Fara í efni

LIFÐU NÚNA

Vefsíðan Lifðu núna hvetur okkur sem erum komin af barnsaldri að gera einmitt þetta, lifa lífinu núna. Á síðunni, sem er bráðgóð, koma ellismellir fram og segja frá því sem á daga þeirra drífur og hvað það er sem einkum heilli þá. Í vikunni var ég spurður hver væri minn uppáhaldsstaður á Íslandi og nefndi ég Þingvelli og reyndi að færa fyrir því rök. Brá mér síðan til Þingvalla til að fá staðfestingu á því innra með mér að valið væri rétt. Félagsskapurinn gat ekki verið betri, tvær dætradætur, Vala og Sigga Olga. Þær voru því sammála að afi hefði valið rétt. Sjá: https://lifdununa.is/grein/thingvellir-draumastadur-ogmundar-jonassonar/