Greinar Febrúar 2022

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 26/27.02.22.
Undir magnaðri mynd úr Skagafirði “í töfrabirtu” stendur Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri Kaupfélags Skagfirðinga og lýsir “sexföldun framleiðslu” hjá Kaupfélagi Skagfirðinga á undanförnum þremur áratugum. Forvígismaðurinn á “skagfirska efnahagssvæðinu” vill greinilega minna á að þótt kaupfélögin hefðu “verið allt í öllu” á öldinni sem leið þá sé fjarri því að þau hafi sagt sitt síðasta. Þeir eru fleiri ...
Lesa meira

Í ársbyrjun 1995 var haldinn kraftmikill fundur á Hótel Borg í Reykjavík. Fundarefnið var að leita svara við því hvernig glæða mætti róttæka vinstri pólitík í landinu.
Nú skal spurt ...
Lesa meira

... Aflið sem um ræðir og þarf að virkja kemur frá almenningi. Það afl þarf súrefni og súrefnið kemur með opinni umræðu ekki í leyndarspjalli. Leyndarspjall í langan tíma færir okkur inn í draumaland peninganna, vogum vinnur vogum tapar, hver er sinnar gæfu smiður ... Nú þarf annan fund á Hótel Borg.
Og síðan fleiri fundi.
Vinstrafólk á ekki að láta drepa í sér logann heldur glæða hann.
Við þurfum að læra af reynslunni og snúa vörn í sókn og þá sókn þarf að hugsa til langs tíma.
...
Lesa meira

Á sunnudag fyrir rúmri viku og svo á mánudeginum tók ég þátt í svokallaðri Imrali sendinefnd til Tyrklands. Heimsóknin var um netið í annað skiptið vegna ferða- og fundatakmarkana af völdum kóvid faraldursins. Í sendinefndinni voru átján fulltrúar og hefur hún ekki verið svo fjölmenn til þessa. Á myndinni má sjá hluta þátttakenda í umræðum. Imrali er fangaeyjan þar sem ...
Lesa meira

Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð utanríkisráðherra Íslands ætlar ekki að verða eftirbátur forvera síns í utanríkisráðuneytinu hvað varðar fylgispekt við NATÓ og Bandaríkjastjórn. Yfirlýsingar í tengslum við fundi NATÓ og símtöl við Blinken utanríkisráherra BNA bera þess vott að núverandi ríkisstjórn ætlar áfram að líma sig upp að þessum aðilum hvað sem líður stríðsæsingartali þeirra. Íslendingar muni standa með öllum sínum “vinaþjóðum” gegn Rússum ...
Lesa meira

... Um leið og ég tek ofan fyrir framangreindri þrenningu og mörgum öðrum sem þessum málum tengjast og þakka fyrir mig minni ég sjálfan mig og aðra á það að þrátt fyrir þessi formálsorð skiptir engu máli hvað mér finnst um þessa fjölmiðla og þá sem þar starfa. Það sem skiptir máli er að samfélagið allt snúist til varnar fyrir þeirra hönd og allra þeirra sem á að svipta málfrelsinu eða gera svo tortryggilega að þeir fái ekki þrifist ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 12/13.02.22.
... Kannski förum við líka að ræða sannleika og fals um Úkraínu, Sýrland, Kúrda, Líbíu og NATÓ og gerðumst þá hugsanlega fyrir vikið gagnrýnni á Reuters, AP, Moggann, RÚV, Guardian, Washingotn Post og BBC. Í öflugustu fjölmiðlum heimsins er að mínu mati nefnilega miklu logið. Hamarð á falsi daginn út og daginn inn.
Viðbrögðin eiga hins vegar ekki að vera krafa um þöggun heldur kröftug umræða um rétt og rangt, satt og logið. Ef að líkum lætur verður ...
Lesa meira

... "Það eru stef í samfélaginu sem minna óneitanlega á aðdraganda hrunsins; bankasala og ofurbónusar og í viðskiptafréttum má lesa um áhyggjur af því að að fyrirtæki erlendis séu að bera víurnar í okkar afburða viðskiptasnillinga og því þurfi þeir hærri laun og meiri bónusa ...Önnur kunnugleg stef frá því fyrir hrun eru hugmyndir um að láta fjármagnseigendur í auknum mæli stýra velferðarþjónustu, nú heitir þetta: „Það skiptir ekki máli hver veitir þjónustuna“. Jú það skiptir máli..."
Hér er skýr og afdráttarlaus rödd, varnaðarorð, sem stjórnvöldum ber að hlusta á, reyndar ekki bara stjórnvöldum heldur samfélaginu öllu! ...
Lesa meira

Fréttir herma að ríkisstjórnarflokkarnir séu þess fýsandi að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði og gera síðan annað tveggja, draga úr dagskrárgerð þar eða láta skattgreiðendur borga meira. Mér skilst að Sjálfstæðisflokkur vilji að stofnunin dragi saman seglin en Framsókn og VG vilji að framlög úr ríkissjóði verði aukin. Hættan þar er að svo verði aðeins tímabundið. Mér býður í grun að hér sé ríkisstjórnin eina ferðina enn fyrst og fremst að þjóna lund ...
Lesa meira

Ég ætla að leyfa mér að mæla með vefmiðlinum neistar.is. Þar eru birtar greinar sem eiga það sameiginlegt að vera áhugaverðar og sérstaklega vel unnar. Ekki nóg með það heldur eru þær gagnrýnar, ganga ekki erinda eins eða neins og oftar en ekki er siglt upp í móti meginstraumi fjölmiðlunar sem því miður er oft á tíðum - óþægilega oft - hlutdræg í þágu auðvalds, innlends og alþjóðlegs. Á meðal höfunda á Neistum eru þeir Þórarinn Hjartarson og Jón Karl Stefánsson sem báðir birta öðru hvoru greinar hér á síðunni í ...
Lesa meira
... Enginn virðist tala fyrir friði heldur beinist orðræðan að því að kynda undir ófriðnum í Úkraínu og heimta meiri drápstól og blóð. Meira að segja viðist forysta Vinstri grænna fylkja sér í lið með mestu stríðshaukunum. Et ekki kominn tími til að mynda nýja friðarhreyfingu og standa fyrir framan alþingishúsið með kröfuspjöld og krefjast þess að ríkisstjórn beiti sér fyrir friðaviðræðum og hætti þessu stríðstali? Ef þessu heldur áfram eins og er gæti það ...
Stefán Karlsson
Lesa meira
Hefjum verkföll hækkum laun
hagnaðararði má skipta
Því fátæktin er félagsleg raun
Upp grettistaki nú lyfta!
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú birtir upp þá batna sár
bága heilsan skánar
Með vordögum verðum klár
er sólin skín og hlánar.
Af Kristrúnu gæti Katrín lært
því komin er á toppinn
Enn íhaldið virðist Kötu kært
lærði að sitja koppinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Í ellinni er upphefð góð
hjá elítunnar kálfum
Fálkaorðuna fær þá stóð
úthlutað sér sjálfum.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Leiðtogahjörðin á liðinni stund
lyftist á tá hver einasta Hrund
þær sér útvöldu
sitt ágæti töldu
og heimsyfirráð vildu eftir fund.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur
til nánari skoðunar landinn hvetur
þeir vinahóp töldu
og ættmenni völdu
í eftir á meðferð sjáum hvað setur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt.
Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT.
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Þrungin spenna þarna en
Þeir vilja báðir valdið
Gulli Þórðar og Bjarni Ben
berjast nú um íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Á landsfundi verður líf og fjör
líka barist um valdið
því Gulli Þórðar vill verða sör
og reisa við íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Gulli sækir að Bjarna Ben
með baráttu og læti
Segist með sérstakt gen
sem forystuna bæti.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allt Frá lesendum