Fara í efni

SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI FYRIR EFNAHAGS- OG SKATTANEFND ALÞINGIS


Eflaust hafa fáir eins mikla innsýn í fjármál fyrirtækjanna og skilanefndir bankanna. Maður skyldi ætla að þær öðrum fremur væru í stöðu til að öðlast skilning á innra gangverki fjármálalífsins (sumir nefndarmanna kannski óþægilega mikið innviklaður sjálfir).
Ef dómgreindin er í lagi ættu skilanefndarmenn að vera í stöðu til að sjá hvort réttvísin hafi verið höfð að leiðarljósi hjá þeim sem koma til umfjöllunar í nefndunum. Reyndar hafa grunsemdir vaknað um góða dómgreind hjá einhverjum skilanefndarmönnum, til dæmis þegar í ljós kom að þeir höfðu látið eigin lögmannsstofur sinna erindum fyrir sömu skialnefndir og þeir sátu í sjálfir, fyrir himinháar upphæðir! Það kann að hafa verið löglegt  - en siðlaust einsog Vilmundur sagði forðum.
En hvað með það sem augljóslega er ólöglegt? Telja skilanefndir sig skuldbundnar - þó ekki væri nema siðferðilega - til að skjóta slíkum málum til rannsóknar hjá skattinum? Mér leikur forvitni á að vita þetta. Þess vegna hef ég óskað eftir því að skattrannsóknarstjóri komi fyrir Efnahags- og skattanefnd Alþingis á næsta fundi hennar til að gera okkur grein fyrir því hvort einhverjum - og þá hve mörgum málum - skilanefndir bankanna hafi skotið til embættisins til athugunar.