer sem fer fyrir bandaríska hernámsliðinu segir að " kosningar sem haldnar eru of snemma geti verið skaðlegar. Við verðum að vanda okkur." Bremer bætir því að sjálfsögðu við að hann sé alls ekki á móti sjálfstjórn. "Ég er ekki andvígur henni, en ég vil engu að síður að tekið verði mið af okkar hagsmunum ( takes care of our concerns)." Hér gerist Bremer svo lítillátur að vísa til bandarískra hagsmuna.
24. Júní 2003
Frá Írak berast nú daglega fréttir af árásum á bandaríska hermenn í Írak. Fréttirnar af þessum árásum eru nokkuð áþekkar. Í Morgunblaðinu 17. júní segir, svo dæmi sé tekið: "Að minnsta kosti sjö bandarískir hermenn hafa særst, þar af tveir alvarlega, í árásum sem stuðningsmenn Saddams Husseins, fyrrverandi forseta Íraks, hafa gert á Bandaríkjamenn undanfarna tvo daga. Talsmenn Bandaríkjahers í Írak greindu frá þessu í gær."
22. Júní 2003
Sem kunnugt er hefur ríkisstjórnin lýst því yfir að hún sækist eftir sæti í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna fyrir Íslands hönd. Almennt hefur þetta mælst vel fyrir hér á landi án þess þó að málið hafi fengið ítarlega umfjöllun. Menn hafa einfaldlega gefið sér að þetta væri til góðs – fyrir Íslendinga. Þessi afstaða kemur skýrt fram í spurningu sem blaðamaður Morgunblaðsins beinir til forseta Alþjóðafriðarakademíunnar í New York sem hér er nú staddur í boði utanríkisráðuneytisins. (Sjá viðtal við David M. Malone í Morgunblaðinu 21.júní.) Spurningin er nokkuð dæmigerð fyrir okkur Íslendinga og er svohljóðandi: " Ísland mun væntanlega, innan fárra ára, bjóða sig fram til sætis í öryggisráðinu, hvaða þýðingu hefði það fyrir litla þjóð eins og okkur?"
18. Júní 2003
Tryggvi Gíslason skólameistari Menntaskólans á Akureyri hefur alla tíð verið í miklu uppáhaldi hjá mér sem góður skólamaður auk þess sem hann hefur oft haft margt uppbyggilegt fram að færa í þjóðfélagsumræðunni. Skólaslit Menntaskólans á Akureyri hafa þannig í hans skólameistaratíð verið vekjandi samkomur og hefur framlag skólameistara ekki síst verið þess valdandi. Þess vegna koma yfirlýsingar Tryggva Gíslasonar nú um að selja beri aðgang að menntaskólum landsins gersamlega í opna skjöldu. Í lesendabréfi frá Ólínu í dag er tekið djúpt í árinni hvað þetta snertir.
17. Júní 2003
Í fréttum er nú talsvert fjallað um ósannindavefinn sem bandarísk og bresk stjórnvöld spunnu til að réttlæta árásirnar á Írak. Enginn virðist lengur véfengja að blekkingum hafi verið beitt, heldur er spurt hverjir séu ábyrgir fyrir blekkingunum. Auðvitað er fyrst og fremst við ósannindamennina að sakast en einnig er ljóst að fréttastofur heimsins þurfa að taka sér tak og þá ekki síður stjórnmálamenn.
13. Júní 2003
Í lesendabréfri frá Ólínu í dag er því haldið fram að aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi sýnt meiri áhuga á því að ræða við ritstjóra Morgunblaðsins og fréttatstjóra RÚV en forsætisráðherra Íslands í nýafstaðinni heimsókn. Í bréfinu segir m.a. eftirfarandi:
12. Júní 2003
Efir að Bandaríkin náðu undirtökum í Afganistan virðist fátt skipta máli í því landi lengur, ekki einu sinni fjöldamorð á þrjú þúsund talibönum vekja athygli svo heitið geti. Fáir virðast kippa sér upp við það þegar fangelsi á borð við það sem er að finna í borginni Sheberghan er líkt við Auschwitz fangabúðir nasista í Þýskalandi. Á þessu eru vissulega undantekningar og vil ég vísa þar til dæmis í mjög góða grein Guðlaugs Bergmundssonar blaðamanns í DV fyrir nokkrum dögum.
10. Júní 2003
Sjónvarpinu hefur oft verið legið á hálsi fyrir að leyfa svokallaða kostun en það hugtak er haft um dagskrárgerð sem að meira eða minna leyti er kostað af fyrirtækjum. Sú hætta er jafnan fyrir hendi að sá sem kostar efnið hafi jafnframt áhrif á umfjöllun og efnistök viðkomandi þáttar. Þar með eru peningarnir farnir að stýra dagskrárgerðinni, nokkuð sem flestir vilja forðast alla vega þeir sem er umhugað um frjálsa fjölmiðlun. Auglýsingasjónvarp á að mínum dómi að bjóða upp á afmarkaða auglýsingatíma en hvergi blanda auglýsingum og þáttagerð saman. Í dag birtist hér á síðunni bréf frá Ólínu sem lesendum þessarar síðu er góðkunn.
7. Júní 2003
Hver í ósköpunum hefur óskað eftir því að fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kæmu hingað til lands til að gefa okkur einkunn í stjórn efnahagsmála? Hver þekkir ekki einkunnagjöf Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins? Sennilega hefur ekkert ríki farið eins rækilega að vilja þessara stofnana og Argentína, þar var allt einkavætt sem hægt var að einkavæða og ráðleggingum "sérfræðinganna" frá stofnunum tveimur fylgt í þaula. Ekkert land hefur farið eins illilega á hausinn og einmitt þessi fyrirmyndarnemandi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Og nú eru þeir komnir hingað.
29. Maí 2003
Í Bandaríkjunum er nú vaxandi gagnrýni á framgöngu bandarískra stjórnvalda í Íraksmálinu. Ítrekað hafa komið upp tilvik þar sem Bush og nánustu samstarfsmenn hans hafa reynst ósannindamenn. Leiðarahöfundur bandaríska stórblaðsins International Herald Tribune skrifar í vikunni ( 27. maí ) : “ Í ljósi vaxandi efasemda um nákvæmni upplýsinga frá bandarísku leyniþjónustunni um óhefðbundinn vopnabúnað Íraka áður en ráðist var á landið, ber að fagna því að nú skuli hafin rannsókn á áreiðanleika njósnakerfisins.”
25. Maí 2003
Stöðugt berast fréttir af ofbeldisverkum í Palestínu. Augljóst er að ísraelsk stjórnvöld vinna að því leynt og ljóst að brjóta Palestínumenn niður andlega, gera þeim ólíft í landinu, væntanlega í þeirri von að á endanum hrekist þeir á brott þaðan. Ég velti því oft fyrir mér hvernig við hefðum brugðist við ef Palestínumenn væru svartir en Ísraelsmenn hvítir, eða þá öfugt. Þá hefði kynþáttastefnan, apartheid, verið augljósari en hún er nú. Hér á síðunni er grein sem ber heitið Látum auga heimsins hvíla á Palestínu (frá 19.5). Þar er vitnað í frásagnir utanaðkomandi fólks, þar á meðal Íslendinga, af atburðum í Palestínu. Ég hvet fólk til þess að kynna sér þessar frásagnir.
23. Maí 2003
Nafn Árna Magnússonar kom óvænt upp sem nýr félagsmálaráðherra landsins. Hann er óskrifað blað í pólitík að öðru leyti en því að hann er náttúrlega framsóknarmaður fram í fingurgóma. Árni á rætur inn í RÚV í gegnum föður sinn, Magnús Bjarnfreðsson, og sjálfur var hann um skeið fréttamaður Sjónvarps. Þetta eru traustir feðgar og að mínum dómi er Árni ekki slæmur kostur fyrir skjólstæðinga Félagsmálaráðuneytisins.
22. Maí 2003
Einu sinni var sagt um breskan stjónmálamann að hann væri álíka spennandi og dauð rolla. Þessi samlíking kom upp í hugann þegar sagt var frá þeim „stórfenglegu tíðndum“ að ríkisstjórnin sæti sennilega óbreytt áfram, að því undanskildu að Davíð Oddsson hætti sem forsætisráðherra undir lok næsta árs.
20. Maí 2003
Vinur minn einn sagði í gærkvöldi eftir að þulir úttvarpsstöðvanna höfðu tíundað boðskap Verslunarráðs Íslands um einkavæðingu almannaþjónustunnar, að gamla góða VÍ brygðist aldrei hvernig sem á málin væri litið. Spaugstofan færi í frí og samstundis fyllti VÍ skarðið. Og vildu menn taka óhúmorískan pól í hæðina þá mætti líta á Verslunarráðið sem eins konar kjölfestu, alltaf tilbúið að leggja til að eins og einn spítali verði einkavæddur.
18. Maí 2003
Gunnar Páll Pálsson, formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur, viðrar ýmsar hugmyndir í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins í dag. Ekkert er nema gott um það að segja að forsvarsmenn í samtökum launafólks leyfi sér stundum að hugsa upphátt opinberlega og varpa fram hugmyndum. Með því móti er stuðlað að frjórri umræðu. Forsenda þess er að sjálfsögðu að menn fái viðbrögð á hugmyndir sínar.
16. Maí 2003
Fréttastofur RÚV fjölluðu í gærkvöldi um hugmyndir talsmanna "atvinnulífsinis" um skattamál. Rætt var við fulltrúa ASÍ og SA. Fulltrúi ASÍ varaði eindregið við skattalækkunum vegna Kárahnjúkaþenslu. Slíkt ætti ekki að vera á döfinni næstu árin. Nokkuð sakna ég að þessi umræða skyldi ekki hafa farið fram fyrir kosningar, að ekki sé nú minnst á að hún færi fram áður en ákvörðun um Kárahnjúkavirkjun var tekin. Nú vill svo til að eini aðilinn á vinnumarkaði sem sett hefur fram ítarlegar hugmyndir um skattkerfisbreytingar síðustu misserin er BSRB. Þær tillögur fela það í sér að tekjustofnar almannasjóða kæmu ekki til með að skerðast en ráðstöfunarfé lágtekju- og millitekjuhópa ykist hins vegar til muna.
14. Maí 2003
Snemma í morgun kom ég í útvarpsviðtal við Óðinn Jónsson hjá RÚV. Hann spurði út í kosningar og framtíðarhorfur hjá Vinsrihreyfingunni grænu framboði. Að því er ég best veit var allt satt og rétt sem fram kom í viðtalinu. Að því loknu fékk ég hins vegar upphringingu frá ágætum vini mínum. Hann sagði að Framsókn kæmist of auðveldlega hjá því að svara hvers vegna flokkurinn horfði einvörðungu til Sjálfstæðisflokksins um stjórnarmyndunarsamstarf. Mikið væri í húfi, þannig lægi í loftinu að Sjálfstæðisflokkurinn vildi fá heilbrigðisráðuneytið til þess að markaðsvæða innan heilbrigðisþjónustunnar sem aldrei fyrr.
11. Maí 2003
Ólína sem að mínu mati kemur oft auga á ýmsar athyglisverðar hliðar stjórnmálanna sendi síðunni bréf í morgun. Hún fjallar um ýmsar hliðar úrslitanna, þar á meðal breyttar áherslur innan Sjálfstæðisflokksins. Þar hafi konur úr hófsamari kantinum horfið úr þingsveitinni...
11. Maí 2003
Hannes Hólmsteinn Gissurarson spurði þessarar spurningar í Silfri Egils í dag þegar auglýsingamennsku kosningabaráttunnar bar á góma í þættinum. Sem kunnugt er komst enginn flokkur með tærnar þar sem Framsóknarflokkurinn hafði hælana í auglýsingaglamri fyrir þessar kosningar. Verðugt væri að gera úttekt á pólitískum auglýsingum í aðdraganda kosninga á Íslandi. Þær færast jafnt og þétt í vöxt. Í viðræðum talsmanna stjórnmálaflokkanna í sjónvarpi í kvöld sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Samfylkingu, þetta einfaldlega fylgisfisk upplýsingaþjóðfélagsins. Steingrímur J Sigfússon form. VG benti réttilega á að þessar auglýsingar hefðu ekkert með upplýsingar að gera.
10. Maí 2003
Tilraunir forsvarsmanna Útgerðarfélags Akureyrar til skoðanakúgunar eru forkastanlegar. Í lesendabréfi í dag brýnir Ólína verkalýðshreyfinguna til að rísa upp gegn yfirgangi útgerðarforstjóranna og tilraunum þeirra til að stýra starfsmönnum í kjörklefunum.
9. Maí 2003
Alls staðar þar sem fulltrúar Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs fara á vinnustaði eða koma kosningáherslum sínum á framfæri, er okkur vel tekið. Svo vel, að erfitt er að trúa því að þverrandi fylgi sé við skoðanir okkar. Eina skýringin er því sú að skoðanabræður okkar og systur séu að yfirgefa okkur og ganga til liðs við Samfylkinguna, Frjálslynda og Framsókn.
8. Maí 2003
Í kosningastefnu VG er sérstök áhersla lögð á atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum. Það gerum við vegna þess að fyrirsjáanlegt er, að fyrr eða síðar, hverfur erlendur her héðan af landi brott. Bæði er það æskilegt að svo verði en einnig stefnir augljóslega í þetta hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Í stað þess að horfast í augu við þessar staðreyndir klifar Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra á nauðsyn þess að ganga á fund Bandaríkjaforseta með bænaskjal um áframhaldandi veru herliðsins.
6. Maí 2003
Skattatillögur BSRB hafa vakið verðskuldaða athygli. Skattaumræðan hefur verið í öngstræti um nokkurra ára skeið en með þessum tillögum er gerð tilraun til að færa umræðuna yfir á frjórri vettvang. Í lesendabréfi á síðunni í dag reifar Ólína þessar tillögur og telur að þær eigi eftir að verða áhrifavaldar.
4. Maí 2003
Framsóknarflokkurinn segist vera á miklu flugi. Vissulega er það rétt að flokkurinn virðist vera að sækja í sig veðrið. Jónína Bjartmarz frambjóðandi Framsóknarflokksins í Reykjavík sagði að þetta væri vegna þess að málefnastaða flokksins væri sterk og fólk væri að átta sig á því.
3. Maí 2003
Nú er haldin mikil veisla í heimi auglýsinganna. Ólína veltir vöngum í dag í lesendabréfi yfir öllum þeim möguleikum sem tæknin hefur upp á að bjóða. Hún staðnæmist sérstaklega við síðu þrjú í Morgunblaðinu í dag. Ólafur S. Andrésson líffræðingur skrifar athyglisverðan pistil í Frjálsum pennum hér á síðunni og vitnar í ummæli umhverfisráðherra Íslands í breska blaðinu Guardian.
1. Maí 2003
Að sjálfsögðu las ég grein Magnúsar Stefánssonar alþingismanns í Morgunblaðinu í morgun en hann gerir mér þann heiður að setja nafn mitt í fyrirsögn hennar. Við nánari skoðun reyndist fyrirsögnin vera ofrausn hjá Magnúsi því í greininni kom ég nánast ekkert við sögu heldur var vitnað í flokksfélaga mína og það á harla undarlegan máta.
1. Maí 2003
Í pistli sem er mjög við hæfi að birta 1.maí, á baráttudegi verkalýðsins, veltir Ólína fyrir sér (sjá Spurt og svarað hér á síðunni) samhenginu á milli skattatillagna Sjálfsæðisflokksins og fyrirsjáanlegra útgjaldaaukningar heimilanna.
28. Apríl 2003
Um helgina hafa verið umræðuþættir í Sjónvarpinu (RÚV) þar sem frambjóðendur allra flokka sem bjóða fram á landsvísu hafa sest á rökstóla. Þeir hafa gert grein fyrir baráttumálum sínum og skipst á skoðunum um hvernig til hafi tekist við landsstjórina á liðnum árum. Tími er naumt skammtaður eðli málsins samkvæmt. Á milli kjördæmaþáttannna hafa verið auglýsingar. Þar hafa stjórnmálaflokkar, einkum Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, keypt tíma fyrir langar auglýsingar uppfullar af sjálfshóli.
28. Apríl 2003
Breska blaðið Times skýrir frá því að að fyrrum framkvænmdastjóri Shell olíveldisins muni hafa yfirumsjón með olíuiðnaði Íraka. Þessi frétt er athyglisverð og vert að skoða hana í samhengi við nýja grein frá Magnúsi Þorkeli Bernharðssyni hér á síðunni þar sem hann fjallar sérstaklega um þjóðerniskennd í Írak og andúð á innrásaliðinu.
24. Apríl 2003
Grunntónninn í grein Jóns K. Stefánssonar, sem birtist á heimasíðunni í dag, en hann hefur áður skrifað í nafni frjálsra penna hér á síðunni, er að minna á að baráttan í þjóðfélaginu er á milli fjármagnsaflanna annars vegar og lýðræðis og hagsmuna almennings hins vegar. Grein Jóns heitir Ísland ehf. Titillinn ætti strax að verða okkur umhugsunarefni.
19. Apríl 2003
Forsætisráðherra er sitthvað til lista lagt. Hann stundar pólitík, skrifar sögur og nú er hann kominn á kaf í fiskifræði. Hann lýsti því yfir á fundi norður í landi fyrir nokkrum dögum að óhætt væri að auka þorskkvótann um þrjátíu þúsund tonn á næsta ári. "Byggir þetta á yfirlýsingu frá Hafrannsóknarstofnun", spurðu fréttamenn. "Nei, það er ég sem er að segja ykkur þetta", sagði hinn nýbakaði fiskifræðingur.
16. Apríl 2003
Hans Blix yfirmaður kjarnorkueftirlits Sameinuðu þjóðanna í Írak hefur lýst því yfir að Bandaríkjastjórn hafi blekkt eftirlitsmennina og að ætla megi að árásin á Írak hafi verið löngu ákveðin. Af hálfu Bandaríkjamanna hafi eftirlitið verið sýndarleikur. Blix gekk miklu lengra í yfirlýsingum sínum og talaði um miklar mannfórnir og eyðileggingu landsins.
15. Apríl 2003
Ungur drengur í Írak birtist á sjónvarpsskjá. Hann liggur á sjúkrahúsi, handalaus og litli búkurinn sundurtættur. Hann talaði sem gamall vitur maður. Hann kvaðst sakna handanna sinna því hann þyrfti að vinna. Hann hafði misst móður og systkini í sprengjuárás innrásarherjanna; hermanna sem segjast vera komnir til að frelsa fólk. Ólína skrifar um þessa frelsara í lesendabréfi í dag undir fyrirsögninni: Plebbar. Bréf Ólínu er áhrifaríkt og hvet ég alla til að lesa það.
Colin Powell utanríkisráðherra Bandaríkjanna kom einnig fram í sjónvarpsfréttum í gærkvöldi, rétt á undan litla drengnum.
11. Apríl 2003
Mörgum brá í brún þegar þeir óku Suðurlandsbrautina fyrir fáeinum dögum. Hús eitt ofarlega við brautina hafði nánast verið betrekt með risastórum myndum af Halldóri Ásgrímssyni formanni Framsóknarflokksins og Jónínu Bjartmarz frambjóðanda flokksins hér í Reykjavík. Ég sá fyrst þessar myndir kvöldið sem Sjónvarpið sýndi styttuna af Saddam Hussein fellda af stalli í Bagdad. Ef til vill voru hughrifin sterkari fyrir bragðið.
10. Apríl 2003
Á stundum eins og nú reynir mjög á fjölmiðla. Bandaríkin og Bretland herja á Írak og bæði bandarískir og breskir fjölmiðlar fylgja ríkisstjórnum sínum mjög að málum. Íslenskir fjölmiðlar eru svo aftur háðir engisaxneskri fjölmiðlun á heimsvísu. Það heyrir til undantekninga að þeir brjótist út úr áróðursmaskínunni (Spegillinn, Útvarp Saga o.fl. hafa þó átt góða spretti). Jón Torfason skrifar mjög athyglisverða fjölmiðlagagnrýni á vefsíðuna í dag þar sem hann tekur á þessum málum.
4. Apríl 2003
Fyrir nokkrum mánuðum héldum við fjöldafundi til að mótmæla hernaðarofbeldi og mannréttindabrotum gegn Palestínumönnum. Baráttumenn fyrir mannréttindum beina sjónum sínum nú fremur að Írak enda Palestína í skugga olíustríðs. Það er heitið á grein Sveins Rúnars Haukssonar læknis, formanns félagsins Ísland-Palestína sem birtist í Frjálsum pennum hér á síðunni í dag.
3. Apríl 2003
Í Morgunblaðinu 31. mars sl. birtist stutt grein eftir Jón Karl Stefánsson um stríðið gegn Írak og þó einkum afleiðingar viðskiptabannsins, sem hvílt hefur á Írökum í rúman áratug með hörmulegum afleiðingum.
2. Apríl 2003
Sjálfstæðisflokkurinn hefur núið Samfylkingunni því um nasir að vera ekki alltaf sjálfri sér samkvæm varðandi beitingu hervalds og er þá vísað annars vegar í gagnrýni á árásirnar á Írak og hins vegar í stuðning talsmanna Samfylkingarinnar við loftárásir Nató á Balkanskaga vorið 1999.
1. Apríl 2003
Fréttastofa Ríkisútvarpsins er gagnrýnd harðlega í fjölmiðlagagnrýni Páls H. Hannessonar hér á síðunni í dag. Öllum er ljóst að á fréttamönnum hvílir mikil ábyrgð. Miklar upplýsingar berast þeim en samkvæmt venju er ekki á allt treystandi sem frá stríðandi öflum kemur.
31. Mars 2003
Í lesendabréfi í dag er ég spurður áleitinnar spurningar. Spurt er hvað mér finnist um þá ákvörðun Framsóknarflokksins að skrifa undir samkomulag við Öryrkjabandalagið um breytingar á örorkulífeyri sem koma eiga til framkvæmda á næsta kjörtímabili.
30. Mars 2003
Fréttamenn Kastljóss fóru silkihönskum um Davíð Oddsson forsætisráðherra að loknum landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Lengi vel spjallaði forsætisráðherra um Íraksmálið og bar sig mannalega. Íslendingar væru þjóð sem stæði í fæturna.
28. Mars 2003
Flokksþing Sjálfstæðisflokksins er hafið með hefðbundnum hætti í Laugardagshöll. Flokknum er skýrt frá því hvað honum finnist í öllum málum og síðan farið með ljóð og vísur aðallega andstæðingunum til háðungar. Davíð Oddsson formaður vitnaði í ræðu sinni í svohljóðandi vísu Hjálmars Jónssonar frá '99
26. Mars 2003
Sannleikurinn er vandfundinn þegar stríð geisar. Í umfjöllun um fjölmiðla sem kom inn á vefsíðuna í gær segir Páll H. Hannesson: “Það er gömul klisja að fyrsta fórnarlamb stríðsátaka sé sannleikurinn. Staðhæfingin væri sönn nema hvað hún gefur í skyn að utan stríðstíma sé sannleikurinn sagður.” Þetta er rétt hjá Páli nema hvað í stríði verður allt ýktara en ella líka lygin. Og í stríði er mikið logið.
26. Mars 2003
Sitthvað athyglisvert kom fram í fréttum útvarps- og sjónvarpsstöðva í dag og vil ég þar sérstaklega nefna fréttaskýringu Friðriks Páls Jónssonar á fréttastofu Ríkisútvarpsins um stuðningsmannahóp Bush Bandaríkjaforseta í Speglinum og viðtal við Steingrím Hermannsson fyrrverandi forsætisráðherra um sama efni.
25. Mars 2003
Fréttir berast nú frá Írak um neyðarástand víða í landinu. Alvarlegur vatns- og rafmagnsskortur er í borginni Basra sem Bandaríkjamenn og Bretar sitja nú um. Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna segja að eitt hundrað þúsund börn undir fimm ára aldri í borginni séu í lífshættu vegna vatnsskorts og meltingarsjúkdóma.
23. Mars 2003
Ég vil vekja sérstaka athygli fréttaskýrenda og að sjálfsögðu allra annarra á lesendabréfi sem birtist á heimasíðunni í dag og fjallar um Carter-kenninguna. Vísað er í bréf sem þrír háttsettir menn í stjórn Bush Bandaríkjaforseta rituðu Clinton þáverandi forseta Bandaríkjanna árið 1998 þar sem þeir hvöttu til árásar á Írak á grundvelli Carter-kennisetningarinnar en hún gekk út á að verja olíuhagsmuni Bandaríkjanna.
21. Mars 2003
Mikið held ég að mörgum hafi létt þegar Davíð Oddsson kom fram í Kastljósi Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi til að skýra það út fyrir okkur hvernig Frakkar og allar hinar þjóðirnar misskilja Íraksmálið og hvernig Íslendingar hlutu að styðja árásirnar á Írak.
19. Mars 2003
Vaxandi reiði gætir nú hér á landi yfir fylgispekt íslensku ríkisstjórnarinnar við Bandaríkjastjórn. Ísland er í hópi 30 ríkja sem Bandaríkjstjórn telur upp sem sauðtrygga stuðningsmenn sína og forsætisráðherra Íslands lýsir því fjálglega yfir að Íslendingar hafi veitt "heimild til yfirflugs yfir íslenska flugumsjónarsvæðið.
18. Mars 2003
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra tjáir sig talsvert um Íraksmálið og dregur ekkert af sér í fylgispekt sinni við Bandaríkjastjórn. Nýlega sagði utanríkisráðherra í fréttaviðtali að það væru hagsmunir Íslendinga að vestræn samvinna gengi vel. Þetta átti víst að vera réttlæting á undirgefni íslensku ríkisstjórnarinnar við herveldið í vestri.
10. Mars 2003
Tvær nýjar greinar koma inn á heimasíðuna í dag, önnur eftir séra Gunnar Kristjánsson á Reynivöllum sem á þráðbeint erindi við okkur og hin eftir Þorleif Óskarsson sagnfræðing þar sem forsætisráðherra, forsætisráðherrakandidat og Vinstrihreyfingin grænt framboð koma við sögu. Þá er rétt að vekja athygli á greinum Magnúsar Þorkels Bernharðssonar sem skrifar frá New York um Íraksmálið.
5. Mars 2003
Það eru alltaf tíðindi þegar hin vísi skríbent okkar hér á síðunni Ólína kveður sér hljóðs. Það gerir hún í dag undir liðnum Spurt og svarað. Hún beinir orðum sínum til Guðmundar Andra Thorssonar sem skrifar í DV í dag.
4. Mars 2003
Hlutskipti Íslendinga á vettvangi utanríkismála er ekki beysið þessa dagana. Okkar ríkisstjórn er engu betri en sú breska. Færa má fyrir því rök að sú breska hafi þó efni á að tala digurbarkalega. Hún sendir þó sína menn í dauðann. Íslendingar eru aðeins tilbúnir að senda annarra þjóða drengi í dauðann.
21. Febrúar 2003
Nú er kosningabaráttan að hefjast og frambjóðendur eru boðaðir á fundi og samkomur til að kynna áherslur sínar. Á síðustu dögum hef ég sótt tvo slíka fundi í Reykjavík, hinn síðari í gær hjá Kiwanis-mönnum sem buðu fulltrúum Framsóknar og VG til að greina frá helstu stefnumálum. Þetta voru bráðskemmtilegir fundir.
20. Febrúar 2003
Magnús Þorkell Bernharðsson hefur látið mjög að sér kveða í umræðunni um Írak enda manna fróðastur um málefni Austurlanda. Hann kennir við Hofstra háskólann í New York og er sérgrein hans nútímasaga Mið-Austurlanda.
19. Febrúar 2003
Steinþór Heiðarsson sagnfræðingur skrifar í dag pistil þar sem hann varpar sögulegu ljósi á Írak. Það væri þess virði að íslenskir ráðamenn gæfu sér tóm til að hugleiða sögu Íraks og nánasta heimshluta síðustu áratugina.
18. Febrúar 2003
Séra Örn Bárður Jónsson er með skemmtilegri pennum þessa lands og Það sem meira er, hann er óhræddur að segja hug sinn, einnig um umdeild mál. Um miðjan janúar hélt séra Örn Bárður magnaða og eftirminnilega ræðu á Lækjartogi gegn stríði og í þágu friðar en tilefni fundarins voru stríðsáform Bandaríkjastjórnar gegn Írak.
15. Febrúar 2003
Enginn getur neitað því að Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra sýnir óbilandi staðfestu í Íraksmálinu. Ekkert fær honum þokað. Hann virðist að vísu svolítið feiminn að segja það upphátt að hann telji varla þörf á því að Öryggisráðið komi saman að nýju til að álykta um heimild fyrir Bandaríkjaher að ráðast á Írak.
14. Febrúar 2003
Ástæða er til að vekja sérstaka athygli á tveimur greinum eftir Þorleif Óskarsson sagnfræðing um fjölmiðla hér á heimasíðunni. Annars vegar víkur hann að ummælum Magnúsar Stefánssonar alþingismanns um ungt fólk í Fréttablaðinu 29. janúar.
13. Febrúar 2003
Mjög athyglisverð umræða hefur farið fram hér á heimasíðunni um ýmsar hliðar réttarkerfisins og hafa mörg siðferðileg og heimspekileg álitamál verið vegin og metin. Umræðan kviknaði í kjölfar Hæstaréttardóms yfir Árna Johnsen fyrrverandi Alþingismanni.
5. Febrúar 2003
Á Alþingi hefur þess verið krafist að upplýst verði um starfslokasamning fyrrverandi forstjóra Landssímans hf. Þetta er sjálfsögð krafa. Þeim fjölgar dæmunum af forstjórum og stjórnarformönnum sem hygla hver öðrum með himinháum greiðslum þegar þeir skipta um starfsvettvang eða þegar þeim er skipt út; þegar þeir eru færðir til á taflborði valdastjórnmálanna.
27. Janúar 2003
Hjálmar Árnason alþingismaður tók sig einstaklega vel út við opnun Barnaspítala Hringsins í gær og var Framsóknarflokknum til mikils sóma. Hjálmar var formaður byggingarnefndar og því eðlilegt að hann kæmi fram við þessi tímamót fyrir hönd skattborgaranna.
23. Janúar 2003
Talsmaður ítalska fyrirtækisins Impregilo segir ásakanir á hendur fyrirtækinu um mútugreiðslur ekki eiga við rök að styðjast, hvorki í Lesotho, Argentínu, Gvatemala né Tyrklandi. Í tengslum við verkefni í öllum þessum löndum hafa komið fram ásakanir um mútugreiðslur.
10. Janúar 2003
Í lesendadálkinum í dag birtist grein eftir Þorleif Óskarsson sagnfræðing þar sem hann bregður ljósi á sölu þjóðbankanna. Sjónarhornið er ekki hið sama og við eigum að venjast úr fjölmiðlaumræðunni hér og væri betur ef fleiri kæmu auga á þá fleti sem bent er á í greininni.
8. Janúar 2003
Sannast sagna er ég hissa á íslenskum fjölmiðlum að standa ekki betur vaktina en raun ber vitni gagnvart fyrirhugaðri Kárahnjúkavirkjun. Ráðherrar eru ítrekað látnir komast upp með hrein ósannindi í yfirlýsingum sínum, að ekki sé minnst á hróplegar mótsagnir í málflutningi.