Fara í efni

YFIR HVERJU ER ÞETTA FÓLK ANDVAKA?

Fréttabladid haus
Fréttabladid haus

Birtist í Fréttablaðinu 02.01.18.
Kjararáð ákveður að hækka laun biskups um fimmtung þannig að hann sé á pari við alþingismenn í grunnlaunum en grunnlaun þeirra voru hækkuð í rúmlega milljón krónur á mánuði fyrr á árinu.
Þetta er nú gagnrýnt hástöfum. En hvað vakir fyrir gagnrýnendum? Á forsvarsmönnum atvinnurekenda og launafólks, sem stundum eru nefndir „aðilar vinnumarkaðar", er svo að skilja  að þetta snúist um prósentur. Prósentuhækkanirnar séu meiri en þeir vilji leyfa. Þetta hafi með örðum orðum ekkert með launajöfnuð að gera, enda sumir skjólstæðingar Kjararáðs varla hálfdrættingar þeirra sjálfra.
En er þjóðin tilbúin að hugsa bara  í prósentum? Hlýtur réttmæti launa og þá einnig launahækkana ekki að skoðast með hliðsjón af öðrum launum í landinu og hlutfallinu þar á milli?
Í Fréttablaðinu, 23. desember segir í skýringartexta fréttar um framangreindar launahækkanir: „Að mati Viðskiptaráðs næst ekki friður á vinnumarkaði nema alþingismenn breyti ákvörðunum kjararáðs. Forseti Alþýðusambands Íslands tekur undir þá skoðun. Telur ákvarðanir kjararáðs valda pirringi meðal stjórnenda fyrirtækja."  

Hin sárreiðu

Sá pirringur er síðan staðfestur í ályktun Viðskiptaráðs um framangreindar hækkanir sem jafnframt er vísað til í fréttinni.
En hverjir eru svona sárreiðir?
Í stjórn Viðskiptaráðs eru 37 einstaklingar auk formanns, Katrínar Olgu Jóhannesdóttur. Þeir eru: Andri Þór Guðmundsson Ölgerðinni, Ari Edwald MS, Ari Fenger Nathan & Olsen, Ágúst Hafberg Norðuráli, Árni Geir Pálsson, Icelandic Group, Birgir Sigurðsson, Kletti, Birkir Hólm Guðnason, Icelandair, Birna Einarsdóttir, Íslandsbanka, Eggert Benedikt Guðmundsson, Etacticu, Eggert Þ. Kristófersson, N1, Finnur Oddsson, Nýherja, Gísli Hjálmtýsson, Thule Investments, Guðmundur J. Jónsson,Verði, Gylfi Sigfússon Eimskipafélaginu, Helga Hlín Hákonardóttir, Strategíu, Helga Melkorka Óttarsdóttir, LOGOS, Hermann Björnsson, Sjóvá, Hrund Rudolfsdóttir, Veritas Capital, Hörður Arnarsson, Landsvirkjun, Jakob Sigurðsson, Katrín Pétursdóttir, Lýsi, Kristín Pétursdóttir, Mentor, Linda Jónsdóttir, Marel, Magnea Þórey Hjálmarsdóttir, Flugleiðahótelum, Magnús Bjarnason, Kviku, Magnús Þór Ásmundsson, Alcoa Fjarðaáli, Sigrún Ragna, Ólafsdóttir, Creditinfo, Sigurður Viðarsson, Tryggingamiðstöðinni, Sigurhjörtur Sigfússon, Mannviti, Stefán Pétursson, Arion banka, Stefán Sigurðsson, Vodafone, Steinþór Pálsson, Svanbjörn Thoroddsen, KPMG, Sveinn Sölvason, Össuri, Sævar Freyr Þráinsson, Bæjarstjóri Akraneskaupstaðar, Viðar Þorkelsson, Valitor og Vilhjálmur Vilhjálmsson, HB Granda."

Reiðiköstin verði útskýrð

Svo er að skilja að minnsta kosti þetta fólk sem hér er upp talið, sé miður sín og reitt yfir hækkuninni til þess hóps sem biskupinn er nú gerður að skotspæni fyrir. Er til of mikils ætlast að þessir einstaklingar komi nú fram undir nafni og geri grein fyrir reiðiköstum sínum, hvort það er hækkunin sem hvekki þau eða hvort það er launaupphæðin sem haldi fyrir þeim vöku?
Þá væri fróðlegt að Fréttablaðið gerði grein fyrir augljósum eineltistilburðum sínum gagnvart biskupi Íslands. Nú skal það tekið fram að ekkert er við það að athuga að Kjararáð og ákvarðanir þess sæti gagnrýni. Sú umræða er meira að segja bráðnauðsynleg þótt hún ætti að mínu mati að vera í öðrum farvegi.

Einelti í Fréttablaðinu

En þegar fréttaflutningurinn er farinn að ná út yfir allan þjófabálk, þá vakna spurningar.
Þannig sagði Fréttablaðið frá því í sérstakri frétt að Ríkisútvarpinu hefði ekki borist ósk frá biskupi um að fá að taka upp á nýjan leik jólapredikun sem hljóðrituð var fyrir hækkun. Fréttablaðið hafði gengið sérstaklega eftir því að kalla fram upplýsingar um þetta. Svo komu aðrar fréttir, þar á meðal hvað biskup borgaði fyrir að búa í biskupsbústaðnum og að leigan væri óeðlilega lág og svo hvort ekki mætti líta svo á að Agnes M. Sigurðardóttur, biskup hafi fengið harðan pakka í ár!
Einelti? Í ljósi þess samhengis sem hér er að teiknast upp er það svo samkvæmt mínum skilningi.

Sjá einnig: http://www.visir.is/g/2018180109936/yfir-hverju-er-thetta-folk-andvaka-