Fara í efni

ÁKÆRA UM MANNDRÁP: FÉLAGSLEGT OG SIÐFERÐILEGT GLAPRÆÐI

Ríkissaksóknari
Ríkissaksóknari


Í dag birtist svohljóðandi frétt á vísir.is:

„Ríkissaksóknari hefur lagt fram ákæru á hendur Landspítalanum og hjúkrunarfræðingi gjörgæsludeildar Landspítalans fyrir manndráp af gáleysi. Málið á rætur sínar að rekja til atviks sem átti sér stað árið 2012 sem varð til þess að maður lést.
Hjúkrunarfræðingurinn er í starfsleyfi.
Í tilkynningu frá Landspítalanum segir að hinum ákærða hafi þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. Landspítalinn standi þó með hinum ákærða.
Þetta er í fyrsta skipti sem Landspítalinn og starfsmaður hans eru ákærðir fyrir atvik af þessu tagi. Heimildir Vísis herma að þetta sé mikið áfall fyrir starfsfólk spítalans. Í tilkynningu Landspítalans segir einnig að ákæran muni skapa mikla óvissu í störfum heilbrigðisstarfsmanna í framtíðinni.
Sigríður Friðjónsdóttir ríkissaksóknari vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa leitaði eftir því, þar sem ákæran hefði ekki verið formlega birt starfsmanninum eða spítalanum.


Eftir að þessi frétt birtist hafa komið viðbrögð frá félagasamtökum sem segja að starfsfólk standi frammi fyrir nýjum veruleika. Það er rétt. Ríkissaksóknari telur sig án efa vera að taka ákvörðun á grundvelli lagatúlkunar. Ég leyfi mér að fullyrða að sú túlkun er hættulega þröngsýn. Með ákvörðun sinni er ríkissaksóknari að breyta íslenskum veruleika. Ákvörðun embættisins er að mínu mati félagslegt og siðferðilegt glapræði.

Sjá nýleg skrif mín um þetta efni þar sem ég færði rök fyrir afstöðu minni: https://www.ogmundur.is/is/greinar/i-kviku-tilfinninganna 

Sjá einnig: http://www.visir.is/hjukrunarfraedingur-akaerdur---ekkja-mannsins-vildi-ekki-kaera-/article/2014140529772