Fara í efni

ÞINGMAÐURINN OG PÁFINN

FB logo
FB logo
Birtist í Fréttablaðinu 22.09.15.
Þingmaðurinn sem vísað er til í fyrirsögninni er Frosti Sigurjónsson. Og páfinn er Franciscus, sá sem nú situr í Róm. Þannig að þetta greinarkorn fjallar um þá Frosta og Franciscus.
Nú veit ég ekki hve margt þessir tveir eiga sameiginlegt.
En vissulega þó eitt: Báðir hafa talað fyrir breyttu banka- og peningakerfi. Franciscus páfi sagði nýlega að fjármálakreppan sem nú væri við að eiga, „ætti rót í djúpri mannlegri kreppu, afneitun mennskunnar." Og á prenti er eftirfarandi að finna eftir páfa: „Við höfum skapað okkur nýjar fyrirmyndir. Hinn forni gullkálfur er genginn aftur og birtist okkur í nöturlegri  tilbeiðslu á fjármagni og alræði þeirrar hagfræði sem býr ekki yfir neinni  sýn á mannlegan tilgang." Og enn skrifar páfi: „Við þurfum að ráðast í breytingar á fjármálakerfinu samkvæmt því siðferði sem stuðlar að hagsæld fyrir alla. Peningar eiga að þjóna ekki stjórna."
Frosti Sigurjónsson myndi eflaust ekki orða hlutina með þessum hætti og kannski hugsa að einhverju leyti á öðrum nótum. Hann styður jú ríkisstjórn sem starfar engan veginn eftir þessari forskrift frá páfanum í Róm.
Svo er Frosti sjálfur reynslumikill bisnissmaður og fyrrum stjórnarmaður í Verslunarráðinu. Þar var gullkálfurinn oftar en ekki í hávegum hafður.
En þótt Frosti Sigurjónsson kunni að vera málsvari frjálsrar samkeppni, þá hefur hann manna heilastur og af þekkingu og yfirvegun talað fyrir því að fjármálakerfið fari inn á nýjar brautir og að samkeppnin verði í átt að því sem Fransiscus páfi boðar; að það þjóni almenningi en ekki eigendum sínum til þess að skapa þeim arð.
Þess vegna þurfi þjóðin að ráða yfir kjölfestu í fjármálalífinu sem setji þar tóninn og viðmiðin. Ég er ekki í vafa um að viðskiptamódel Frosta myndi ganga upp; ófá vildum við án efa  vilja skipta við Landsbankann, gangi tillögur Frosta eftir að sá banki verði alfarið í almannaeign og leggi áherslu á hagkvæm lán og lítinn vaxtamun.
Ýmsir samstarfsmenn Frosta vilja hins vegar selja bankann og hafa hann í stíunni með öllum hinum gullkálfunum .
Þjóðin á enn Landsbankann. Hann færir ríkissjóði yfir 20 milljarða í arð á þessu ári. Ef ég skil Frosta rétt þá vill hann að þessi arður verði minni og skili sér í sanngjarnara og ódýrara bankakerfi  sem þjóni fólki en ekki fjármagni.
Ég er honum sammála.