MISSKILNINGUR UM VOPNAFLUTNINGA LEIÐRÉTTUR

Síðustu daga hefur verið staðhæft í fréttum nokkurra fjölmiðla
að Innanríkisráðuneytið hafi blessað hergagnaflutninga á vegum
íslenskra flugfélaga til Afganistans. Í kjölfarið hafa friðarsinnar
sent frá sér mótmæli gegn þessum meintu flutningum. Hið rétta er að
engar slíkar heimildir hafa verið veittar. Aftur á móti er það rétt
að á vegum íslenskra flugfélaga eru af og til flutt vopn eða önnur
hergögn á milli staða. Á vefmiðlinum smugan.is er
ég inntur eftir þessu sérstaklega og tek ég þar fram að ég fagni
umræðu um þessi efni enda er hún til góðs þótt fjölmiðlar verði að
gæta að því að fara rétt með staðreyndir.
Á Alþingi töldu einhverjir að mótsögn væri í málflutningi mínum nú
sem ráðherra og áður sem þingmaður í stjórnarandstöðu. Þetta hygg
ég að sé misskilningur sem ég einnig leiðrétti í viðtali við
Smuguna.
Sjá hér:
http://eyjan.is/2011/02/23/hid-islenska-atlanta-flygur-med-hergogn-med-blessun-innanrikisraduneytis/
http://www.smugan.is/frettir/frettir/nr/5272
http://www.smugan.is/frettir/frettir/nr/5274