Fara í efni

RÍKISSTJÓRNINNI BER AÐ SKIPTA ÚT STJÓRNENDUM ISAVIA

Ingi Jóhannsson, samgönguráðherra, var afdráttarlaus í sjónvarpsfréttum í gær: Ekki stendur til að einkavæða Leifsstöð. 

Það var gott að heyra – en bara svo langt sem það nær.

Ráðherrann var spurður vegna frétta í gær í tilefni nýsamþykktrar uppskiptingar Isavia, sem sögð var nauðsynleg forsenda einakvæðingar. Frá þessu var greint í flenni-frétt Fréttablaðsins.

Áður hafði nýr forstjóri Isavia sagt að hann vildi fá erlenda fjárfesta með fjármagn og þekkingu að Leifsstöð. Væntanlega eins og Namibíumenn fengu íslenska “sérfræðinga” til að koma með “þekkingu” inn í namibískan sjávarútveg.

Hvílíkt endemis rugl!

Það vantar hvorki erlent (né innlent fjármagn) í Isavia, það bókstaflega streyma inn peningarnir vegna stöðugt aukinna umsvifa. Og “þekkingu” frá fjárfestingarbröskurum viljum við ekki! Það þarf hins vegar að koma í veg fyrir að handlangar braskara, settir yfir Leifsstöð í okkar umboði, hafi þessa eign af okkur. Svo alvarlegt er þetta mál.

Allt minnir þetta á árin upp úr aldmótum þegar verið var að einkavæða bankana. “Bara skipulagsbreytingar”, “stendur alls ekki til að einkavæða”. Svona var þetta um fleiri stofnanir í almannaeign, ekki bara bankana. Allt reyndist þetta vera lygi og blekkingar!

Sama er uppi nú. Ef samgöguráðherra og ríkisstjórninni er alvara að ekki eigi að einkavæða flugsvöðvar hér þá ber að skipta þegar í stað út stjórn Isavia og fá þar auk þess nýjan forstjóra. Hugsanlega munu þessir stjórnendur bíða af sér þessa ríkisstjórn ef það er talið heppilegra. En þá verður líka allt tilbúið. Þetta er gamla aðferðin, láta tímann vinna með sér. Það er nákvæmlega þetta sem þarf að koma í veg fyrir að gerist. 

Ótvírætt er að stjórnendur ISAVIA eru að undirbúa einkavæðingu. Ráðherra ber nú ótvíræð skylda að verja almannahag gegn ásælni gróðafjármagns. Til þess þarf að fá nýja stjórnendur yfir Isavia. Núverandi stjórnarmenn Isavia standa með einkafjármagni gegn alemenningi. Það þarf ekki einu sinni að lesa á milli línanna.  

Sjá fréttir í Fréttablaði og á Vísi.

https://www.frettabladid.is/markadurinn/skiptingin-naudsynleg-til-ad-hleypa-fjarfestum-ad-keflavikurflugvelli/

https://www.visir.is/g/2019190918897