Fara í efni

FANGELSUN OG FRAMSALI JULIAN ASSANGE MÓTMÆLT

Líklegt má heita að bresk yfirvöld fallist á að framselja stofnanda Wikileaks, Julian Assange, til Bandaríkjanna þar sem hann á yfir höfði sér margfaldan lífstíðardóm fyrir njósnir. Þær áttu að hafa falist í því að koma á framfæri upplýsingum um stríðsglæpi Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra, þar á meðal Breta, í Írak, Afganistan, Líbíu og víðar. Sjónvarpsstöðvar birtu myndskeið þessu til staðfestingar svo og úr skýrslum og bréfaskriftum ráðamanna.
Þannig má heita að helstu fjölmiðlar heimsins séu “samsekir” svo og við sem horfðum á og lásum. Aðförin að Wikileaks og Julian Assange er þess vegna aðför að frjálsri fréttamennsku.
Ég mun afhenda breska sendiherranum á hádegi í dag bréf þar sem ég krefst þess að Julian Assange verði þegar í stað látinn laus úr fangelsi og fallið verði frá áformum um framsal. Í bréfinu segi ég jafnframt að ég muni árétta þessa kröfu á þar til gerðu skilti fyrir framan sendiráðið í dag, á morgun og á miðvikudag klukkan 12.
breski sendiherrann.JPG