GLEÐILEGT SUMAR!

Ríkisútvarpið sagði í hádegisfréttum í dag að sumar og vetur
hefðu frosið saman. Það veit á gott sagði þulurinn. Þjóðtrúin og
fréttamiðillin runnu þarna saman á fremur notalegan hátt. Já
vonandi veit það á gott. Þarna leggst gömul trú á sveif með
bjartsýnisfólki því samkvæmt henni veit á gott þegar vetur og sumar
frjósa saman.
Þannig er nú margfalt tilefni er til að brosa breitt í dag og óska
hvert öðru gleðilegs sumars.
Venju samkvæmt var ég við skátamessu í Hallgrímskirkju. Það er
fyrir löngu síðan orðin hefð hjá mér að sækja skátamessu á
sumardaginn fyrsta. Í bland geri ég þetta til heiðurs skátunum og
reyndar einnig í minningu föður míns, Jónasar B. Jónssonar, sem á
sínum tíma var skátahöfðingi Íslands og mikill áhugamaður um
æskulýðsstarf. Hann var og mikill baráttu- og hugsjónamaður um
útivist og heilbrigt líferni. Skátahreyfingin á heiður skilið fyrir
starf sitt á sviði æskulýðsmála.
Eva Einarsdóttir, formaður Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur,
flutti ágæta hugvekju þar sem hún minntist uppvaxtaráranna og hve
mikils virði skátastarfið hefði verið sér. Svo var sungið eins og
skátum er einum lagið.
Ég óska öllum gleðilegs sumars!