Greinar Júní 2019

Ýmsu góðu hafa mörg íslensk fyrirtæki fengið áorkað um dagana – enda margir lagt hönd á plóginn. Óneitanlega hefur frumkvæði einstaklinga líka skipt miklu máli. Það á án nokkurs efa við um Össur Kristinsson sem setti á laggirnar Össur nafna sinn, fyrirtækið, sem síðan hefur vaxið og dafnað, fyrst á Íslandi og svo um heiminn allan. Og framleiðslan er ekki eins og hver önnur neysluvara heldur ...
Lesa meira

...Pólitískar fangelsanir eru daglegt brauð og á það við um börn og unglinga auk fullorðins fólks. Ég hvet alla til að kynna sér árasfjórðungsrit Addameer sem nálgast má hér ... Hið skelfilega við framvinduna í Palestínu er þögn umheimsins. Eins og við þekkjum þá segir máltækið að þögn sé sama og samþykki. Sem betur fer er þögnin ekki alger. Sveinn Rúnar Hauksson, læknir, hefur aldrei þagnað enda gerðu Palestínumenn hann að heiðursborgara í höfuðborginni Rammallah fyrir ekki svo ýkja löngu og Björk Vilhelmsdóttir, fyrrum borgarfulltrúi ...
Lesa meira

Talsverðar umræður hafa spunnist víðs vegar um heiminn um kröfu Bandaríkjamanna um að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, verði framseldur til Bandaríkjanna þar sem honum verði stefnt fyrir njósnir. Eins og fram hefur komið á hér á síðunni fór ég til London fyrr í mánuðinum til að sitja fyrir svörum hjá Press Association í London ásamt Kristni Hrafnssyni, ritstjóra Wikileaks og lögfræðingum Wikileaks, um málareksturinn á hendur honum. Þessu greindi ég frá ... Í ofangreindri frásögn kom einnig fram að ég tók þar þátti í fundi ásamt fleirum undir yfirskriftinni Imperialism on Trial ...
Lesa meira

Bændablaðið hefur í seinni tíð vera einn kröftugasti fjölmiðill landsins. Bændablaðið er að vinna sér þann sess í hugum okkar margra að blaðið verði maður að lesa vilji maður fylgjast með því markverðasta sem fram kemur í þjóðmálaumræðunni.
Ritstjórnargreinar Bændablaðsins hafa verið afbragðsgóðar og sömuleiðis fréttaefni. Þá er að nefna greinar í blaðinu sem margar hverjar eru í senn fróðlegar og vekjandi.
Ein slík birist í síðasta tölublaði og er eftir Örn Þorvaldsson, sem ...
Lesa meira

ECRI er skammstöfun fyrir þá nefnd Evrópuráðsins (ekki Evrópusambandsins) sem fjallar um kynþáttafordóma og umburðarleysi, European Commission against Racism and Intolerance. Einn fulltrúi er frá hverju 47 aðildarríkja Evrópuráðsins og var ég skipaður fulltrúi Íslands sumarið 2017 og sat ég minn fyrsta fund í lok þess árs ... Á að leyfa trúarhópum að reka skóla á sínum vegum og sínum forsendum innan almenna skólakerfisins, þ.e. skóla kaþólikka, gyðinga, íslamska skóla og á þá ríkið jafnaframt að standa straum af kostnaði; á að leyfa klæðnað í skólum og þegar opinberum embættum er sinnt, sem endurspeglar trúarbrögð ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 22/23.06.19.
Afstaða lækna til boðaðrar heilbrigðisstefnu virðist nokkuð ráðast af því hvar þeir eru starfandi. Afstsaða samtaka lækna er svo aftur varfærin, þeir vilja greinilega sem fæsta styggja og minna á veðurfræðinginn sem sagður var hafa spáð fyrir verslunarmannahelgi: “Gert er ráð fyrir breytilegu veðri - um allt land.“ Það sannleikskorn er í þessari aulafyndni að spá um slæmt veður um verslunarmannahelgi getur ...
Lesa meira

Ég varði fyrrihluta þjóðhátíðardagsins í flugvél flugfélags sem einu sinni hét Flugleiðir og einhvern timann Flugfélag Íslands, en heitir nú Icelandair fyrir millilandahlutann og Iceland Connect fyrir hinn innlenda. Icelandair er þó ekki útlenskara en svo að í tilefni dagsins var um borð í vélinni boðið upp á súkkulaðiköku með íslenskum fána á lítilli stöng. Þetta var vel til fundið og kom öllum í gott skap, útlendingum jafnt sem Íslendingum. Síðan fékk maður ...
Lesa meira
... Í vikunni var ég í London, tók þar þátt í ráðstefnu um þetta málefni undir heitinu Imperialism on Trial. Þar talaði ég ásamt fleirum en fundarstjórinn var Goerge Galloway. Ég sat einnig ásamt Kristni Hrafnssyni, ritsjóra Wikileaks og lögmanni úr teymi Wikileaks, fyrir svörum á fréttamannafundi Press Association þar sem saman voru komnir um áttatíu fréttamenn víðs vegar að úr heiminum. Ég taldi sextán sjónvarpsmyndavélar og er það til marks um áhugann á málinu. Á miðvikudag var tekið upp viðtal við mig í myndveri Russian Television þar sem ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 08/09.06.19.
Nú er ljóst að ríkisstjórnin ætlar að samþykkja matarinnflutningspakkann. Um er að ræða mál sem varðar stefnu Evrópusambandsins þannig að Samfylking og Viðreisn verða með stjórnarflokkunum og í ljósi sögunnar Píratar að líkindum líka. Saga málsins er sú að ...
Lesa meira

...Hvert hinna 47 aðildarríkja Evrópuráðsins eiga fulltrúa á nefndinni en á fimm ára fresti heimsækja, fyrir hennar hönd, tveir nenfndarmenn ásamt starfsmönnum Evrópuráðsins sérhvert aðildarríkja Evrópuráðsins. Hinn nefndarmaðurinn var írskur, Michael Farrell að nafni, þekktur mannréttindalögfræðingur í Írlandi en lengi vel hafði hann búið á Norður-Írlandi. Þetta var fyrsta heimsókn mín fyrir ECRI nefndina en áður hafði ég verið svipaðra erindagjörða í Moldóvu í nokkur skipti fyrir hönd þings Evrópuráðsins ...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum