FRÉTTAUMFJÖLLUN TIL UMHUGSUNAR

Í gær gerðu einhverjir fjölmiðlar frétt úr því að ég hefði
hraðað mér úr Stjórnarráðinu - og gott betur - verið á hlaupum
þegar ég yfirgaf húsið eftir ríkisstjórnarfund. Í fréttafrásögnum
var látið að því liggja að ég hefði verið á flótta undan
fjölmiðlum! Þetta gripu síðan á lofti skríbentar á vefmiðlum á
höttum eftir einhverju verulega bitastæðu úr
þjóðmálaumræðunni.
Fangelsismálin eru ofarlega á baugi og lái ég ekki fjölmiðlum að
búast við fréttum af þeim eftir hvern ríkisstjórnarfund sem
haldinn er enda ríkisstjórnin búin að lýsa því yfir að málið verði
frágengið í þessum mánuði. Þarna eru fjölmiðlar að sinna eðlilegum
skyldum sínum. Ekki reyndist málið komið á það stig í gær að það
yrði afgreitt. Hlaup mín af ríkisstjórnarfundi voru vegna þess að
fundurinn hafði dregist á langinn og ég orðinn of seinn annað! Hélt
ég sannast sagna að fréttamenn þekktu mig af öðru en að forðast að
standa fyrir mínu máli.
Þetta verður mér hins vegar umhugsunarefni um fréttaumfjöllun í
landinu.
Þannig reifar Ríkissjónvarpið í gærkvöldi mismunandi áherslur innan
ríkisstjórnarinnar vegna þessa máls og kemst að undarlegum
niðurstöðum (eða væri nær að segja að tuggið hafi verið upp
umhugsunarlaust):
1) Ágreiningur sé um það hvort einkaaðilar reisi fangelsið. Um
þetta hefur aldrei verið ágreiningur. Fangelsið fer í útboð og
fyrirtæki á markaði teikna (grunnhönnun liggur þegar fyrir)
og reisa bygginguna.
2) Ágreiningur sé um það hvort skattgreiðendur borgi brúsann, sem
gæti leitt til skattahækkana eða niðurskurðar. Enginn ágreiningur
er um það að skattgreiðendur borgi fangelsið. Að sjálfsögðu munu
þeir borga hverja einustu krónu. Eða halda menn að í fangelsi borgi
fangar uppihald og húsnæði; eða að einkafyrirtæki ætli að gefa
ríkinu húsið og standa straum af kostnaði án endurgjalds?
Um það hefur hins vegar verið deilt hvort heppilegra sé að ríkið
reisi fangelsi milliliðalaust eða að einkaaðili reisi það með eigin
lántökum og leigi ríkinu síðan afnot af því. Ég hef margoft gert
grein fyrir mínum sjónarmiðum opinberlega um þetta efni, sjá t.d.
hér: http://ogmundur.is/stjornmal/nr/5848/
Þá hafa menn viljað skoða sitthvað sem snýr að staðsetnigu,
möguleika á að nýta annað húsnæði sem stendur autt og þar fram
eftir götunum. Þetta hefur tafið málið en á sér þessar eðlilegu
skýringar sem ég hef margoft gert grein fyrir opinberlega.
Allt þetta hefði ég getað sagt honum Illuga Jökulssyni þegar
hann spyr á Eyjunni í gær um ráðherrann á flótta. Reyndar sýnist
mér spurningarmekið vera óþarfi því Illugi er að fullyrða en ekki
aspyrja. http://blog.eyjan.is/illugi/2011/08/16/radherrar-a-flotta/
Frétt Sjónvarpsins: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4547437/2011/08/16/
Eyjan:
http://eyjan.is/2011/08/16/ruv-nadi-ekki-tali-af-neinum-radherra-eftir-rikisstjornarfund-ogmundur-yfirgaf-husid-a-hlaupum/
rúv: http://www.ruv.is/frett/fangelsi-i-einkaframkvaemd