Greinar Mars 2019

Sjötíu ár eru nú liðin frá því að lögregla veittist að almenningi sem safnast hafði saman fyrir framan Alþingishúsið á Austurvelli til að mótmæla því að Ísland gengi í NATÓ. Almenn þjóðaratkvæðagreiðsla var ekki á dagskrá og skyldi málið keyrt í gegnum þingið. Þessu skyldi mótmælt á Austurvelli. Þeim mótmælum var mætt með táragasi lögreglunnar. Í kjölfarið var efnt til réttarhalda þar sem tuttugu manns hlutu dóma (24 voru ákærðir) . Ekki mun hafa verið skortur á ljúgvitnum við þau ...
Lesa meira

Birtist í helgarblaði Morgunblaðsins 30/31.03.19.
... Og nú vildu hjúin uppá dekk: “Óbreytt kjör, engin vinna!”. Þetta var og er krafan á kröfuspjöldunum sem oftar en ekki eru á erlendum málum. Hvers konar ósvífni! Erum við ekki á Íslandi? Er íslenska ekki okkar tunga? Hvað er að gerast hjá verkalýðshreyfingunni, hvað er að þar á bæ? ...
Lesa meira

Birtist í Bændablaðinu 29. 03.19.
Komin er upp sérkennileg staða á Íslandi varðandi framtíðarskipulag orkubúskaparins. Af hálfu ríkisstjórnar landsins stendur til að keyra í gegnum Alþingi nokkuð sem kallast orkupakki þrjú en hann er þriðja varðan á leið Evrópusambandsins til markaðsvæðingar orkuauðlindarinnar … Hvers vegna eruð þið að þessu yfirhöfuð? Þessu verðið þið að svara! Spurningu minni beini ég til ráðherra ríkisstjórnarinnar og alþingismanna. Það er ekkert í EES-samningnum sem knýr ykkur til að gera þetta, ekkert! …
Lesa meira

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra Íslands, samfagnaði um helgina leiðtogum ESB og EES í tilefni þess að 25 ár eru liðin frá inngöngu Íslands í EES. Hún sagði: „Heil kynslóð Íslendinga gengur út frá því að hægt sé að vinna, ferðast, búa og læra hvar sem er á evrópska efnahagssvæðinu ólíkt því sem áður var…” Sjálfur er ég af kynslóð Íslendinga sem komst til vits og ára áður en EES samningurinn varð að veruleika. Ég stundaði nám í Bretlandi ...
Lesa meira

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, hefur flutt tillögu um að hæstu laun hjá Reykjavíkurborg verði aldrei hærri en þrisvar sinnum lægstu laun. Undir þetta tek ég hjartanlega og er ástæða til að þakka fyrir þetta framtak og hvetja jafnframt til þess að við fylkjum okkur að baki Sönnu Magdalenu í baráttu hennar fyrir kjarajöfnuði. Í greinargerð með tillögu Sunnu Magdalenu segir m.a.:“Borgarstjórn samþykkir að ...
Lesa meira

... Ég er ekki enn farinn að trúa þögninni frá VG. Í mínum eyrum verður hún sífellt háværari. Nú er spurt, verður a) pakkanum hafnað eins og eina vitið er að gera eða b) verður lagst á hnén og beðið um einhverja sérmeðhöndlum sem allir mega vita að heldur ekki eða c) verður bara kropið? Sjáum hvað setur. Þetta verður fróðlegt. En takiði frá ...
Lesa meira

Fundurinn í Safnahúsinu síðasltliðinn laugardag í fundaröðinni, Til róttæktrar skoðunar, var vel sóttur, talsvert á annað hundrað manns. Ræðumenn voru ekki af lakari endanum, utanríkisráðherra Katalóníu, Alfred Bosch, katalónslur fræðimaður, kennari í lögum og mannréttindum við Edinblargarháskóla, Elisenda Casanas Adam og Guðmundur Hrafn Arnfrímsson, talsmaður samtaka um fréttamiðlnun frá Katalóníu. Þau voru öll hreint út sagt...
Lesa meira

Birtist í Fréttablaðinu 20.03.19.
Ég hef alltaf haft miklar efasemdir um samstarf félagshyggjuflokka við Sjálfstæðisflokkinn. Efasemdir mínar hafa snúist um prinsipp og praksis. Prinsippin eru þau að meini menn eitthvað með pólitískum stefnumarkmiðum sínum, þá kennir reynslan að þau fari forgörðum ...
Lesa meira

Í frétt á Vísi.is í kvöld segir m.a.: “Þingflokkar stjórnarflokkanna komu saman til sameiginlegs fundar í Ráðherrabústaðnum í dag til að ræða innleiðingu þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Nokkur andstaða er við innleiðinguna innan Framsóknarflokksins og meðal nokkurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins.”
En VG?
Vantar ekki eitthvað ...
Lesa meira

Í fréttum ber það helst að Dómstólasýslan ræðir tillögur um hvort fjölga eigi í Landsrétti um fjóra. Hvers vegna? Vegna þess að fyrirsjáanlegt sé að fjórir dómarar þar verði óvirkir.
Þetta kemur fram í máli Benedikts Bogasonar formanns stjórnar Dómstólasýslunnar í blaðaviðtali. Það er bara einn hængur á og hann er sá að dómararnir fjórir eru allir með skipunarbréf til staðfestingar á því að þeir séu skipaðir dómarar samkvæmt lögum á Íslandi ...
Lesa meira
Hefjum verkföll hækkum laun
hagnaðararði má skipta
Því fátæktin er félagsleg raun
Upp grettistaki nú lyfta!
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Nú birtir upp þá batna sár
bága heilsan skánar
Með vordögum verðum klár
er sólin skín og hlánar.
Af Kristrúnu gæti Katrín lært
því komin er á toppinn
Enn íhaldið virðist Kötu kært
lærði að sitja koppinn.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Í ellinni er upphefð góð
hjá elítunnar kálfum
Fálkaorðuna fær þá stóð
úthlutað sér sjálfum.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Leiðtogahjörðin á liðinni stund
lyftist á tá hver einasta Hrund
þær sér útvöldu
sitt ágæti töldu
og heimsyfirráð vildu eftir fund.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Skýrsluna hefði mátt skrifa betur
til nánari skoðunar landinn hvetur
þeir vinahóp töldu
og ættmenni völdu
í eftir á meðferð sjáum hvað setur.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
... Nú hafnar eldflaug í Póllandi. Bandarísk yfirvöld eru að rannsaka hvort ekki sé öruggt að Rússar hafi skotið henni. Líklegt? Spyr sá sem ekki veit en grunar margt.
Við erum í hættulegu kompaníi með stærstu auðhringum heims, þar á meðal hergagnaframleiðendum og handbendum þeirra. Ísland úr NATÓ HERINN BURT.
Jóhannes Gr. Jónsson
Lesa meira
Þrungin spenna þarna en
Þeir vilja báðir valdið
Gulli Þórðar og Bjarni Ben
berjast nú um íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Á landsfundi verður líf og fjör
líka barist um valdið
því Gulli Þórðar vill verða sör
og reisa við íhaldið.
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Gulli sækir að Bjarna Ben
með baráttu og læti
Segist með sérstakt gen
sem forystuna bæti.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Vanhæfni sína víst má dylja
vaxtaokrið leiðir hann
Ómenntaðir menn þó skilja
að minna en lítið kann.
Hann öfugmæla vísur virðir
um verkalýðsins auma hag
Fyrir velferðina víst nú girðir
Því vaxtaokur er hans fag.
...
Höf. Pétur Hraunfjörð.
Lesa meira
Allt Frá lesendum