DAPURLEGT: VILL HEIMILA FJÁRHÆTTUSPIL OG SPILAVÍTI

Birgitta Jónsdóttir, þingkona Pírata
, talaði á þingi í gær fyrir því að fjárhættuspil yrðu leyfð að fullu og allar hömlur og takmarkanir afnumdar.
Ég get vissulega tekið undir að tvískinnungs gætir í umræðu um
fjárhættuspil. Þannig hef ég löngum bent á að spilasalir
Happdrættis Háskóla Íslands, Gullnáman, eru að sjálfsögðu
ekkert annað en spilavíti. Og sama gildir um spilakassa á vegum
annarra spilakassarekenda. Spilakassar þeirra eru nákvæmlega sams
konar kassar og er að finna í spilavítum í Las Vegas og
Mónakó.
Sem innanríkisráðherra lagði ég fram lagafrumvarp með ítarlegri
langtímaáætlun um hvernig megi koma böndum á þennan ágenga vágest
sem hefur lagt líf fjölda einstaklinga og fjölskyldna í rúst.
Í þessu frumvarpi var horfst í augu við tvennt, a) að á Alþingi
væri ekki meirihluti fyrir því að banna spilakassa og fjárhættuspil
með öllu, b) að fjárhættuspil væru í síauknum mæli að færast yfir á
netið. Hugmyndin með frumvarpinu var sú að reisa skorður við
spilastarfsemi og færa hana með tímanum inn í fyrirkomulag sem væri
ekki eins áreitið. Í annan stað stóð til að heimila takmarkaða
netspilun í höndum innlendra aðila. Því miður náði frumvarpið ekki
fram að ganga, svo mikil var andstaðan á Alþingi, þar á meðal frá
Birgittu Jónsdóttur. Þess vegna kom afstaða hennar í gær ekki á
óvart.
Mér finnst mikilvægt að hemja hinn gráðuga vágest. Tvískinnung á
ekki að afnema með því að gefast upp og leita samræmis niður á við
- stíga niður á lægsta þrep - heldur leita samræmis upp á við.
Að mínu mati er uppgjöf fyrir spilavítisrekendum stóralvarleg
því fjárhættuspil svipta öll þau frelsinu sem ánetjast
spilafíkninni - og þau eru ófá sem það hendir.
Oft vill það gerast, einsog kom fram í málflutningi Birgittu
Jónsdóttur í gær, að öll happdrættisstarfsemi er sett undir sama
hatt. Menn geti ánetjast happdrættum og lottóvinningum engu síður
en spilavítisvélunum. Þess vegna eigi að leyfa allt. Þannig gengur
rullan.
Þessi málatilbúnaður er tilraun til að réttlæta starfsemi sem í
mínum huga er engan veginn réttlætanleg: Að heimila
að í fjárgróðaskyni sé gert út á einstaklinga sem ekki eru
sjálfráðir gjörða sinna.
Vinur minn einn, sem sjálfur er spilafíkill, hefur sett fram eftirfarandi aðgreiningu:
"Happdrætti taka lítið af mörgum. Spilakassar taka
mikið af fáum. Og allt af sumum."
Hér er slóð á framangreint frumvarp með ítarlegri greinargerð: http://www.althingi.is/altext/141/s/0615.html