Fara í efni

HÁLF TVÖ VIÐ GEYSI Í DAG!

Geysisposinn
Geysisposinn

Enn er rukkað við Geysi í Haukadal. það er í senn ólöglegt og siðlaust. Fólk er þegar byrjað að kæra sem betur fer. Nokkrir einstaklingar sem ætla ekki að una ofbeldinu mæta við Geysi klukkan half tvö í dag. Ég verð í þeim hópi og hvet sem flesta til að mæta.
Við erum staðráðin í því að skoða Geysi gjaldfrjálst eins og heimilt er lögum samkvæmt og hefðum frá upphafi Íslandsbyggðar. Ég vek athygli á lesendabréfi sem síðunni barst í gærkvöldi. Bréfið vekur athygli - vonandi líka fjölmiðlanna: https://www.ogmundur.is/is/greinar/meinad-ad-leggja-fram-kaeru