Greinar Maí 2019

Í morgun ávapaði ég fyrir hönd fimmtíu ára stúdenta Menntaskólans í Reykjavík stúdentahópinn sem nú útskrifast. Ég var í góðum félagskap því Páll Bergþórsson ávarpaði fyrir hönd sjötíu og fimm ára stúdenta, eldhress enda ekki langt síðan hann vakti þjóðarathygli fyrir frækið fallhlífarstökk! Alltaf gaman að hlusta á Pál Bergþórsson. Eftirfarandi er mitt ávarp ...
Lesa meira

Hin langa umræða um markaðsvæðingu raforkunnar á Íslandi er ekki það versta sem hent hefur á Alþingi Íslendinga. Þvert á móti er margt jákvætt við hana. Hún sver sig í langa hefð um andóf minnihluta á þingi gegn umdeildum lagafrumvörpum þingmeirihluta. Ég nefni ...
Lesa meira

Á sunnudag var tekin ákvörðun um að ljúka mótmælasvelti innan og utan tyrkneskra fangelsismúra til að krefjast þess að einangrun Öcalans, leiðtoga Kúrda, yrði rofin.
Hann hafði ekki fengið að hitta lögmenn sína í átta ár þegar heimild var veitt fyrir stuttum fundi 2. maí síðastliðinn. Það nægði ekki til að nær sjö þúsund þátttakendur í mótmælasveltinu létu af mótmælunum en eftir að annar fundur var heimilaður 22. maí sl. barst afdráttarlaus áskorun frá Öcalan um að mótmælunum yrði hætt enda árangur náðst! Athyglisvert er að ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 25/26.
Orð dagsins er kolefnisjöfnun. Nú síðast hjá sjálfri þjóðkirkjunni. Í vikunni kom fram að hún ætlar að kolefnisjafna sjálfa sig eins og það heitir. Þetta er prýðilegt. Jákvæður vilji og svo umræðan um málefnið hefur án efa áhrif á breytni okkar til góðs. Það eru hinar stífu formúlur og kerfi sem hins vegar er ástæða til að gjalda varhug við. Siðareglur alþingismanna koma upp í hugann. Það sést strax og á að fara að beita þeim. En er þá umræðan um kolefnisjöfnun mikilvægari en jöfnunin sjálf? Umræðan er ...
Lesa meira

Í gær, laugardag, komu saman fyrir framan Alþingishúsið á Austuvelli nokkur hundruð manns að mótmæla Orkupakka 3 og þar með ásetningi ríkisstjórnarinnar og meirihluta Alþingis að geirnegla markaðsvæðingarstefnu Evrópusambandsins í orkumálum inn í íslenska framtíð. Útifundurinn var “sjálfsprottinn”, að honum stóðu engin samtök heldur aðeins áhugasamir einstaklingar sem í mínum huga eiga lof skilið. Ég var beðinn um að segja nokkur orð á fundinum og má lesa þau hér ...
Lesa meira
Ef til vill verða bara þau sex að mótmæla Orkupakka 3 á Austurvelli klukkan tvö á morgun. Þó held ég ekki. Ég held það verði fleiri. Ef þau koma öll sem eru á þessari mynd ásamt þeim tugum, ef ekki hundruðum, sem komu saman á sama stað á fimmtudag klukkan fimm þá losa mótmælendur einhverja tugi jafnel hundruð á morgun. Svo verður að minnsta kosti einn til viðbótar. Ég veit það því sá er ég. Ég ætla nefnilega að mæta. Ég hef heyrt að Ómar Ragnarsson komi líka og Erpur og kannski líka ... þú? Endilega: Austurvöllur laugardagur klukkan tvö.
Lesa meira

Í gærkvöldi hlustaði ég á umræðu á Alþingi um orkumálin. Ég hætti að hlusta um miðnættið þegar forseti hafði lýst því yfir að þingfundi yrði senn slitið – aðeins örfáar ræður enn. Við þetta var ekki staðið og umræðan keyrð áfram alla nóttina. Varð mér hugsað til fyrri tíma. Það geri ég líka þegar ég heyri umræðuna kallaða málþóf. En hvað skyldu menn vilja kalla það þegar stjórnendur þingsins standa ekki við gefin fyrirheit? Sitthvað sérkennilegt var sagt við þessa umærðu. Þar á meðal voru ræðuhöld um harðstjórn, nasisma og fasima. Ég saknaði þess að ...
Lesa meira

Birtist í Morgunblaðinu 15.05.19.
... Þetta er ekki frumleg hugsun af minni hálfu því nákvæmlega þessum ráðum hefur Evrópusambandið og svo, því miður, ríkisstjórn Íslands fylgt. Þetta verður auglóst þegar framvindan er gaumgæfð. Þar kemur ekkert á óvart nema að ekki hefði ég trúað því að óreyndu að Vinstrihreyfingin grænt framboð væri komin á þann stað sem hún er nú! Menn hljóta að spyrja hvort til standi að breyta nafninu í Hreyfingin, framboð? Þá þyrfti líka að breyta skammstöfuninni á heiti flokksins til samræmis ...
Lesa meira

... Í vikunni fór ég til Strasborgar ásamt einum öðrum þáttakanda úr Imrali sendinefndinni og áttum við fundi með fulltrúum framkvæmdastjóra Evrópuráðsins, Thorbjörns Jaglands og síðan fulltrúum CPT nefndarinnar sem hefur með höndum að sinna eftirliti með því að ýmis grundvallaratriði séu virt í fangerlsum, svo sem aðgangur að lögmönnum. Enda þótt ég færi til Strassborgar í umboði Imrali sendinefnadarinnar fór ég til Strassborgar á eigin vegum og ekki kostaður af neinum. Hér er frásögn af framangreindum fundum okkar Connors Hayes í vikunni Strassborg ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 11/12.05.19.
... Annar maður sem einnig var fangelsaður fyrir að leiða hryðjuverkasamtök er tyrkneski Kúrdinn Abdullah Öcalan. Hann hefur nú setið í einangrun, einnig á eyju eins og Mandela, Imrali-eyju, í 20 ár, síðustu ár í algerri einangrun. Fyrir fáeinum dögum fékk hann að hitta lögfræðinga sína í fyrsta skipti í átta ár. Þessi heimsókn hefur ekki orðið til þess að þær þúsundir, innan og utan fangelsismúra í Tyrklandi og víðar, hafi hætt ...
Lesa meira
Talskona Pírata, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, sagði í útvarpsfréttum að vonandi yrði komandi þing gott og að menn færu ekki sð karpa um smámál og tók síðan andköf til að frábiðja “málþóf” og mátti skilja að þar vísaði hún í málflutning Miðflokksins um orkupakkann.
Mér þótt sá málflutningur góður en hinn slakur, svo ekki sé meira sagt, frá hendi Pírata, Samfylkingar og Viðreisnar. Flokkur fólksins var í lagi framan af en lyppaðist síðan niður. Stjórnarflokkana...
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Uppruni raforku á Íslandi er 57% jarðefnaeldsneyti, 34% kjarnorka og endurnýtanleg raforka einungis 9%. Þessi tilhögun og brask hjálpar umhverfissóðum að sýna hreinna bókhald.
Það sem ég velti fyrir mér, hver er ábyrgð íslenskra fyrirtækja sem selt hafa kjarnorkuveri upprunaábyrgð sem verður svo fyrir stórslysi, s.b. Tjernobil, er ekki eigandi upprunans sökudólgurinn eða ...
Rúnar Sveinjörnsson
Lesa meira
Þennan gamla þekkjum veg,
þreyttan sýna vanga.
Þú færð banka, þjóðgarð ég,
þannig skiptin ganga.
Ýmsa galla á því sé,
ætla að fylla á tanka.
Þegar vilja þvætta fé,
þá menn nota banka.
...
Kári
Lesa meira
Þegar græðir þjóðarbú,
þá við heimtum lykla.
Rán á banka ræðum nú,
reynsluna höfum mikla.
Tíminn þessi táknræni,
tækifæri í búskap.
Frelsi ásta og fjölkvæni,
fleiri en tveir í hjúskap.
...
Kári
Lesa meira
Bjarni selur bankann fljótt
bætir við fjölskyldu eignir
þó Engeyingarnir eigi gnótt
eflaust verða fegnir.
SA hagnaðist um fúlgur fjár
fljótlega kaupa því banka
En alþýðan sveltur og er sár
sé Drífu með þunga þanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Ef að drýpur eitthvað smér,
öllu vill hún sanka.
Íslenska mafían ætlar sér,
eignarhald á banka.
Kári
Lesa meira
Trump er auðvitað skíthæll. Hlaut þó næstum helming atkvæða í kosningum. Lafir enn í embætti. “ Ákvörðun” netmiðla að loka fyrir munnræpu þessa forseta á vettvangi sinum er vel tekið af mörgum. Eftir stendur að lokunin er í raun pólitisk valdbeiting, sem nýta má í hvaða tilviki sem er. Hvaða raddir sem er má þannig þagga, falli þær ekki í kram ráðandi netmiðla. Þar er hætta búin ...
Nonni
Lesa meira
Aldnir upphefð alla þrá
ágætið sjálfir meta
Og fálkaorðuna vilja fá
allir þeir sem geta.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Landsmenn fagna nú lokast sárið
því loksins kláraðist ótuktar árið
sprautu víst fáum
bættan hag sjáum
og fljótlega líður frá Cóvíd fárið.
Ég óska öllum árið gott
eftir óþverra pestina
Kófinu nú komum á brott
og kjósum svo í restina.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Bönkum ræna bannsettu,
bófum auðinn fólu.
Ráðherra festa á rakettu,
reikna braut um sólu.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum