Greinar Janúar 2022

... Reyndar er ekkert í núgildandi lögum sem bannar fólki eldra en sjötíu ára að starfa. Lagakvöðin snýr aðeins að því að við þessi aldursmörk skuli ljúka réttinum til fastráðningar. Árin sem ég starfaði hjá BSRB bar þessi mál oft á góma og sýndist sitt hverjum. Eftir því sem ég hugsaði málið betur þótti mér engin réttarbót felast í því að afnema þessi aldursmörk þótt ég sjái að sjálfsögðu að á þessu eru kostir og gallar. Þegar málið kom til umræðu á Alþingi árið 2020 ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 29/30.02.22.
... Nú á aftur að slá heimsmet. Okkur er sagt að Ísland skuli leiða heiminn til orkuskipta, verða fyrsta þjóð í heiminum sem búi við umhverfisvæna orku á öllum sviðum, til húshitunar, samgangna og við framleiðslu. Nú skuli öllu kostað til – enda framtíð heimsins í húfi að Íslendingar leggi línurnar. Og aftur er sagt, við höfum allt til alls, nánast óendanlega mengunarlausa orku til eigin nota og hugsanlega fyrir aðra líka, við megum ekki bregðast! Stjórnmálamenn sem varla hafa sýnt náttúrunni meiri áhuga en að fara niður að tjörn að gefa öndunum eru skyndilega brennandi í umhyggju sinni fyrir ...
Lesa meira

Hér að neðan má nálgast slóð á umræðuþátt á Samstöðinni um verkalýðsmál og stjórnmál í boði Gunnars Smára Egilssonar. Í upphafi þáttar sat ég fyrir svörum um nýútkomna bók mína Rauða þráðinn en þó fyrst og fremst árin hjá BSRB og afstöðu til ýmissa málefna sem tengjast verkalýðsbaráttu. Síðar bættust formenn ASÍ, BSRB og Öryrkjabandalagsins í hópinn. Ég hef stundum áður látið þess getið hve vaxandi ...
Lesa meira

Í upphafi vikunnar heimsótti ég þessa tvo, Heimi og Gulla, sem stýra morgunútvarpi Bylgjunnar. Við ræddum nýútkomna bók mína Rauða þráðinn, sem nú er komin aftur í búðarhillurnar. Hér má hlýða á samtal okkar ...
Lesa meira

...Ég var mjög ánægður þegar ég las umfjöllun í FÍB blaðinu fyrir nokkrum vikum um ásælni tryggingafélaga í peninga okkar og hve langt eigendur þeirra gengju í að greiða sjálfum sér arð á okkar kostnað.
En viti menn fyrir þetta var FÍB refsað eins og lesa má í fréttatilkynningu frá félaginu ...
Lesa meira

Eins og hér segir í inngangsorðum hér að ofan úr pistli Björns Jóns Bragasonar er hér fjallað um Rauða þráðinn, nýútkomna bók mína. Greinina má lesa hér ...
Lesa meira

Í dag fékk Arnar Þór Jónsson lögmaður og varaþingmaður mig í spjall í útvarpsþætti sem hann stýrir á Útvarpi Sögu. Margt bar á góma, alþjóðavæðing fjármagnsins og atlaga þess gegn lýðræðinu var á meðal annars tekin til umræðu og að sjálfsögðu Rauði þráðurinn, nýtgefin bók mín þar sem þessi mál eru til skoðunar. Hlýða má á samtal okkar hér ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 15/16.01.22.
... Í viðtölum við fjölmiðla sagði Katrín Þorvaldsdóttir, fyrir hönd erfingja dánarbúsins, að foreldrar sínir hefðu gert sér grein fyrir því frá upphafi að þau væru að safna listaverkum fyrir íslensku þjóðina eins og þeir sem söfnuðu íslensku handritunum svo að þjóðin gæti notið þeirra um ókomna tíð. Hvílíkur minnisvarði um stórhug!En minnisvarða reisti Þorvaldur einnig með ...
Lesa meira

... Ég svaraði því til að þetta lýsti mikilli fyrirhyggju. Þessi fyrsta bók á árinu gæti að sjálfögðu átt eftir að verða jólabók, að vísu ekki bók síðustu jóla, heldur þeirra næstu. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið fyrir jólin 2022.
Án grins þá er það svo að fyrsta sending Rauða þráðarins er komin í verslanir en er við það að seljast upp á fyrstu metrunum. Víða uppseld en sums staðar eru enn til eintök – að því að mér er sagt. Önnur sending er á leiðinni.
Lesa meira

Ég hafði mikla ánægju af því að ræða við útvarpsmanninn Atla Má Steinarsson um þáttaröðina Verbúðina sem þessar vikurnar er sýnd í Sjónvarpinu. Ég var fenginn í viðtalið til að fjalla um verkfall BSRB 1984 og almennt um átök á vinnumarkaði á níunda áratug síðustu aldar. Grundvallarspurning Atla Más var hversu trúverðug Verbúðin væri að mínu mati hvað varðar ...
Lesa meira
... Enginn virðist tala fyrir friði heldur beinist orðræðan að því að kynda undir ófriðnum í Úkraínu og heimta meiri drápstól og blóð. Meira að segja viðist forysta Vinstri grænna fylkja sér í lið með mestu stríðshaukunum. Et ekki kominn tími til að mynda nýja friðarhreyfingu og standa fyrir framan alþingishúsið með kröfuspjöld og krefjast þess að ríkisstjórn beiti sér fyrir friðaviðræðum og hætti þessu stríðstali? Ef þessu heldur áfram eins og er gæti það ...
Stefán Karlsson
Lesa meira
Hefjum verkföll hækkum laun
hagnaðararði má skipta
Því fátæktin er félagsleg raun
Upp grettistaki nú lyfta!
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú birtir upp þá batna sár
bága heilsan skánar
Með vordögum verðum klár
er sólin skín og hlánar.
Af Kristrúnu gæti Katrín lært
því komin er á toppinn
Enn íhaldið virðist Kötu kært
lærði að sitja koppinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Í ellinni er upphefð góð
hjá elítunnar kálfum
Fálkaorðuna fær þá stóð
úthlutað sér sjálfum.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Leiðtogahjörðin á liðinni stund
lyftist á tá hver einasta Hrund
þær sér útvöldu
sitt ágæti töldu
og heimsyfirráð vildu eftir fund.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur
til nánari skoðunar landinn hvetur
þeir vinahóp töldu
og ættmenni völdu
í eftir á meðferð sjáum hvað setur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt.
Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT.
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Þrungin spenna þarna en
Þeir vilja báðir valdið
Gulli Þórðar og Bjarni Ben
berjast nú um íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Á landsfundi verður líf og fjör
líka barist um valdið
því Gulli Þórðar vill verða sör
og reisa við íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Gulli sækir að Bjarna Ben
með baráttu og læti
Segist með sérstakt gen
sem forystuna bæti.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allt Frá lesendum