Fara í efni

GEIR EKKI BÆNHEYRÐUR

GEIR - GUÐ BLESSI
GEIR - GUÐ BLESSI

Frægt varð þegar Geir H. Haarde bað almættið að blessa Ísland í þann veginn sem Hrunið var að bresta á. Margt fór vissulega á betri veg en á horfðist þessa haustdaga árið 2008. Íslendingar lögðust á árarnar og saman komumst við á  lygnari sjó. Eða það héldum við, ekki vitandi að forsætisráðherrann þáverandi var ekki bænheyrður - alla vega ekki til langs tíma.  

Eftir allar rannsóknar skýrslurnar og allar heitstrengingarnar kemur nú í ljós að 800 aflandsfélög tengjast Íslendingum sem fyrir bragðið verða að viðundri á heimsvísu. Í ljós kemur að forsætisráðherra og fjármálaráðherra tengjast félögum í paradísum peninganna og vafasömum fjármálagerningum sem þaðan er stýrt. Minni fréttir voru að Landsbankinn skuli hafa haft leiðandi hlutverk í gjörningum þessa siðlausa fjármálaheims. Það höfðum við vitað lengi enda yfirlýst stefna hans frá því fyrir hrun að þjóna stóreignafólki til að koma eignum sínum í felur.

Nú þarf tvennt að gerast.
1) Skipta þarf um ríkisstjórn í landinu þegar í stað.
2) Stokka þarf upp bankakerfið, stofna samfélagsbanka og banna viðskiptabönkum að fást við fjárfestingastarfsemi.

Þetta gæti verið byrjunin. En byrjun verðum við að fá. Svona gengur þetta ekki lengur.