Greinar Apríl 2019

Stefna, félag vinstri manna, efnir til fundar á Hótel KEA á Akureyri á morgun, 1. maí og mun þetta vera í tuttugasta skiptið sem félagið efnir slíks fundar þar enda ekki stofnað fyrr en á vordögum 1998. Fundurinn hefst klukkan 11 og er öllum opinn, m.a. auglýstur á ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 27/28.04.19.
Ég veit að það er ekki til vinsælda fallið og þá allra síst á fjölmiðlunum að líkja þeim við dauðyfli. En hvað á að kalla þá fjölmiðla sem hafa ekki kafað í þessi Finnafjarðaráform? Sveitarstjórnir nyrðra – í Vopnafjarðarhreppi og Langanesbyggð - segja að ekki sé hægt að horfa fram hjá “atvinnutækifærinu” sem felist í því að gera Finnafjörð að stórskipahöfn, sjálfri siglingamiðstöð norðurhvels jarðarkringlunnar. Hvorki meira né minna! ...
Lesa meira

Fréttablaðið greindi frá því fyrir fáeinum dögum að ASÍ og BSRB leggist gegn frumvarpi um breytingar á lögum um helgidagafrið. Frumvarpið er þrengjandi. Þrengir að launafólki og þeirri viðleitni að halda alla vega nokkrum andartökum á árinu þar sem fjölskyldur geta verið saman án þess að einhverjir séu að vinna. Eins og alltaf eru einhver sem þurfa að vinna, einfaldlega vegna þess að þau gegna slíkum störfum að án þeirra gætum við varla verið, heilbrgðisþjónustan og löggæslan eru dæmi þar um og vissulega hefur ferðamennskan fært þessi landamæri út og við því er lítið að gera en framhjá því verður á hinn bóginn ekki horft að ...
Lesa meira

Markaðsvæðing kallast það þegar reksrarformum er breytt þannig að þau lúti lögmálum framboðs og eftirspurnar í stað þess að samfélagsleg markmið séu höfð að leiðarljósi KJÓSI MENN SVO. Hvers vegna í hástöfum, KJÓSI MENN SVO? Vegna þess að opinberan rekstur má hæglega láta haga sér á markaðsvísu standi hugur til þess. Hafi hins vegar regksrtarformum verið breytt, starfsemin færð í form einkafyrirtækja eða hlutfélaga, þá eru þau jafnframt ...
Lesa meira

... Og rétt í þessu kom inn um póstlúguna nýjasta afurðin, Glæpur við fæðingu, eftir ungan suður-afrískan rithöfund Trevor Noah í þýðingu Helgu Soffíu Einarsdóttur. “Glæpurinn” var að eiga móður og föður af ólíkum hörundslit en á tímum aðskilnaðarstefnunnar var það refsivert í Suður- Afríku. “Ef móðir mín hafði eitt markmið í lífinu, þá var það að fresla huga minn”, er haft eftir Trevor Noah. Viðbrögð við þessari bók benda til þess að fleiri hafi frelsast ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 13/14.04.19.
Allar götur frá því um aldamót hefur Evrópusambandið verið að varða leiðina inn á markaðinn með rafmagn sem vöru. Samkvæmt fyrstu vörðunum var raforkuiðnaðurinn bútaður niður í einingar, meðal annars með því að aðskilja framleiðslu, flutning, dreifingu og sölu. Síðan voru stigin skref til að láta þessar einingar haga sér á markaðsvísu og með síðustu vörðunni, 3. orkupakkanum, er stefnt að því að láta hinn nýja markað starfa á samræmdan hátt við innri markað Evrópusambandsins (ESB) fyrir raforku. Á þessari þróun verður enn hert með 4. orkupakkanum ...
Lesa meira

... Raforkufundinum sem haldinn var síðastliðinn laugardag í Þjóðmenningarhúsinu (Safnahúsinu) var streymt beint en hljóðgæði ekki sem skyldi. Nú hefur verið úr þessu bætt og myndskreyting að sama skapi. Ég þakka þeim sem unnu að þessu kærlega fyrir þeirra framlag ...
Lesa meira

Í skrifum, m.a. hér á síðunni, hefur ítrekað verið gerð grein fyrir fyrir ástæðum þess að rétt sé hafna 3. Orkupakkanum þó ekki væri vegna annars en að þeir fyrirvarar sem okkur er sagt að eigi að tryggja hagsmuni Íslands halda ekki. Fyrri umræða um þingsályktunina, sem ætlað er að festa þennan þriðja áfanga á markaðsvæðingu raforkukerfisns inn í EES skuldbindingar Íslands, stendur nú yfir og er mikilvægt að þingmenn þekki hug almennings. Ég hvet alla til að fara inn á ...
Lesa meira

Í morgun var ég gestur þeirra Heimis og Gulla í Bítinu á Bylgjunni að ræða orkupakkann. Þar hvatti ég til þess að forðast ómálefnlegt tal og var ég þá að svara dylgjum Þorsteins Víglundssonar, varaformanns Viðreisnar, sem farið hefur illum orðum um þá sem leyfa sér að gagnrýna orkupakkann sem fyrir dyrum stendur að samþykkja á Alþingi. En þá þurfum við líka öll að horfa í eigin barm. Til sanns vegar má færa að ég hafi sjálfur farið inn á braut dylgju-umræðu þegar ég í morgun talaði um tengsl af fjölskyldu- og hagsmunatoga. Þetta á ekki að gera nema ...
Lesa meira

Á hádegisfundi í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík í dag var fjallað um 3. Orkupakkann sem svo er nefndur og spurt hvort við kynnum að missa yfirráð yfir orkunni og þá hvort orkupakkinn væri enn ein varðan á þeirri vegferð. Sjálfur er ég sannfærður um að svo sé og gekk vel rökstudd umræðan á fundinum einnig mjög í þessa átt. Fyrir Alþingi liggur þingsáslyktunartillaga frá ríkisstjórninni sem augljóslega er mjög vanreifuð og væri skynsamlegast að hún yrði dregin til baka og málið allt endurskoðað! ...
Lesa meira
Greiðan hún vildi gjalda
gekk því bent til varna
Hann kom henni til valda
hún á allt undir Bjarna.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
Honum liggur lífið á
ljóta hefur þanka
Sviksemina allir sjá
selur Íslandsbanka.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú eignast elítan bankana senn
enda kaldrifjaðir kaupsýlumenn
áfallið munið
þjóðarhrunið
öll alþýðan hérna man þetta enn.
Aumur gerist Andrés minn
allir heim rata
Verður því þarna um sinn
þingmaður pírata?
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Svarið núna set á blað,
sannan vanda leysum.
Þjóðareignin þýðir að,
þjófum skorðu reisum.
Þjóðarklafa þekkið smið,
þing til grafar tryggja.
Kvótahafar keppast við,
kreppugjafir þiggja.
Kári
Lesa meira
Grímulaust í gegnum árin
gróðans ennþá njóta
í samfélaginu blæða sárin
undan sjálfseignarkvóta.
Bankasölu nú Bjarni þráir
Þó bæti lítið okkar hag
Engeyingarnir hér eru fáir
en græðgi þeirra fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Sá ég þjófa, bankabófa,
braskið prófa, leita hófa.
Því, því, því, því.
Aftur spilling enn á ný.
Kári
Lesa meira
Eftir níu mánuði megum við kjósa
framfærsluna múgurinn sér óljósa
saman þá stöndum
valið þar vöndum
ég frjálshyggjunni alls ekki hrósa.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Ég las grein þína um kjarnorkuvopnin og fór á slóðina sem þú gafst inn á ræðu þína í þinginu um NATÓ og “öryggisstefnu” Íslands. Mikið vildi ég að þó ekki væri nema ein rödd á Alþingi sem talaði eins og þú gerðir en það er ENGINN þingmaður sem það gerir. Er að undra að fólk missi trúna á þinginu og þeim sem þar sitja í umboði vinstri stefnu! Ef gagnrýni er hreyft á NATÓ þá er það lágvært hvísl til að sýnast!
Runólfur
Lesa meira
Kosningarnar koma hér,
kanntu fléttu snúna?
Bankasýslan býður þér,
að byrja ránið núna.
Kári
Lesa meira
Kosningaárið er komið með stæl
kysumst föðmumst verum indæl
staðreyndin er
að Íhaldið fer
auðvitað verðum ánægð og sæl
Líklega er kreppan kominn á ról
keimlík um heimsins byggðu ból
þá sér hver raftur
gjaldþrotin aftur
og endist víst framyfir næstu jól.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Meðvirkni er mikið böl,
magnast hún á þingi.
Ef þar skamma áttu dvöl,
alltaf ferð í hringi.
...
Kári
Lesa meira
Allt Frá lesendum