HÚRRA FYRIR JÓNASI

Jónas Engilbertsson hefur ekið strætisvagni í Reykjavík í rétt
40 ár. Af þessu tilefni hefur hann verið heiðraður af Strætó bs og
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborgar, auk þess sem ég sem ráðherra
samgöngumála sá ástæðu til að taka sérstaklega á móti honum á
Hlemmi að lokinni akstursferð sem markar 40 ára samfelldan strætó
akstur í Reykjavík.
Jónas Engilbertsson hefur auk þess verið samferðarmaður minn í
verkalýðsbaráttunni undanfarna áratugi en hann hefur lengi verið
trúnaðarmaður hjá Strætó og alla tíð kraftmikill baráttumaður á
vettvangi Strafsmannafélags Reykjavíkurborgar og BSRB þar sem ég
var jú formaður í rúma tvo áratugi.
Húrra fyrir almenningssamgöngum, húrra fyrir Jónasi.
Sjá einnig: http://www.innanrikisraduneyti.is/frettir/nr/27200