Greinar Janúar 2020

Í þessi glæsilega húsi á Akranesi, Gamla Kaupfélaginu, Kirkjubraut 11, fer fram Akranesfundurinn um kvótann: Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim í hádeginu laugardaginn 1. febrúar, klukkan 12-14. Sjá nánar hér...
Lesa meira

Vefsíða Skessuhorns greinir í dag frá opna fundinum á Akranesi á laugardag um kvótakerfið sem sagt hefur verið frá hér á síðunni. Hann er í fundaröðinni til Róttækrar skoðunar og ber yfirskriftina: Gerum Ísland heilt á ný – kvótann heim!
Frétt Skessuhorns er hér...
Lesa meira

Í dag birti Skessuhorn grein eftir mig þar sem ég kynni fyrirhugaðan fundum kvótann á Akranesi á laugardag. Þar segir meðal annars: “Nú stendur til að efna til fundar á Akranesi í Gamla Kaupfélaginu, næstkomandi laugardag …Ég leyfi mér að hvetja Skagamenn til að fjölmenna á fundinn og taka þátt í umærðu um þetta brennadi málefni sem Akranes þekkir svo vel af eigin raun. Fundurinn hefst klukkan tólf og stendur í tvo tíma … Grenina má nálgast hér ...
Lesa meira

Á laugardag verður fundur um mál málanna á Akranesi, Kvótann heim! Allir eru velkomnir á fundinn. Talsvert hefur verið beðið um að fá þessa umræðu sem víðast og er í undirbúningi að bregðast við slíkum áskorunum. Eitt er víst að ...
Lesa meira

Á samfélagsmiðlum sé ég að menn leggja mismunandi skilning í uppsláttarfyrirsögn DV þar sem vísað er í viðtal við mig inni í blaðinu. (Nú er búið að birta viðtalið í heild á vefsíðu, sjá slóð að neðan.) Þar er ég spurður út í fundi mína um kvótakerfið. Eins og fram hefur komið og á enn eftir að koma fram - því fundirnir eru rétt að hefjast - hef ég fengið Gunnar Smára Egilsson, blaðamann, með mér til fundahalda undir þessari fyrirsögn, sem reyndar er botnuð: Kvótann heim. Það þýðir í fyrsta lagi að ...
Lesa meira

Þótt ekkert sé endanlega ákveðið finnst mér líklegast að næsti kvótafundur í fundaröðinni Gerum Ísland heilt - kvótann heim, verði á Akranesi. Og illa svikinn væri ég ef svo kæmi ekki Þorlákshöfn. Það get ég þó upplýst að í öllum hlutum landsins hefur verið óskað eftir því að fá þessa fundi til sín. Við þeim óskum verður orðið. En ekki liggur lífið við – aldan þarf sinn tíma til að rísa og það er að gerast. Þar hefur Styrmir Gunnarsson ...
Lesa meira

Birtist i helgarblaði Morgunblaðsins 18/19.01.20.
Eða hvað? Lögfræðingum er tamt að segja okkur að ef eitthvað bjátar á í lífinu eða ef eitthvað illt hendir, þá séu meiri líkur en minni á að finna megi sök hjá einhverjum öðrum en okkur sjálfum á því hve illa fór. Þeir skuli aðstoða við að finna sökudólginn og krefja hann um skaðabætur – að sjálfsögðu gegn vægri þóknun eða ekki mjög vægri þóknun ef “hinn seki” er sæmilega loðinn um lófana. Svona er þetta nánast eðli máls samkvæmt ef ...
Lesa meira

Nú er kvótafundurinn sem haldinn var í Þjóðmennigarhúsinu síðastliðinn laugardag, undir yfirskriftinni Kvótann heim, kominn á myndband. Það eigum við kvikmyndateyminu þeim Ragnari, Hildi, Gídeon og Agnesi að þakka! Áður hafa þau komið við sögu funda sem taka á brennandi málum samtímans og þá stundum verið fleiri úr þessari frábæru fjölskyldu ...
Lesa meira

... Þess vegna er orðum kvennanna tveggja á myndinni ekkert síður beint til íslenskra stjórnvalda en stjórnvalda annarra ríkja sem bera ábyrgð á hernaðarofbeldi og yfirgangi í Mið-Austurlöndum: Ef þið viljið ekki taka á móti flóttamönnum, hættið þá að reka fólk á flótta. ...
Lesa meira

Fundurinn um kvótakerfið í Þjóðmenningarhúsinu á laugardag hefur fengið mikinn hljómgrunn. Gunnar Smári Egilsson, blaðamaður, flutti þrumugott erindi um kerfið í framkvæmd, hvernig það hefur brotið samfélagið og um naðusyn þess að fá kvótann aftur heim til samfélagsins svo það megi verða heilt á ný. Umræðan á fundinum og í kjölfar hans ómar víða og hafa borist óskir um að fá hann út á land. Við höfum tekið vel í það. Þá er þess að geta að þess er skammt að bíða að fundurinn verði aðgengilegur á youtube. Við vorum svo ólánsöm að ...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum