Fara í efni

ÖGMUNDUR ÞÓR JÓHANNESSON Í NORRÆNA HÚSINU

Ögmundur þór Jóh
Ögmundur þór Jóh


Ögmundur Þór Jóhannesson, gítarleikari, er með tónleika í Norræna Húsinu miðvikudaginn 4. júní, klukkan 20. Tónleikarnir eru hluti af alþjóðlegri gítarhátíð, Midnight Sun Guitar Festival, sem nú er haldin í annað sinn í Reykjavík.
Tónleikar Ögmundar Þórs Jóhannessonar taka um klukkustund og byggja á alþjóðlegu efni en þess má geta að Ögmundur hefur dvalið á Indlandi síðustu mánuði. Ég hvet áhugafólk um tónlist að koma í Norræna húsið og  hlýða á þennan ágæta tónlistarmann okkar.
Sjá m.a.:
https://www.ogmundur.is/is/greinar/ogmundarfelagid

 https://www.ogmundur.is/is/greinar/med-fangid-fullt-af-tonlist

 https://www.ogmundur.is/is/greinar/ogmundur-thor-johannesson-i-thjodmenningarhusinu