Fara í efni

ÍSLAND ÚR NATÓ!

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus
Birtist í Fréttablaðinu 08.08.15.
Í júní missti flokkur Erdogans Tyrklandsforseta meirihluta sinn á tyrkneska þinginu. Flokknum sem kennt var um tapið, Lýðræðisfylkingunni, HDP,  hefur  verið líkt við Syriza í Grikklandi enda bandalag skyldra hópa á vinstri vængnum. Kúrdar eru þarna fyrirferðarmestir. Því er litið svo á að sigur HDP hafi verið  sigur Kúrda.
Þannig lítur Erdogan forseti líka á málið. Eftir kosningarnar töldu ýmsir fréttaskýrendur að hann myndi fljótlega boða til nýrra þingkosninga og freista þess að koma fylgi HDP undir 10% sem er það hlutfall sem flokkar þurfa í kosningum til að fá fulltrúa á þing. Í kosningunum hafði flokkurinn, flestum að óvörum, fengið yfir 13% fylgi.   

Enn hefur ekki verið boðað til kosninga. Hins vegar hefur tyrkneski herinn hafið árásir á stöðvar Kúrda innan landamæra Tyrklands sem utan. Allt með blessun frá  NATÓ sem efndi til fundar með öllum aðildarríkjum sínum, að ósk Tyrkja, til að fá stuðning í baráttunni „gegn hryðjuverkum".

Þar er vísað í atburðarás sem hófst 20. júlí með mannskæðri sprengjuárás ISIS samtakanna í Suruc  í austurhluta Tyrklands. Suruc er skammt norður af sýrlensku borginni Kobani, sem við þekkjum orðið vel af fréttum eftir að Kúrdum tókst að hnekkja þar yfirráðum ISIS. Sprengjutilræði ISIS var beint að kúrdískum ungliðasamtökum sem unnu að undirbúningi uppbyggingar í Kobani. Þrjátíu og tveir létust og yfir eitt hundrað særðust. Í kjölfarið myrtu kúrdískir vígamenn tvo tyrkneska lögreglumenn sem sagðir voru hafa aðstoðað ISIS við ódæðið.  Lögreglumannanna tveggja hefnir nú tyrkneski herinn með loftárásum á Kúrda.  Á sameiginlegu tungumáli Tyrklands og NATÓ heitir það að berjast gegn hryðjuverkum.

Öllum sem vilja vita er hins vegar kunnugt um að tyrkneska stjórnin hefur veitt ISIS beinan og óbeinan stuðning. Í seinni tíð eru ISIS sögð ógna hagsmunum NATÓ ríkja og tyrkneska stjórnin því litin hornauga fyrir að sýna ekki lit í baráttu gegn þeim. En þá skal tækifærið  jafnframt notað til að veikja Kúrda og grafa undan nýlegri velgengni þeirra á hinum lýðræðislega vettvangi. Stórfellt áreiti og ofsóknir alla kosningabaráttuna höfðu ekki dugað til að  veikja með Kúrdum friðarviljann hvað sem nú á eftir að gerast.    

Friðarferlið sem tyrknesk yfirvöld og forysta Kúrda hafa unnið samkvæmt undanfarin tvö ár er í uppnámi. Grun hef ég um að til þess sé leikurinn gerður.

Eins og að framan er rakið koma viðbrögð ráðamanna í Tyrklandi ekki á óvart.
Og því miður ekki heldur viðbrögð NATÓ.

Tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um úrsögn Íslands  úr NATÓ bíður afgreiðslu á Alþingi. Enn höfum við verið minnt á hve brýn sú tillaga er.