VARASÖM VANAHUGSUN Í ÖRYGGISMÁLUM!

Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, talaði í dag
fyrir nýrri öryggisstefnu Íslands. þar er gert ráð fyrir því
að grundvöllur slíkrar stefnu verði áframhaldandi NATÓ aðild og
"varnarsamningurinn" við Bandaríkin.
Dapurlegt er til þess að hugsa að enn skuli horft til fortíðar til
að tryggja öryggishagsmuni Íslands; að við skulum enn vilja bindast
tryggðarböndum, á grundvelli hernaðarhagsmuna, ríkjum heims sem
reynst hafa drottnunargjörn á heimsvísu með afbrigðum og svo ásælin
í auðlindir annarra ríkja að tilgangurinn hefur nánast helgað
meðalið við að komast yfir þær.
Ég tók til máls í umræðunni, varaði við gamalli vanahugsun og
talaði fyrir úrsögn Íslands úr NATÓ og að það hlyti að vera
lágmarkskrafa að skjóta því til þjóðarinnar að skera úr því hvort
hún samþykki áframhaldandi veru okkar í hernaðarbandalaginu.
Ræða mín er hér:
http://www.althingi.is/altext/upptokur/raeda/?raeda=rad20151117T165124