Fara í efni

HVERS VEGNA HÆKKAR HEITA VATNIÐ?


Í lesendabréfi frá Ólínu hér á síðunni er beint til mín áskorðun sem ég beini hér með til fjölmiðla um að grafast fyrir um hvers vegna heita vatnið frá Orkuveitu Reykjavíkur er hækkað um 37%. Fréttablaðið segir okkur að það sé gert til að tryggja 5 prósenta arðsemi. Þessi skýring nægir ekki Ólínu. Hún nægir mér ekki heldur. Ég geri spurningu Ólínu hér með að minni og heiti lesendum að birta svörin hér á síðunni þegar þau berast. Ég trúi ekki öðru en fjölmiðlar gangi eftir þeim. 
Sjá  bréf Ólínu:  https://www.ogmundur.is/is/greinar/fimm-prosenta-ardsemi