Greinar Október 2020

Ég bíð þess spenntur að heyra Sigríði Á Andersen, fyrrverandi dómsmálaráðherra, blanda sér í stjórnarskrárumræðuna þar sem spurt er: Hvar er nýja stjórnarskráin?
Enn sem komið er birtist ekki Sigríður Andersen á skjánum og hefði hún þó ríka ástæðu til þess.
Með “nýju stjórnarskránni” hefði hún sloppið við allt argaþrasið við skipan í Landsrétt á sínum tíma.
Hún fór þá ekki ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 24/25.10.20.
Fyrir ekki ýkja löngu sótti ég tónleika hjá tónlistarskólanum Allegro. Þetta voru fámennir tónleikar, enda ítrustu varúðarreglur viðhafðar á veirutímum. Músíkantarnir voru fáir, allir á leikskóla- og barnaskólaaldri. Áhorfendur voru einnig fáir. Með öðrum orðum, nánast stofutónleikar nema að húsakynnin voru engin smástofa heldur stór salur. En viti menn, þessi stóri salur varð ...
Lesa meira

Hér á landi verða næstu vikurnar 500 til 600 NATÓ hermenn til að æfa sig í stríði. Maður þarf að vera snöggur til þess að finna af þessu fréttir svo stutt stoppa þær við á miðlunum. Í þinginu ræðir þetta enginn. Alla vega ef svo á annað borð er, þá svo hljóðlega að ekki heyrist. Það er eitt að segjast í orði vera á móti NATÓ eins og VG segist ennþá vera en faðma síðan þetta hernaðarbandalag og fulltrúa þess að sér hvenær sem færi gefst. Út úr því er ég fyrir löngu farinn að lesa: Ísland í NATÓ, herinn kjurrt. En látum nú vera þótt allir - eða allflestir – þingmenn ..
Lesa meira

... skýr regla gerir valið auðveldara og lífið líka auðveldara fyrir bæði starfsmann og vinnustað, hvorugum má gleyma! Staðreyndin er sú að einhvern tímann kemur að því að starfsgetan er ekki sem skyldi vegna aldurs. Í stað þess að vinnustaðurinn segi, ertu ekki farinn að finna fyrir aldrinum Ögmundur minn, þá ert þú floginn úr föstu starfi þegar að þessu kemur. Er ef til vill besta fyrirkomulagið að hafa línur skýrar?
-sveigjanleg starfslok hafa tíðkast víða hjá hinu opinbera með því fyrirkomulagi að fólk fer í ...lu
Lesa meira

... Svo kom þriðja reiðarslagið. Hér eru staddar tugir orustuþotna frá NATÓ að æfa sig fyrir strið í boði ríkisstjórnarinnar. Eyfirðingar urðu í dag vitni að logandi eld-brennurum aftur úr þessum vélum. Að sögn er þetta gríðarlega mengandi. Þannig að enn þarf að planta. Svo má náttulega leika sér með tölur og ...
Lesa meira

... Og til að botna fyrirsögnina, ÞAR SEM ÓLÍKLEGT ER AÐ Á ALÞINGI VILJI NOKKUR fá útskýrt sitt hvað sem hljómar mótsagnakennt í meira lagi úr ranni ríkisstjórnarinnar, þá leyfi ég mér að setja fram eftirfarandi vangaveltur: Samgönguráðherra upplýsir í Kastljósi Sjónvarpsins í gærkvöldi að til standi að setja, að því er mér skildist, um 1200 milljarða(!) í samgöngumál á næstu 15 árum og gera þannig átak sem dugi til þess að koma samgöngumálum í gott lag. Hann er spurður hvers vegna þetta hafi ekki verið gert fyrr og hann svarar að ...
Lesa meira

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, mætti Í Bítið á Bylgjunni í gær. Ég mæli með því að á næsta fundi ríkisstjórnarinnar verði þetta viðtal á dagskrá, farsímar verði lagðir til hliðar og ríki þögn þar til viðtalinu lýkur. Síðan verði næsti dgaskrárliður: Hvernig íslenskur landbúnaður verið reistur við og varinn til frambúðar.
Viðtalið er ...
Lesa meira

... Vefmiðillinn Vísir bregst við – þökk sé miðlinum – og vill vita hver hafi látið undanskilja spilakassa banninu og hverju það sæti. Í svari heilbrigðisráðuneytisins í dag kemur fram að það eru heilbrigðisyfirvöldin sjálf sem að þessu standa !!! Þetta sé „í samræmi við minnisblöð sóttvarnalæknis til heilbrigðisráðherra um sóttvarnaráðstafanir … Þá sé það mat ráðuneytisins að smithætta af stökum spilakössum sé ekki meiri en eigi við um margar aðrar aðstæður og ...
Lesa meira

Spilavítum Háskóla Íslands hefur verið lokað tímabundið í samræmi við tilmæli sóttvarnarlæknis. Samkvæmt því sem fram hefur komið er þetta bann virt og er svo að skilja að allir spilakassar HÍ séu lokaðir nema að fréttir hafa borist af því að nokkrir kassar séu enn opnir á tilteknu veitingahúsi. Íslandsspil sf sem er í eigu Rauða kross Íslands, Landsbjargsr og SÁÁ eru hins vegar enn með alla sína spilakassa opna. Fram hefur komið af hálfu Samtaka áhugafólks um spilafíkn að tilvísun í spilakassa hafi verið fjarlægð úr þeirri reglugerð sem var í gildi síðastliðið vor. Í frétt á vefritinu Vísi kemur fram að Rauði krossinn hafi fyrir sitt leyti bent á að sprittbrúsar séu
Lesa meira

Fyrir helgina birtist viðtal við Ölmu Björk Hafsteinsdóttur, formann Samtaka áhugafólks um spilafíkn, á vefmiðlinum Vísi. Þar spyr hún hvers vegna orðið spilakassi hafi verið tekið út úr reglugerð um lokun spilasala.
Eins og menn muna var spilasölum seint og um síðir lokað í aðhaldsaðgerðum stjórnvalda síðastliðið vor.
Þrátt fyrir ákall um að opna þá ekki á ný var það þó gert og viritist engin áhrif hafa á Alþingi og ríkisstjórn að ...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum