Greinar Október 2020

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 10/11.10.20.
Þegar kenna átti börnum fyrr á tíð að hætta sér ekki á ókunnar varasamar slóðir, til dæmis fara ekki langt inn í myrkan skóg þar sem vargdýr og óvættir héldu sig, þá voru þeim stundum sögð óhugnanleg ævintýri til að vara þau við hættunum: Sjáið hvað henti Rauðhettu litlu. Úlfur át ömmu hennar og vildi éta hana sjálfa líka.
Sagan af vondu stjúpunni og Mjallhvíti er langsóttari, en ég get mér þess til að ...
Lesa meira

Þegar Jón Karl Stefánsson skrifar þá hlusta ég. Ekki vegna þess að hann tali sérlega hátt heldur vegna þess að hann á jafnan erindi við lesendur þegar hann skrifar. Og erindið við okkur í grein sem hann nú birtir hér á síðunni er að honum finnst ekki vera hlustað sem skyldi á áhættuhópa og fólkið sem starfar á gólfinu í umræðu og aðgerðum gegn Kóvid. Jón Karl fjallar sérstaklega um ...
Lesa meira

Ólína Þorvarðardóttir lætur ekki að sér hæða. Nýútkomin bók hennar, Spegill fyrir skuggabaldur, fjallar um spillingu og misbeitingu valds á Íslandi. Það er freistandi að endursegja sumt sem fram kemur í þessu riti svo magnað og lærdómsríkt er það. Ég nefni sérstaklega samskipti ýmissa aðila, þar á meðal höfundar sjálfrar, við Samherjaveldið, yfirganginn og ofbeldið – hvernig valdi auðsins er beitt gegn þeim sem voga sér að gagnrýna, ekki aðeins Samherjasamsteypuna, heldur fiskveiðistjórnarkerfið, kvótakerfið, sem hefur fært stór-kvótahöfunum auð “sinn”. Ólína hefur greinilega ...
Lesa meira

… já, og ég vil að sýnum ítrustu varkárni og þess vegna virði ég ábendingar sóttvarnarteymisins, en samt, samt finnst mér varnaðarorð Halldórs í einni af brilljant skopteikningum sínum í Fréttabalaðinu til að hafa í huga. Hópsálin lætur ekki að sér hæða. Hún er ...
Lesa meira

Talsmenn EES segja að íslensk stjórnvöld séu brotleg að því leyti að þau virði ekki skuldbindingar sínar gagnvart EES. Tveir þingmenn segja í Morgunblaðinu í dag að það sé undir okkur komið hvernig við bregðumst við, enda standi íslensk lög ofar Evrópurétti. Það sem ég skil nú er þetta: Yfirgnæfandi meirihluti alþingismanna sagði okkur í aðdraganda þess að þingið samykkti Orkupakka 3, að sú samþykkt skipti engu máli – Guðlaugur Þór utanríkisráðherra og orkumálastjóri Evrópusambandsins hefðu átt gott spjall þar sem hefði komið fram skilningur á stöðu Íslands – og auk þess réðum við því sem við vildum ráða, íslensk lög væru ...
Lesa meira
Á fátæktinni fékk að kenna
og faðirinn snortin sari
Þá alvaran fór upp að renna
úr varð Gunnar Smári.
Þá sósíalisminn í sálina rann
er samhjálp kynntist drengur
Við kapítalisma ei kunni hann
enda kallaður alþýðu fengur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Engar vangaveltur voru um málið og þá hvort ekki hefði verið rétt að leyfa fólkinu að fara til síns heima eins og við hin gerum ef við smitumst af veirunni! Er það þá líka forréttindafrekja? Ferðamennirnir sem hingað komu vitandi um sóttkvíarskylduna færu síðan á hótel og greiddu þar að sjálfsögðu fyrir sig. Í fréttatíma Sjónvarps var ekki boðið upp á slíka málefnalega umfjöllun.
Fréttastofa sem setur málin svona fram í viðkvæmu deilumáli veldur ekki hlutverki sínu um að vera upplýsandi og málefnalegur miðill heldur kemur fram eins og dómgreindarlaus áróðursvél fyrir sjónarmið valdhafa.
Í þessum viðkæmu málum er beinlínis óábyrgt að ...
Sunna Sara
Lesa meira
Það var illa til fundið af Kára Stefánssyni í Kastljósi Sjónvarpsins að sveija á Brynjar Níelsson, alþingismann, og uppnefna hann fyrir að hafa vogað sér að fara til útlanda. Ef Brynjar Níelsson hlítir sóttvarnareglum á hann ekki að þurfa að sitja undir svívirðingum, hvorki af hálfu Kára Stefánssonar né annarra. Hvert stefnir þetta þjóðfélag okkar?
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Brynjar Trump brögðin kann
fátt bítur á guttann
Á sólarströnd nú situr hann
og sendir okkur puttann.
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Að standa í þessu er stöðugt puð,
styðjum við Frakka og Belga.
Við trúum á okkar evrópska guð,
inngöngu í sambandið helga.
Að sitja á þingi og sulla með leir,
sannleikann móta ég hálfan.
Þruglið úr höfðinu þoli ekki meir,
þess vegna kæri mig sjálfan.
Evrópu selja áfram völd,
engar leiðir góðar.
Braska þau á bakvið tjöld,
beygja stoðir þjóðar.
...
Kári
Lesa meira
Hælið fyrir ríka öskurapa: Öskur og hvæs taugatrekktra og ríkra í hátalarakerfi, gegn óþolandi kyrrð öræfa landsins og gegn kyrrlæti valdra náttúrudásemda, varð stofn að ríkiskynningu til erl.ferðamanna nýlega.”Þeir ríku gráta mest” er sagt, þeir búa oftast við sálarkvalir. Slíkt mannval er einmitt æskilegast gesta til landsins, peningar þeirra í boði. “ Komið og öskrið á kyrrðina” (gegn greiðslu), er því tilboð íslenskra stjórnvalda til ríkisfólks heimsins, þess sem oftast grætur í hjarta sér þótt úr gulli sé gert. Þekkingu á bágu sálarlífi auðmanna er vel til að dreifa á Íslandi, hana má fénýta alþjóðlega. “ Komið til Islands, grátið, gólið, hvæsið, öskrið að vild” og græjurnar eru til reiðu. Vonin er ...
Grímur
Lesa meira
Nú fer páska helgin í hönd
hér margir láta sig dreyma
Vandamál sjáum víða um lönd
verum öll dugleg heima.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Ég er sammála þér varðandi skynsemina, hún hlýtur að þurfa að fá að vera með. Ferðamálaráðherrann sem fór í partí með vinkonum sínum í miðju kófinu lætur nú loka annað fólk inni í hótelfangelsi og ríkisstjórn sem lætur milljarða í að auglýsa að fólk eigi að drífa sig til Íslands, lokar svo gestina inni í fangabúðum sem skattgreiðendur þurfa að borga fyrir. Eru engin takmörk? Var verið að tala um skynsemi eða kannski skort á henni? Auðvitað átti ekkert að auglýsa að fólk ætti að koma við þessar aðstæður! Og þarf ekki að ræða við ferðafyrirtækin sem auglýsa helgarferðir til að sjá eldgos? Hvernig væri að slá í einn fund í þjóðaröryggisráðinu þar sem þau sem í því sitja gætu tekið púls hvert á öðru? Það er orðið eitthvert skammhlaup í heilabúunum sýnist mér.
Sunna Sara
Lesa meira
Stjórnvöldin undir stórútgerð hlaða,
stórlega margt er fúið.
Fjárglæframenn valda feikna skaða,
færist á þjóðarbúið.
...
Kári
Lesa meira
Nú vorið nálgast bjart og hlýtt
Nú kemst ég brátt á sjóinn
Nú verður hér fleyi úr fjöru ýtt
Nú farinn er allur snjórinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð
Lesa meira
Allt Frá lesendum