Fara í efni

ICAN í FIMMTUDAGS-HÁDEGINU

ICAN
ICAN

Fimmtudaginn 14. desember verður opinn fundur með þeim Ray Acheson og Tim Wright frá alþjóðasamtökunum um útrýmingu kjarnavopna (ICAN) þar sem þeir  munu ræða hinn nýja alþjóðasáttmála og færa rök fyrir því hvers vegna Ísland ætti að styðja hann. ICAN-samtökin hlutu friðarverðlaun Nóbels árið 2017 fyrir störf sín.

Fundurinn stendur frá kl. 12 - 13 í Lögbergi 101 í Háskóla Íslands og er hann haldinn á vegum Höfða friðarseturs, Samtaka hernaðarandstæðinga, Menningar- og friðarsamtaka íslenskra kvenna og Róttæka sumarskólans.

Fundarstjóri er Andri Snær Magnason.

Þau sem eiga heimangengt eiga því góðan dag í vændum, ICAN í hádeginu og síðan fundurinn um matvælaöryggið klukkan 15 sem áður er greint frá hér á síðunni.

http://ams.hi.is/2017/12/12/kjarnorkuvopn-er-island-med-eda-a-moti/