Fara í efni

ÁTVR OG SÁÁ

FB logo
FB logo
Birtist í Fréttablaðinu 28.10.14.
Í mig hringdi gallharður markaðssinni - alvöru kunnáttumaður í markaðsfræðum og flokksbundinn Sjálfstæðismaður. Hann sagðist afar ósáttur við málflutning þeirra samflokksmanna sinna sem stæðu að frumvarpi um að leggja niður ÁTVR og flytja söluna inn í matvörubúðir. Þetta taldi hann óheillaspor því áfengi væri ekki eins og hver önnur söluvara sem mætti „selja sig sjálf". Þannig orðaði hann það. „Menn verða að skilja", sagði hann, „að eftir að stóru matvörukeðjurnar komu til sögunnar og ruddu smákaupmanninum úr vegi, þá færðist samkeppnin yfir í nýja ferla." Í sambandi við áfengið yrði að horfa til þess að stórmarkaðir væru skipulagðir með það í huga að „varan seldi sig sjálf."  Þess vegna væri höfuðkapp lagt  á að raða vörum upp þannig að þær yrðu sem söluvænlegastar. Hvernig aðgengi viðskiptavinarins væri háttað væri þess vegna lykilatriði. Þarna þótti mér markaðsmaðurinn, vinur minn, hitta naglann á höfuðið í þeirri umræðu sem fer nú fram um umrætt frumvarp.
En talandi um að hlutirnir gangi vélrænt fyrir sig, þá á það einnig við á öðrum enda. Þótt tekist hafi að hemja unglingadrykkju á síðustu árum með markvissu átaki, sem aðstandendur átaksins segja að hafi heppnast, ekki síst vegna þess að það var í skjóli verndandi sölufyrirkomulags, þá fjölgar engu að síður í biðstofum heilbrigðisstofnana sem sinna áfengismeðferð, samfara aukinni almennri neyslu áfengis. Þarna virðist nánast vera vélrænt samband á milli.
Það á hins vegar ekki við um fjárveitingarnar. Þær drógust jafnt og þétt saman, reyndar eins og annars staðar í samfélagsþjónustunni, þar með talið heilbrigðisþjónustunni,  í kjölfar hruns. En þegar síðan hefur komið viðbótarfjármagn í ýmsa geira heilbrigðisþjónustunnar, hefur SÁÁ, stærsta heilbrigðisstofnunin á þessu sviði setið óbætt hjá garði að öðru leyti en því að fjármagn var sett til stuðnings eldra fólki sem ánetjast hefur áfengi.
En þörfin fyrir hjálp er meiri en fjármagnið dugir til að veita.  í ljósi vaxandi eftirspurnar eftir aðstoð gegn áfengisfíkn er nú spurt hvort fjárveitingarvaldið muni  svara þeim veruleika sem blasir við í þessum efnum. Læt ég þá liggja á milli hluta umrætt frumvarp um ÁTVR, og þær illu afleiðingar sem það hefði í för með sér  ef það næði fram að ganga.
Þúsundir fjölskyldna og einstaklinga  sem beint og óbeint eiga um sárt að binda  af völdum ofneyslu áfengis munu án efa  fylgjast með afgreiðslu fjárlaga.