SAMSTAÐA UM FANGELSI

Árum og áratugum saman hefur verið rættt um nauðsyn þess að
reisa nýtt öryggis- og gæsluvarðhaldsfangelsi á höfuðborgarsvæðinu.
Reyndar hafa ýmsar staðsetningar verið ræddar en nú hefur endanlega
verið tekin ákvörðun. Í fyrsta lagi að fangelsi skuli reist og í
öðru lagi hefur staðsetningin verið ákveðin á Hólmsheiði í
landi Reykjavíkurborgar.
Áratuga þjark er nú að baki og er ástæða til að fagna. Enda gera
það allir. Nánast. Suma fréttamenn langar óskaplega til að fá að
vita hvort ekki hafi örugglega verið ósætti um eitthvað í
ríkisstjórninni og þá kannski helst um fjármögnunina. Spurt er hver
eigi að borga. Svarið er auglljóst: Við öll, skattgreiðendur, þegar
upp er staðið, borgum við hverja einustu krónu. Hvort sem valin er
ríkisleið eða einkaframkvæmdarleið, þá borgum við brúsann!
Spurningin snýst þá aðeins um hver sé ódýrasta leiðin fyrir okkur
að fara. Gaman væri ef fréttamenn veltu þessu fyrir sér og fengjust
þannig við alvöru fréttamennsku.
Nýlega skrifaði ég blaðagrein til varnar alútboði. Í alútboði eru
allir verkþættir boðnir út í einum pakka, hönnun, teikning , smíði,
allur pakkinn eins og það heitir. Þetta getur haft sína kosti,
verið leið til að ná kostnaði niður og miðstýra verkinu í samræmdan
verkfarveg á frumstigi. Arkitektafélagi Íslands var
hins vegar ekki skemmt. Arkitektar sögðust vilja samkeppni um
teikningar og hönnun sérstaklega. Alútboð væri hamlandi fyrir
litlar og meðalstórar stofur. Í alútboði væru þær iðulega settar
undir hælinn á stórverktökum. Og þar sem arkitektar væru sú stétt
sem verst hefði orðið úti í hruninu, mætti spyrja hvers þeir ættu
eiginlega að gjalda. Ég sannfærðist og breytti afstöðu minni. Hafði
reyndar verið að gera það smám saman. Fannst alltaf nokkuð til í
þeirri gagnrýni að alútboð gæti hæglega orðið of
verktakamiðað.
Niðurstaðan hefur nú orðið sú að bjóða út hönnun og semja síðan við
vinningshafann. Þegar grunntreikningar liggja fyrir verður smíðin
síðan boðin út á markaði þar sem verktakafyrirtæki keppa sín á
milli.
Nýja fangelsið á Hólmsheiði á að taka til starfa innan þriggja ára.
Um það var góð samstaða í ríkisstjórn.
Frétt Innanríkisráðuneytisins: http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/27248