Fara í efni

GÓÐAR FRÉTTIR ÚR HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTI

Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra, var enn eina ferðina boðberi góðra tíðinda í dag þegar hún kynnti lækkun komugjalda í heilsugæslunni og aukinn stuðning við ýmsa hópa sjúklinga.

Ráðherrann lét þess getið að stefnt væri að gjaldfrírri heilsugæslu á árinu 2021. Þessi vegferð hefur áður verið boðuð og má þar visa í sambærileg skref fyrir réttu ári. Sjá hér: https://www.ogmundur.is/is/greinar/mikilvaeg-og-lofsverd-akvordun-um-komugjold

Miklu meira fé þarf að verja til heilbrigðisþjónustunnar en nú er gert og þá ekki síst til Landspítalans sem er enn í alvarlegri fjárþröng eftir hallarekstur allt frá aldamótum og síðan mjög alvarlegt högg í kjölfar hrunsims. Ríkisstjórn og Alþingi hafa þar ekki axlað sína ábyrgð og gera ekki enn.

Hvað heilbrigðisráðherrann, Svandísi Svavarsdóttur, áhrærir, en hún er ábyrg fyrir skipulagi þjónustunnar innan þess fjárhagsramma sem ríkisstjórn og Alþingi skammtar, þá veður ekki annað sagt en að kúrsinn sé réttur.
Það er þakkarvert!

Ég hvet lesendur til að kynna sér þær ráðstafnair sem ráðherra gerði grein fyrir í dag. Upplýsingarnar eru hér:

https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2019/12/19/Milljordum-varid-til-ad-laekka-greidsluthatttoku-sjuklinga/