Fara í efni

VLADIMIR Á TÓNLEIKUM Á FÖSTUDAG

Það er ekki einvörðungu vegna persónulegra kynna að mér þykir það jafnan vera tilhlökkunarefni þegar píanóleikarinn, Vladimir Stoupel, leggur leið sína til Íslands, heldur einnig vegna þess hve ég nýt þess að sækja tónleika þessa heimskunna listamanns. Og að sjálfsögðu vil ég að sem flestir fái notið.

Næstkomandi föstudag, 11. október, heldur hann tónleika í MÍT salnum klukkan 19:30. 

Eftrifarandi er úr fréttatilkynningu.
Efnisskrá:

Franz Schubert (1797-1828)
Wanderer-fantasía op. 15
Erwin Schulhoff (1894-1942)
Svíta nr. 3 fyrir vinstri handar píanó (1926)
Preludio - Air - Zingara - Improvisazione - Finale

Hlé - 

Dmítríj Shostakovítsj (1906-1975)
Sónata nr. 2 í h-moll op. 61 (1943)
Allegretto - Largo - Moderato con moto

Píanistinn Vladimir Stoupel hefur vakið athygli fyrir sína blæbrigða- og tilfinningaríku túlkun. Hann hefur m.a. komið fram með Berlínarfílharmóníunni, hljómsveitinni í Konzerthaus Berlín, Gewandhaus-hljómsveitinni í Leipzig, Bæversku útvarpshljómsveitinni og Útvarpshljómsveit Berlínar. 

Washington Post hefur lofað hann fyrir tjáningaríka túlkun og Der Tagesspiegel Berlin hefur lýst flutningi hans sem „heillandi og stemningsríkum”. 

Frankfurter Allgemeine Zeitung lýsti einleikstónleikum hans sem „ógleymanlegum”.

 **

Vladimir mun halda opinn masterclass í Flyglasal LHÍ, Skipholti 31 á laugardaginn október kl.15.