ÚTLENDINGANEFND LEYSI LÝÐRÆÐISVANDANN?
Birtist í Fréttablaðinu 22.02.18.
Þegar borgaryfirvöld tóku tilneydd að velta því fyrir sér
hvernig brjóta mætti niður lýðræðislegan vilja Reykvíkinga til að
halda innanlandsfluginu í Vatnsmýrinni í Reykjavík varð niðurstaða
sú að skipa nefnd til að finna nýja staðsetningu fyrir flugvöllinn
- en þó á höfuðborgarsvæðinu. Að sjálfsögðu ætti að virða vilja
Reykvíkinga um flugvöll í Reykjavík! Hann ætti bara ekki að þvælast
fyrir fasteignabröskurum sem vildu byggja á verðmætasta
byggingalandinu svo vísað sé í nýlegan leiðara
Fréttablaðsins.
Þar var líka talað um hnúta sem þyrfti að leysa og skotgrafir sem
þyrfti að komast upp úr. Og hvernig? Með því að fá nefnd útlendinga
sem hefði skýrt umboð: "Stjórnmálamenn verða að una niðurstöðunum",
sagði leiðarahöfundur.
Staðráðin að virða ekki meirihlutaviljann
Allt orkar þetta nú heldur tvímælis. Ítrekaðar skoðanakannanir á
mörgum undanförnum árum hafa bent til þess að yfirgnæfandi
meirihluti landsmanna - einnig yfirgnæfandi meirihluti
Reykjavíkinga - vill hafa flugvöllinn í Vatnsmýrinni. Hvaða hnút
þarf þá að höggva á?
Hnúturinn sem þarf að leysa er sá vandi sem lýðræðið skapar
borgaryfirvöldum í þessu máli. Löngu er nefnilega orðið ljóst að
meirihlutaviljann á ekki að virða.
Illa gert gagnvart Rögnu
Alltaf finnst mér það heldur illa gert gagnvart þeirri ágætu konu, Rögnu Árnadóttur, að kenna við hennar nafn rannsóknarnefnd sem hún var í forsvari fyrir og kom fram með einhverja alvafasömustu tillögu sem fram hefur komið í þessu máli. Nefndinni var falið að kanna hvað væri skásti kosturinn fyrir flugvöll ínnan höfuðborgarsvæðisins ef flugvöllurinn yrði fluttur úr Vatnsmýrinni - nota bene ekki hver væri besti kosturinn fyrir innanlandsflugvöll, heldur hvar á höfuðborgarsvæðinu mætti koma flugvelli fyrir ef hann yrði hrakinn úr Vatnsmýrinni. Þannig varð til hugmyndin um Hvassahraun.
Vilja loka málinu þvert á almannavilja
En til þess að reka smiðshöggið á þessa ráðagerð er svo að
skilja að ríkisstjórnin hyggist nú fá útlenda menn til að koma með
tillöguna og hafi leiðarahöfundur Fréttablaðsins sitt fram yrði
málinu þar með lokað. Una verði niðurstöðum aðkeyptra
málaliða!
En það eru ekki bara braskararnir sem myndu hrósa sigri.
Hvernig flugfélögin vilja ráðstafa skattfé
Talsmenn flugfélaganna segja að þeir geti vel hugsað sér að láta
skattborgara landsins kosta nýjan flugvöll í Hvassahrauni með öllu
tilheyrandi. Fjármunum sé betur varið þannig en sóa þeim í menntun
barnanna og umönnun aldraðra. Svo sé Reykjanesið varla til annars
en að slétta það og malbika.
Þarna held ég nú samt að einhverjir eigi eftir að rísa upp.
Reykjanesið er nefnilega með fegurstu landsvæðum Íslands. Hver
hefur ekki ekið með ferðamenn frá Keflavíkurflugvelli og orðið
vitni að hrifningu þeirra af úfnu hrauninu sem ekið er um.
Förum vel með landið
Við eigum að fara vel með landið okkar og varast í lengstu lög að ráðast í óafturkræf landspjöll. Síðan er náttúrlega hitt að svæðið umhverfis Keflavíkurflugvöll - Miðnesheiðin - býður upp á talsverða möguleika á útvíkkun og þá einnig fyrir innanlandsflugið ef í harðbakkann slær.
Vatnsmýrin og Manhattan
Og síðan er það braskið. Ég hef áður vakið á því athygli
að á ólíklegustu stöðum hafa menn staðist áhlaup byggingabraskara
eða hvað skyldi leiðarahöfundur Fréttablaðsins segja um verðmæti
byggingalandsins í Hyde Park í London eða Central Park á Manhattan
í New York.
Seint myndu íbúar þessara borga sætta sig við að "útlendinganefnd"
svipti þá valdi yfir þessum opnu svæðum sem gráðugustu braskarar
jarðkringlunnar hafa lengi rennt girndaraugum til.