Fara í efni

SAMSTÖÐUFUNDUR GEGN HEIMSVALDASTEFNU

Þetta hljómar mótsagnakennd fyrirsögn en það er hún þó ekki þegar grannt er skoðað. Fundurinn, sem haldinn er fyrir framan Stjórnarráðið við Lækjargötu á laugardag klukkan tvö, er til stuðnings fullveldi Venesúela en þá um leið er honum stefnt gegn íhlutunaröflunum sem vilja ráðskast með þetta olíuauðuga land. Þar fara Bandaríkin fremst í flokki en Ísland hefur valið sér það ömulega hlutskipti að skipa sér í klapplið Trumps og félaga.

Eftrifarandi er fréttatilkynnig um fundinn:  

“Vinir Venezúela efna til útifundar til stuðnings fullveldis Venezúela fyrir framan stjórnarráðið laugardaginn 9. mars kl. 14:00.

Ræðumenn verða Ögmundur Jónasson og Gunnvör Rósa Eyvindardóttir.

Vinir Venesúela lýsa yfir fullum stuðningi við fullveldi Venesúela og baráttu þjóðarinnar gegn yfirgangi heimsvaldasinna undir forystu Bandaríkjanna, sem ætla að sölsa undir sig auðlindir landsins.

Bandaríska heimsvaldastefnan vílar ekki fyrir sér að skipuleggja valdarán til að skipta um stjórnir í þeim löndum sem þeim finnst henta og alltaf hefur það leitt til aukinna hörmunga.

Nú hafa þeir útnefnt forseta, sem hefur reynt að kaupa þjóðina til stuðnings við sig með svokallaðri „neyðaraðstoð“ frá Bandaríkjunum. En drýgstur hluti af vanda Venesúela stafar af efnahagslegum hernaði gegn landinu, sem Bandaríkin hafa stýrt. Ef efnahagsþvingunum væri aflétt myndi það vega margfalt þyngra en mútuaðstoð Bandaríkjanna.

Við fordæmum stuðning íslenskra stjórnvalda við íhlutun heimsvaldaríkjanna. Þetta er brot á alþjóðalögum og kallar refsiábyrgð yfir íslenska ráðherra. Nú kallar „forsetinn,“ sem íslenskir ráðherrar hafa útnefnt fyrir Venesúela, eftir auknu ofbeldi til að ryðja úr vegi réttmætum stjórnvöldum í Venesúela. Ábyrgð á því ofbeldi, sem fylgja kann í kjölfarið leggst á alla, sem hafa lýst yfir stuðningi við valdaránstilraun hans.”